Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 2
Veður Norðaustan gola eða kaldi með éljum í dag, en lengst af léttskýjað sunnan og vestan til. Frost 0 til 8 stig, mildast með suður- og suðvestur- ströndinni. sjá síðu 36 Verklegt vit í verki stjórnmál Píratar ætla sér stóra hluti í komandi sveitarstjórnar­ kosningum og munu bjóða fram í nokkrum sveitarfélögum landsins. Hafa þeir í þeim leiðangri ráðið Atla Þór Fanndal blaðamann sem póli­ tískan ráðgjafa flokksins í komandi kosningum. Atli ráðinn sem ráðgjafi hjá Pírötum Atli Þór Fanndal Erla Hlynsdóttir, framkvæmda­ stjóri flokksins, segir Pírata stefna á framboð í Reykjavík, Kópavogi, Akureyri, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Árborg. Einnig skoðar flokkurinn alvarlega að tefla fram lista í Mos­ fellsbæ. „Svo erum við að skoða mögu­ leika á að bjóða fram ein eða með öðrum annars staðar,“ segir Erla. Atli mun koma inn í starfið og vera til halds og trausts bæði fyrir framboðin og einstaka frambjóð­ endur. „Hans hlutverk er að vera pólit­ ískur ráðgjafi flokksins. Við höfum verið með ráðgjafa í síðustu tveimur kosningabaráttum. Hann er til ráð­ gjafar fyrir þá sem hafa áhuga á því, bæði aðildarfélögin og frambjóð­ endur,“ bætir Erla við. „Það var okkar mat að hann hefði mikla þekkingu á pólitísku lands­ lagi á Íslandi og að það væri styrkur í að fá hann inn í okkar teymi fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar.“ Píratar mældust stærsti stjórn­ málaflokkur landsins í fyrsta skipti í maí árið 2015. Gallup mældi flokkinn í 36 pró­ sentum þann 1. apríl ári seinna. Í síðustu mælingu var flokkurinn með tæpra tólf prósenta fylgi og fjórði stærsti flokkurinn á þingi. – sa Sýningin Verk og vit 2018 hefst í Laugardalshöll í dag og lýkur á sunnudaginn. Þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í Laugardalshöll í gær voru sýnendur í óðaönn að leggja lokahönd á undirbúninginn. Um 120 sýnendur taka þátt en þema sýningarinnar er íslenskur byggingariðnaður, skipulagsmál og mannvirkjagerð. Á meðal þeirra sem taka þátt eru húsaframleiðendur, verkfræðistofur, tækjaleigur og fleiri. FréttAblAðið/SteFán neytendur ÁTVR ætlar að bregðast við tilkynningum frá kaupendum um „frávik“ á innihaldi neftóbaks­ dósa fyrirtækisins með því að setja loks á þær innsigli. Sigrún Ósk Sig­ urðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segist vona að nýjar, öruggari dósir fyrir neytendur verði komnar á markað í vor. Sala og neysla á íslenska neftóbak­ inu hefur aukist nær árlega síðustu ár og nam salan á síðasta ári um 40 tonnum, sem jafngildir um 800 þús­ und 50 gramma dósum. Meirihluti notenda setur tóbakið í vör. Vandamálið við dósirnar er hins vegar að þegar þær eru komnar í hendur smásala er ekkert innsigli á lokinu sem fullvissar neytendur um að ekki hafi verið átt við innihaldið, líkt og á flestri annarri neysluvöru. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að upp hafi komið fleiri en eitt tilfelli nýverið þar sem kaupendur hafa uppgötvað að búið sé að eiga við dósirnar sem keyptar hafa verið í búð og þær reynst hálftómar þegar heim var komið. Fréttablaðið hefur einnig staðfest dæmi um að dós reyndist átekin og malað kaffi hafi verið sett í staðinn til að láta það líta út eins og hún væri full. Dósin á meðfylgjandi mynd er dæmi um slíkt, þar sem enginn vafi lék á að um kaffi væri að ræða þegar lyktað var af, auk þess sem litar­ og grófleikamismunur var á tóbakinu og kaffinu. Umrætt sinn reyndist þó aðeins um kaffi að ræða, en ekki eitt­ hvað mun skaðlegra og uppgötvað­ ist þetta áður en þess var neytt. En leiðin er greið ef vilji er til. Nú ætlar ÁTVR loks að verða við ákalli áhyggjufullra neftóbaksnotenda og setja fiktvörn í formi innsiglis á dósirnar. „Verkefnið er í vinnslu og von er á að prófanir klárist mjög fljótlega. Stefnan er að innsiglaðar dósir verði komnar á markað í vor,“ segir Sigrún Ósk. „Við höfum fengið nokkrar til­ kynningar frá kaupendum um frávik. Við höfum gert allt hjá okkur til að tryggja að varan fari rétt frá okkur.“ Sigrún segir ÁTVR vera heildsala á tóbaki og að heildsölueiningarnar fari innsiglaðar frá þeim. Þá sé ÁTVR með virkt gæðaeftirlit sem er ætlað að tryggja að rétt magn og innihald sé í smásölueiningunum. mikael@frettabladid.is ÁTVR innsiglar loks tóbaksdósir eftir frávik Vonir standa til að nýjar innsiglaðar dósir af íslenska neftóbakinu verði komn- ar á markað í vor. Dæmi eru um að áteknar, hálftómar og jafnvel kaffibland- aðar dósir hafi ratað frá smásölum til neytenda. Gæðaeftirlit ÁTVR er strangt. innsigli á tóbaksdósir mun tryggja öryggi neytenda. FréttAblAðið/Anton brink átt hafði verið við þessa dós og kaffi blandað út í tóbakið. Við höfum fengið nokkrar tilkynn- ingar frá kaupendum um frávik. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR Rafvirkjar LED rakaþétt ljós www.olafsson.is Endursöluaðilar um land allt Snjöll lýsing! OSRAM LIGHTIFY: Aðlagaðu ljósið að þínum þörfum með Appi Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 olafsson.is VIðsKIPtI Fjarskipti hafa tryggt sér sýningarrétt á Meistaradeild UEFA og Evrópudeildinni til næstu þriggja leiktímabila, fyrir tímabilin 2018 og 2019  til 2020  og 2021. Sýningar­ rétturinn hefur hækkað verulega í verði frá fyrri samningi, eða um tæp 50 prósent, samkvæmt upplýsingum Sportbusiness, sem rýnir í fjármál íþróttaheimsins. Samkvæmt fyrirtækinu munu Fjar­ skipti greiða UEFA 2 milljónir evra, eða tæpar 250 milljónir króna, fyrir hvert leiktímabil. Upphæðin skiptist þannig að Fjarskipti greiða 210 millj­ ónir króna fyrir Meistaradeildina og 37 milljónir fyrir Evrópudeildina. Upphæðin fyrir leiktímabilin þrjú nemur því 744 milljónum króna. Í fyrri samningi, sem tók til þriggja leiktímabila, greiddu 365 miðlar 160 milljónir króna fyrir sýningarrétt hvers leiktímabils. – khn Meistaradeildin sögð fokdýr 8 . m a r s 2 0 1 8 F I m m t u d a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 0 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 4 -D 2 C 4 1 F 2 4 -D 1 8 8 1 F 2 4 -D 0 4 C 1 F 2 4 -C F 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.