Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 6
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040 VW Tiguan R-Line 2.0 TDI 4.250.000 2015 43.000Ekinn 30 Raf / Bensín Ekinn þús. km. Myndir á vef Dísil Fjórhjóladrif Metan & bensín Sjálfskiptur Beinskiptur Rafmagnsbíll Fleiri bílar og myndir á netinu: hnb.is Nokkrir góðir með netta reynslu VW Tiguan Track&Sport 2.0 TDI 2.590.000 2012 93 Mitsubishi Outlander 4x4 Intense 2015 91 Audi Q5 Quattro 2.0 TDI 2014 36 Skoda Yeti Ambition 2.0 TDI 2011 142 TILBOÐ 1.450.000 5.590.000 2.940.000 VW Golf Variant Alltrack 4Motion 2016 22 4.690.000 Skoda Octavia Combi Ambiente 2.0 TDI 2013 96 2.240.000 Skálað fyrir stjórninni Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í gær þegar stjórnarsáttmáli Kristilegra demókrata og Sósíal- demókrata var undirritaður. Eftir að leiðtogar fylkinganna höfðu krotað undir var boðið upp á pylsur og vín. Angela Merkel verður kanslari fjórða kjörtímabilið í röð og hefur ástæðu til að fagna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Umhverfismál Sex daga í ár hefur svifrykið í Reykjavík farið yfir sólar- hringsheilsumörk. Allt árið í fyrra voru það sautján dagar þar sem svif- rykið fór yfir mörkin. Svava S. Steinarsdóttir, heil- brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftir- liti Reykjavíkur, segir að til skamms tíma hafi þetta ekki veruleg áhrif á þá sem eru við góða heilsu. En þegar svifrykið er komið yfir 300 míkróg- römm á rúmmetra, eins og var fyrir helgi, sé ástandið orðið alvarlegt. Þá geti jafnvel heilbrigt fólk farið að finna fyrir óþægindum. „Þá sérstaklega þegar þú ert að reyna á þig, til dæmis þegar þú ert að skokka. Þá tekurðu inn meira súrefni og þá getur fólk sem er hraust farið að finna ertingu í öndunarfærum,“ segir Svava. Þessar aðstæður hafi þó meiri áhrif á þá sem eru veikir fyrir, með astma eða lungnasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma. Þessar agnir geta komist inn í blóðið og rannsóknir benda til að svifrykið geti þá aukið líkur á blóðtöppum og jafnvel hjartaáföllum. Svava segir að gerðar hafi verið rannsóknir á samsetningu svifryks í Reykjavík. Þær sýni að helmingur- inn af svifrykinu sé malbiksagnir. „Öll umferð slítur yfirborði vega, en nagladekkin slíta malbikinu mun meira og eru þar áhrifavaldur,“ segir Svava, en bendir líka á að í rykinu er sót, sem kemur mest frá dísil- bifreiðum og frá útblæstri bifreiða yfirleitt. „Síðan eru slitnir bremsu- borðar, hjólbarðar og annað slíkt, salt og jarðvegsefni. Það hefur verið hálkuvarið í vetur og það efni er á götunum auk niðurbrotins malbiks,“ segir Svava. Þegar lygnt er og búið að vera lengi þurrt þyrlar umferðin upp rykinu. „Mengunin sem við sjáum núna er aðallega í nágrenni við stofnbrautir en ekki við íbúagötur þar sem umferðin er minni.“ Svava segir að til þess að vinna gegn svifryksmengun þurfi að draga úr umferð. Fyrir því skortir lagaheimild, en til umsagnar í sam- gönguráðuneytinu eru drög að frum- varpi um breytingar á umferðar- lögum þar sem á að veita heimild til slíks. Í því myndi felast meðal annars heimild fyrir sveitarfélögin til gjald- töku á nagladekkjum og til að draga úr umferð á tilteknum stöðum á til- teknum tímum. Svava bendir á til viðbótar að hægt væri að draga úr hámarkshraða, en þeirri aðferð hafi verið beitt erlendis. Önnur leið sé að draga úr umferðar- magni. „Sumar borgir hafa til dæmis haft það þannig að einhverja ákveðna daga mega bara keyra bílar sem eru með oddatölur aftast í bílnúmerinu,“ segir Svava. Enn ein leiðin væri að setja takmarkanir á þunga bifreiða, því þyngri bifreiðir þyrla upp meira ryki. jonhakon@365.is Varhugavert að fara út að skokka á verstu dögum Sex daga í ár hefur svifryk í Reykjavík farið yfir sólarhringsheilsumörk. Svif- rykið getur aukið líkur á blóðtöppum og hjartaáföllum. Lagasetningu þarf til að hægt sé að draga úr umferð. Unnið er að breytingum á umferðarlögum. Ráðgert er að sveitarfélög geti tekið gjald vegna nagla. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon 1 3 . m a r s 2 0 1 8 Þ r i Ð J U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 1 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 C -6 5 F 8 1 F 2 C -6 4 B C 1 F 2 C -6 3 8 0 1 F 2 C -6 2 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.