Fréttablaðið - 13.03.2018, Side 6
Klettháls 13 · hnb.is · 590 5040
VW Tiguan R-Line
2.0 TDI
4.250.000 2015
43.000Ekinn
30
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
Fleiri bílar og
myndir á netinu: hnb.is
Nokkrir góðir
með netta
reynslu
VW Tiguan
Track&Sport 2.0 TDI
2.590.000 2012
93
Mitsubishi Outlander
4x4 Intense
2015
91
Audi Q5
Quattro 2.0 TDI
2014
36
Skoda Yeti
Ambition 2.0 TDI
2011
142
TILBOÐ
1.450.000 5.590.000
2.940.000
VW Golf Variant
Alltrack 4Motion
2016
22
4.690.000
Skoda Octavia Combi
Ambiente 2.0 TDI
2013
96
2.240.000
Skálað fyrir stjórninni
Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í gær þegar stjórnarsáttmáli Kristilegra demókrata og Sósíal-
demókrata var undirritaður. Eftir að leiðtogar fylkinganna höfðu krotað undir var boðið upp á pylsur og vín.
Angela Merkel verður kanslari fjórða kjörtímabilið í röð og hefur ástæðu til að fagna. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Umhverfismál Sex daga í ár hefur
svifrykið í Reykjavík farið yfir sólar-
hringsheilsumörk. Allt árið í fyrra
voru það sautján dagar þar sem svif-
rykið fór yfir mörkin.
Svava S. Steinarsdóttir, heil-
brigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftir-
liti Reykjavíkur, segir að til skamms
tíma hafi þetta ekki veruleg áhrif á
þá sem eru við góða heilsu. En þegar
svifrykið er komið yfir 300 míkróg-
römm á rúmmetra, eins og var fyrir
helgi, sé ástandið orðið alvarlegt. Þá
geti jafnvel heilbrigt fólk farið að
finna fyrir óþægindum.
„Þá sérstaklega þegar þú ert að
reyna á þig, til dæmis þegar þú ert að
skokka. Þá tekurðu inn meira súrefni
og þá getur fólk sem er hraust farið
að finna ertingu í öndunarfærum,“
segir Svava. Þessar aðstæður hafi þó
meiri áhrif á þá sem eru veikir fyrir,
með astma eða lungnasjúkdóma,
hjarta- og æðasjúkdóma. Þessar
agnir geta komist inn í blóðið og
rannsóknir benda til að svifrykið
geti þá aukið líkur á blóðtöppum og
jafnvel hjartaáföllum.
Svava segir að gerðar hafi verið
rannsóknir á samsetningu svifryks
í Reykjavík. Þær sýni að helmingur-
inn af svifrykinu sé malbiksagnir.
„Öll umferð slítur yfirborði vega, en
nagladekkin slíta malbikinu mun
meira og eru þar áhrifavaldur,“ segir
Svava, en bendir líka á að í rykinu
er sót, sem kemur mest frá dísil-
bifreiðum og frá útblæstri bifreiða
yfirleitt. „Síðan eru slitnir bremsu-
borðar, hjólbarðar og annað slíkt,
salt og jarðvegsefni. Það hefur verið
hálkuvarið í vetur og það efni er á
götunum auk niðurbrotins malbiks,“
segir Svava. Þegar lygnt er og búið að
vera lengi þurrt þyrlar umferðin upp
rykinu. „Mengunin sem við sjáum
núna er aðallega í nágrenni við
stofnbrautir en ekki við íbúagötur
þar sem umferðin er minni.“
Svava segir að til þess að vinna
gegn svifryksmengun þurfi að
draga úr umferð. Fyrir því skortir
lagaheimild, en til umsagnar í sam-
gönguráðuneytinu eru drög að frum-
varpi um breytingar á umferðar-
lögum þar sem á að veita heimild til
slíks. Í því myndi felast meðal annars
heimild fyrir sveitarfélögin til gjald-
töku á nagladekkjum og til að draga
úr umferð á tilteknum stöðum á til-
teknum tímum.
Svava bendir á til viðbótar að hægt
væri að draga úr hámarkshraða, en
þeirri aðferð hafi verið beitt erlendis.
Önnur leið sé að draga úr umferðar-
magni. „Sumar borgir hafa til
dæmis haft það þannig að einhverja
ákveðna daga mega bara keyra
bílar sem eru með oddatölur aftast
í bílnúmerinu,“ segir Svava. Enn ein
leiðin væri að setja takmarkanir á
þunga bifreiða, því þyngri bifreiðir
þyrla upp meira ryki. jonhakon@365.is
Varhugavert að fara út að
skokka á verstu dögum
Sex daga í ár hefur svifryk í Reykjavík farið yfir sólarhringsheilsumörk. Svif-
rykið getur aukið líkur á blóðtöppum og hjartaáföllum. Lagasetningu þarf til
að hægt sé að draga úr umferð. Unnið er að breytingum á umferðarlögum.
Ráðgert er að sveitarfélög geti tekið gjald vegna nagla. FRÉTTABLAÐIÐ/AnTon
1 3 . m a r s 2 0 1 8 Þ r i Ð J U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð
1
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
C
-6
5
F
8
1
F
2
C
-6
4
B
C
1
F
2
C
-6
3
8
0
1
F
2
C
-6
2
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K