Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 27
Á myndinni má sjá hvernig heil- brigðar hægðir eiga að líta út. Það er mjög mikil- vægt að hafa heil- brigðar hægðir á öllum æviskeiðum. Hrönn Hjálmarsdóttir, næringar- og heilsumarkþjálfi Að kúka á hverjum degi „Það ætti í raun að vera jafn eðli- legt að hafa hægðir daglega rétt eins og að borða“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan. „Meltingarfærin okkar eru undirstaða góðrar heilsu og það er til mikils að vinna að hafa þau alltaf í toppstandi. Þau sjá um að brjóta niður fæðuna þannig að líkaminn getur tekið upp nær- ingarefnin og það sem hann nýtir ekki, skilar hann frá sér í formi hægða. Það er aðeins mismunandi hversu oft við þurfum að hafa hægðir en eðlilegt þykir ef hægð- irnar er mjúkar og að við losum þær einu sinni til tvisvar á dag. Hjá sumum er það aðeins sjaldnar en 3-4 sinnum í viku ætti að vera algjört lágmark,“ segir Hrönn Hægðatregða algeng Harðlífi og hægðatregða eru að sögn Hrannar því miður afar algeng vandamál. Hún segir sífellt fleiri þjást vegna þessa, bæði börn og fullorðna. „Lausnin ætti þó ekki að felast í því að nota efni sem framkalla niðurgang nema nauð- syn krefji og ef það er tímabundið. Það er alls ekki í lagi að geta ekki kúkað í marga daga, eða að hægða- losun valdi sársauka eða kosti áreynslu. Of tíðar klósettferðir er heldur ekki gott en í báðum tilfellum þarf að finna lausn á vandanum. Lausnin felst þó ekki í einhverju einu ákveðnu, heldur er margt sem þarf að huga að, bæði mataræði, inntaka lyfja, lífsstíll, hreyfing, inntaka á mjólkursýru- gerlum og stundum meltingarens- ímum.“ Ensím og gerlar Ástæður þess að meltingin okkar er í ólagi geta að sögn Hrannar verið margvíslegar. „Það kemur fyrir að okkur vantar meltingar- ensím til að brjóta niður fæðuna og getur það þá valdið ónotum og vandamálum við hægðalosun. Ef þarmaflóran (allar bakteríurnar sem lifa í þörmunum) raskast, verður hægðalosun líka að vanda- máli en það má í flestum tilfellum rekja til lélegs mataræðis, of mikið af unnum matvælum, sykurneyslu og að allt of lítið er af trefjum. Sýklalyf og ýmis önnur lyf eins og svefnlyf og þunglyndislyf hafa líka mjög slæm áhrif á þarmaflóruna sem og mikil koffín- og áfengis- neysla og svo er streita og óregla á svefni líka sterkur áhrifavaldur.“ Skortur á meltingaensímum! Matur fer misvel í okkur. Ákveðin matvæli eða samsetning matar geta að sögn Hrannar valdið ónotum og uppþembu og gæti orsökin hugsanlega verið skortur á meltingarensímum. „Þá náum við ekki að brjóta niður ákveðna fæðu nógu vel sem getur skapað hin ýmsu meltingarvandamál. Ýmis heilsufarsleg vandamál geta tengst skorti á meltingarensímum og eru vindverkir, uppþemba, ónot og ógleði algengust. Bólur, exem, höfuðverkur og liðverkir eru einnig þekkt. Meltingarensím eins og Digestive Enzyme Complex er hægt að taka inn með mat en þau hjálpa til við niðurbrot á fæðu í maganum.“ Öflug þarmaflóra Ef þarmaflóran er ekki í jafnvægi hefur það gríðarleg áhrif á heilsu- farið en t.a.m. er ónæmiskerfið að mestu leyti staðsett í þörmunum á okkur. Hrönn segir að það geti tekið langan tíma að byggja upp öfluga þarmaflóru. „Ef hún hefur verið lengi í ójafnvægi þarf að huga sér- staklega að því að taka inn öfluga mjólkursýrugerla því hollur matur er kannski ekki nóg.“ Hægðir segja til um heilsufar Þar sem allir þurfa að hafa hægðir frá vöggu til grafar þá ætti umræðan um hægðir að mati Hrannar ekki að vera eins mikið feimnismál og raun ber vitni. „Það er mjög mikilvægt að hafa heilbrigðar hægðir á öllum æviskeiðum. Á myndinni má sjá hvernig heilbrigðar hægðir eiga að líta út og við ættum öll að gera okkur far um að huga vel að þessum málum, skoða hvernig þær líta út og keppast að því að geta losað dag- lega.“ Heilbrigðar hægðir frá heilbrigðum líkama Eðlilegar hægðir eru mjúkar og hægt að losa þær án nokkurrar áreynslu. „Ef svo er ekki er líklegt að það vanti trefjar í fæðuna en trefjar fáum við í grófu korni, baunum, grænmeti og ávöxtum. Við meltum ekki trefjarn- ar en þær drekka í sig vökva og því þarf alltaf að huga vel að því að drekka nóg af vatni. Trefjarnar gera hægðirnar mjúkar, tryggja að þær fari hratt gegnum ristilinn og auðvelda losun.“ Kíkir þú í klósettið? Prógastró Gull byggir upp þarmaflóruna og getur komið reglu á hægðir á meðan Digestive Enzyme Complex meltingarensím auðvelda niðurbrot á mat og auka næringarupptöku. KYNNING: Artasan Prógastro Einstök blanda af virkum plöntukjörnum í gelformi án alkahóls og kemískra íblöndunar- og geymsluefna. SORE NO MORE eru náttúruleg hita- og kæligel sem henta vel við tímabundnum vöðvaeymslum, bólgum, harðsperrum og þreytu eftir stífar æfingar. Náttúruleg lausn við bólgu og verkjum í vöðvum og liðum SORE NO MORE hitagel • Gott á þráláta verki eins og liðagigt, sinabólgur og vefjagigt. • Örvar blóðrásina. • Hitar og hjálpar til við að auka hreyfigetu. • Mjög hentugt til að hita og mýkja upp stífa vöðva fyrir æfingar. SORE NO MORE kæligel • Linar bráða verki vegna byltu eða höggs. • Frábært á vöðvabólgu. • Kælir rólega og djúpt inn í vöðvann. • Upplagt til að minnka harðsperrur og vöðvaverki. Sore No More 5x10 copy.pdf 1 24/01/2018 11:07 Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og heilsuhillur verslana FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 3 . m a r s 2 0 1 8 1 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 C -5 C 1 8 1 F 2 C -5 A D C 1 F 2 C -5 9 A 0 1 F 2 C -5 8 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.