Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 13.03.2018, Blaðsíða 34
TónlisT Kammertónleikar HHHHH Verk eftir Hildigunni Rúnars- dóttur, lou Harrison, Marti Ep- stein, Hjalta nordal Gunnarsson og Georgíj svírídof. Norðurljós í Hörpu Sunnudaginn 11. mars Flytjendur: Duo Harpverk og Hljómeyki. Þegar vandamál heimsins hafa verið útkljáð kemur alltaf kona til að taka til og hleypa vindlareyknum út, það bregst ekki. Þetta er í fáum orðum það sem ljóð eftir Ingibjörgu Har­ aldsdóttur fjallar um. Það var flutt á tónleikum í Norðurljósum í Hörpu á sunnudaginn. Tónlistin var eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Flytjendur voru kórinn Hljómeyki undir stjórn Mörtu Guðrúnar Halldórsdóttur og Duo Harpverk sem samanstendur af Katie Buckley hörpuleikara og Frank Aarnink slagverksleikara. Ljóðið er stutt og hnitmiðað og tónlistin var það líka. Einaldur rytmi og ein­ föld laglína lá til grundvallar, hvort tveggja var áleitið og grípandi. Fram­ vindan var sömuleiðis spennandi; útkoman var einkar skemmtileg. Næsta atriði efnisskrárinnar, Jahla og Bevery’s Troubador Music eftir Lou Harrison hitti líka beint í mark. Þar var eingöngu leikið á fyrr­ greindu hljóðfærin. Tónlistin var fjörleg, áferðin létt austurlensk, tón­ málið endurtekningarsamt en ekki á vondan hátt. Góð vísa er aldrei of oft kveðin; hið sama má segja um góða tónahendingu. Hörpuleikurinn var hér í aðalhlutverki, en ásamt Frank sló Hildigunnur taktinn. Hann var flottur og hörpuleikurinn var ákaf­ lega glæsilegur, fullur af tilþrifum og glitrandi tónahlaupum sem voru óaðfinnanlega leikin. Tvær tilraunakenndari tónsmíðar, leiknar af Frank og Katie, voru næst­ ar á dagskránni. Þetta voru Virga eftir Marti Epstein og Rapsódía eftir Hjalta Nordal Gunnarsson. Nafn hinnar fyrri er komið úr veðurfræði, og vísar til regndropa eða snjókrist­ alla sem ná ekki að falla á grund heldur gufa upp í loftinu. Stemningin var mjög kyrrlát, tónlistin saman­ stóð af hljóðum tónum á stangli, ýmist úr hörpunni eða alls konar slagverki. Þetta byrjaði vel, andrúms­ loftið var dáleiðandi, en þegar langur tími leið og ekkert bar til tíðinda fór manni að leiðast. Verkið hefði að ósekju mátt stytta um helming. Tónlistin eftir Hjalta var mun áhugaverðari, þar var töluvert um drama og andstæður sem voru áhrifa­ ríkar. Risastór tromma spilaði stóra rullu, hávaðinn í henni var svo mikill að áheyrendur hrukku við í hvert sinn. Í verkinu mátti greina mark­ vissa atburðarrás, ýmiss konar blæ­ brigði voru sett fram af smekkvísi og heildarútkoman var hrífandi. Hjalti er ungur að árum, fæddur árið 1999. Hann er greinilega bráðefnilegur. Eftir hlé var aðeins ein tónsmíð á efnisskránni, Púshkinsveigur eftir Georgíj Svíridof. Hann var uppi á öldinni sem leið, nemandi Sjost­ akovitsj og í miklu uppáhaldi hjá honum. Púshkinsveigurinn byggir á tíu ljóðum skáldsins ástsæla, og í henni er alltaf eitthvað kræsilegt að gerast. Hér steig Hljómeyki aftur fram á svið en Dúóið, ásamt Hildi­ gunni sem lék á selsestu og Erni Magnússyni á píanó, aðstoðaði í nokkrum laganna. Undirtitill verksins er Konsert fyrir kór, enda er kórinn hugsaður eins og hljómsveit. Fjölbreyttir effektar komu við sögu, bergmál og fljókin fjölröddun, einsöngur og hvaðeina. Tónlistin var margþætt og á köflum tignarleg, og Hljómeyki söng svo vel að það var helber unaður. Raddirnar voru hreinar og þéttar, samsöngur­ inn í fullkomnu jafnvægi. Hver einasta tónahending var fagurlega mótuð. Útkoman var stórbrotin og verður lengi í minnum höfð. Jónas Sen niðuRsTaða: Mögnuð dagskrá með frábærum söng og hljóðfæraleik. Söngurinn var helber unaður Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverksleikari mynda Duo Harpverk. HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 The Shape Of Water 17:30, 22:30 The Florida Project 17:30, 20:00 Óþekkti Hermaðurinn 17:45 Spoor 20:00 Loveless 20:00 Three Billboards Outside Ebbing Missouri 22:30 Call Me By Your Name 22:30 Aðalfundur og spennandi málþing Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 16.00 á Icelandair Hótel Natura, Víkingasal. Dagskrá aðalfundar 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Ákvörðun félagsgjalds 6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga 7. Önnur mál. Málþing hefst kl. 16.45 að loknum aðalfundi Dagskrá málþings. Hönnun sjúkrahúss 21. aldarinnar Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt hjá hönnunarteyminu Corpus3 Hvers vegna notendastudd hönnun sjúkrahúss? Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri á Landspítala Hringbrautarverkefnið – staðan í dag. Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH Lokaorð flytur Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra Stjórnin. intellecta.is RÁÐNINGAR 1 3 . M a R s 2 0 1 8 Þ R i ð J u D a G u R18 M E n n i n G ∙ F R É T T a B l a ð i ð menning 1 3 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :2 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 C -6 5 F 8 1 F 2 C -6 4 B C 1 F 2 C -6 3 8 0 1 F 2 C -6 2 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 2 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.