Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAkþAnkAR Í dag er góður dagur. Bræðingur er bátur dagsins á 649 kr. Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Hugsjónir eru níðþungur farangur. Þegar allt er með kyrrum kjörum er auðvelt að ýta honum á undan sér en þegar stormur strýkur vanga er freistandi að skilja hlassið eftir svo hægt sé að hlaupa sem skjótast í næsta skjól. Ekki veit ég hvort Vinstri græn hafi skilið sinn farangur eftir í síðustu viku eða hvort hugmynda- fræði þeirra hefur virkilega húmor fyrir embættisfærslum Sigríðar. En Sigríður er líklega ekki vandamál vinstri manna heldur hitt að þeir sem eru í pólitík til að grilla og græða eru svo vissir í sinni sök meðan þeir sem hafa einhvern metnað fyrir sómasamlegra sam- félagi vita ekki í hvorn fótinn þeir eigi að stíga, jafnvel þó þeir hafi ekki nema einn vinstri fót. Þannig að þeir liggja hver um annan þver- an meðan grillveislan marserar yfir þá einsog herinn í Pyongyang. Hér á Spáni er þetta kokhreysti með ólíkindum. Lýðflokksmenn, sem eru við stjórn og hafa líka gaman af því að grilla, eru einmitt að taka til í réttarsölum svona rétt á meðan meðlimirnir sverja af sér rán og svívirðilega spillingu. Síðan mæta þeir svo sjarmerandi fyrir framan alþjóð að þorri þjóðarinnar getur ekki beðið eftir því að kjósa þá næst. Reyndar hefur aðeins dregið úr þeirri þrá eftir að í ljós kom að þeir eru búnir með eftir- launasjóðinn og hvetja fólk nú til að borga í einkarekna lífeyrissjóði. Rétt einsog íslenskir hægrimenn syngja þeir síðan sönginn um hag- sældina meðan innviðirnir visna. En þar sem búið er að bjóða Vinstri grænum til grillveislu vil ég hafa yfir varnaðarorðin sem hver ferðalangur heyrir svo oft: Vinsam- legast hafið auga með handfarangri ykkar í hvívetna, annars verður boðið upp á vinstri græn á grillteini í næstu kosningavöku. Vinstri græn á grillteini 1 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 C -3 9 8 8 1 F 2 C -3 8 4 C 1 F 2 C -3 7 1 0 1 F 2 C -3 5 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.