Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 58
Basel
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18
Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Tungusófar • Sófasett • Stakir sófar • Hornsófar
Roma
VIÐ BÚUM TIL
DRAUMASÓFANN ÞINN
900 útfærslur, engin stærðartakmörk
og 3.000 tegundir af áklæðum
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæri í miklu úrvali
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
METABO Bútsög
KS216
Verðmætaskápar
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
16.995
frá 4.995
17.995
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
8 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r46 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
KvIKmynDIr Þrátt fyrir að ekkert
vantaði upp á töffið hjá Charles
Bronson og að hann hafi leikið í
fjölda spennumynda náði hann ekki
að verða aðalgæinn fyrr en hann
lék arkitektinn Paul Kersey í Death
Wish 1974, þá 53 ára gamall.
Þá átti hann að baki klassískar
harðhausamyndir eins og The
Magni ficent Seven, The Great
Escape og The Dirty Dozen. Í þeim
myndum var hann þó aðeins einn í
hópi allra helstu töffara þeirra tíma
og barðist og drapst í skugga erki
töffara á borð við Steve McQueen,
Yul Brynner og Lee Marvin.
Í Death Wish lék hann prúð
mennið Paul Kersey, arkitekt og
demókrata, sem lifði góðu lífi í New
York ásamt eiginkonu og stálpaðri
dóttur. Þessum örugga heimi hans
er rústað á einni kvöldstund þegar
skítalabbar ryðjast inn á heimilið,
misnota og kvelja konurnar í lífi
hans með þeim afleiðingum að
eiginkonan deyr.
Dagfarsprúði góðborgarinn
umturnast, vopnast og leitar hefnda.
Og rétt eins og fóstbróðir hans úr
myndasögunum, The Punisher,
lætur hann ekki staðar numið við
þá sem réðust að fjölskyldu hans.
Öllu úrþvætti skal skolað af götum
borgarinnar með eigin blóði.
Death Wish sló í gegn og fram
haldsmyndirnar urðu fjórar þar sem
Bronson þvældist á milli New York
og Los Angeles og fargaði óþjóðalýð
af aðdáunarverðri einurð og festu.
Bronson lagði frethólkinn á hilluna
í Death Wish V: The Face of Death
árið 1994 og lést 2003, 81 árs að
aldri.
Paul Kersey er hins vegar ekki
dauður úr öllum æðum og er upp
risinn 24 árum síðar, holdgerður í
Bruce Willis. Sá jaxl má muna sinn
fífil fegri og hefur verið hálf aumur
undanfarin ár. Willis er tíu árum
eldri en Bronson var þegar hann lék
Kersey í fyrsta sinn en eins og alltaf
til stórræðanna líklegur.
Kersey er að þessu sinni læknir
en ekki arkitekt. Kannski undir
áhrifum frá Eiðnum, eftir Baltasar
Kormák, og þegar fautar ráðast á
eiginkonu hans og dóttur rennur
æði á manninn sem hefur helgað líf
sitt því að bjarga öðrum. Og hann
byrjar að drepa af miklum móð.
Leikstjórinn Michael Winner var
ekkert að finna upp hjólið þegar
hann tefldi Bronson fram í Auga
fyrir auga, eins og myndin hét þegar
hún var sýnd í Háskólabíói 1975.
Refsivöndurinn Frank Castle, The
Punisher, steig að vísu fram í fyrsta
skipti í myndasögum 1974 en þá
höfðu sterkir menn (konur voru
ekki gjaldgengar í þessum bransa í
þá tíð) tekið málin í sínar hendur í
nokkur ár í dægurmenningunni.
Löggufanturinn Dirty Harry er
þeirra þekktastur og byrjaði að freta
niður glæpahyski með Magnum
.44 1971. Tíðarandinn og vantrú á
kerfið virtist á þessum árum kalla
eftir sterka einstaklingnum sem
bauð öllum birginn, máttlausum
yfirvöldum og krimmunum. Og það
er varla tilviljun að þessir gaurar eru
allir að ganga í endurnýjun lífdaga
þessi misserin.
Gallinn við þessa uppvakninga
er auðvitað að Hollywood er alltaf í
endalausri mótsögn við sjálfa sig og
því miður hlaða þessar kempur, sem
eru þó í það minnsta bæði karlar og
konur núna, undir þá hugmynd að
vopnaður almenningur sé lausnin á
öllum heimsins vanda. Við þurfum
væntanlega ekki að bíða þess lengi
að Mel Gibson eða Harrison Ford
leiki kennara sem taka til í skól
anum með árásarrifflum.
Mörgum þótti nóg um ofbeldis
upphafninguna í Death Wish á
sínum tíma en sú mynd hreyfir
varla við grunnskólakrökkum í dag.
Hins vegar má ætla að Death Wish
anno 2018 gangi mun lengra enda er
leikstjórinn og Íslandsvinurinn Eli
Roth þekktastur fyrir subbulegar
hryllingsmyndir og ofbeldisklámið
sem kennt er við Hostel. thorarinn@
frettabladid.is
Ítarlegri umfjöllun um Death Wish
og Eli Roth má nálgast á nýjum vef
Fréttablaðsins, www.frettabladid.
is, undir Lífið.
Feigur smáborgari á vígaslóð
Charles heitinn Bronson var einn helsti harðjaxl kvikyndanna löngu áður en
Stallone, Schwarzenegger og Bruce Willis fóru að gera sig gildandi. Bronson átti
langan feril að baki þegar hann festi sig endanlega í sessi með Death Wish 1974.
Paul Kersey er hins
vegar eKKi dauður úr
öllum æðum og er uPP
risinn 24 árum síðar,
holdgerður í Bruce
Willis.
Charles Bronson kennir Bruce Willis fingramál í upprunalegu Death Wish.
Þetta er eitthvað sem enginn krimmi vill sjá.
Bruce Willis bregður sér í hlutverk sem Charles Bronson gerði ódauðlegt í Death Wish 1994.
Ísleifur B. Þórhallsson, Quentin Tarantino og Eli Roth á blaðamannfundi í einni
af mörgum Íslandsheimsóknum leikstjórans sem fékk hugmyndina að kvik-
myndinni Cabin Fever, eftir sumardvöl í sveit á Íslandi í æsku. FRéTTaBLaðið/HaRi
Bíó
0
8
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
2
4
-F
A
4
4
1
F
2
4
-F
9
0
8
1
F
2
4
-F
7
C
C
1
F
2
4
-F
6
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
7
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K