Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 2
Veður Víða mun rigna með morgninum, en þegar líður á daginn munu vindar snúast og létta mun til á austurhluta landsins. Vestanlands má reikna með skúrum eða slydduéljum. sjá síðu 24 TILBOÐ Nú er tilboð á MS rjóma í öllum verslunum. Fáðu góðar hugmyndir á gottimatinn.is.  Alþjóðlegur dagur gegn kynþáttamisrétti Nemendur úr Oddeyrarskóla gengu fylktu liði frá skólanum sínum og niður að Ráðhúsi Akureyrar í gær til að faðma það. Ástæðan var sú að í gær var alþjóðlegur dagur gegn kynþáttamisrétti. Nemendurnir héldust í hendur og mynduðu keðju umhverfis húsið. Alþjóðlegur dagur gegn kynþáttamis- rétti er haldinn ár hvert. Um alla Evrópu eru haldnir viðburðir undir yfirskriftinni Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti. Fréttablaðið/auðunn níelsson stjórnsýsla „Bæjarstjórinn svarar ekki skilaboðum, hann vill ekkert við okkur tala. Það er bara af því að við erum litlir karlar,“ segir Valgeir Jónasson, formaður húsfélags Þorra- sala 9-11 í Kópavogi. Valgeir segir að eftir að Þorrasalir 9-11 voru byggðir hafi aðkeyrslu að bílakjallara næstu blokkar, Þorrasala 13-15, verið breytt þannig að hún sé milli blokkanna tveggja í stað þess að vísa að götunni. Húsfélagið kærði Kópavogsbæ og vann málið fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála sem felldi úr gildi ákvörð- un Kópavogsbæjar um að veita byggingarleyfi varðandi aðkomuna að bílageymslunni og felldi sömu- leiðis úr gildi þá ákvörðun bæjarins að synja kröfu húsfélagsins á númer 9-11 um að beita nágranna þeirra þvingunarúrræðum vegna inn- keyrslunnar. „Þegar þeir koma upp brekkuna úr bílakjallaranum hjá sér þá lýsast upp íbúðir á neðstu hæðunum í Þorrasölum 11. Og svo er náttúrlega ónæði af því þegar hurðin skellist,“ segir Valgeir um þau óþægindi sem fylgi hinni breyttu aðkomu að bíla- geymslunni. Þá eigi að vera göngu- stígur og aðkoma fyrir slökkviliðs- bíla milli blokkanna. „En það var bara klippt af stígnum. Þetta er ekki eins og það á að vera.“ Valgeir segir að íbúarnir í Þorra- sölum 9-11 hafi varað við því áður en ráðist var í framkvæmdir í nágranna- blokkinni að innkeyrslan í bíla- kjallarann stæðist ekki lög. Enda hafi það komið á daginn. Kópavogsbær vildi síðan að úrskurðarnefndin tæki málið fyrir að nýju en því var hafnað. „Síðan höfum við ítrekað reynt að hafa samband við Kópavogsbæ en þau hunsa íbúana sem hér eru í 35 íbúðum,“ segir Valgeir um núverandi stöðu málsins og kveður þannig ekk- ert hafa þokast. „Þeir ætla bara að svæfa málið.“ Valgeir segir kröfuna einfaldlega þá að innkeyrslan verði færð til þess horfs sem upphaflegt skipulag og leyfi hafi gert ráð fyrir. „Það er alveg hægt að gera það,“ segir hann um slíka framkvæmd. „Og Kópavogsbær ætti alveg absalútt að bera kostnað- inn af því. Við héldum aðalfund í húsfélaginu og þar var einróma sam- þykkt að halda áfram með málið. En helst vildum við ná samkomulagi við bæinn því það er ekkert nema kostn- aður sem fylgir þessu.“ Fréttablaðið spurðist fyrir um það hjá Kópavogsbæ hvernig málið horfi við bæjaryfirvöldum og hvað þau hyggist gera. „Málið er í vinnslu hjá Kópavogsbæ og verða viðbrögð bæjarins við úrskurðinum kynnt málsaðilum á næstunni,“ er svarið frá bæjarskrifstofunni. gar@frettabladid.is Telja sig vera hunsuð eftir sigur í kærumáli Íbúar í fjölbýlishúsi í Þorrasölum segja Kópavogsbæ ekkert við þá tala eftir að þeir unnu kærumál gegn bænum vegna ólöglegrar aðkomu sem leyfð var að bílakjallara nágrannablokkar. Bæjaryfirvöld segjast vera að skoða málið. aftan við Valgeir Jónasson sést í innkeyrsluna að Þorrasölum 13-15 sem vísar að blokkinni þar sem hann er húsfélagsformaður. Fréttablaðið/anton brink Kópavogsbær ætti alveg absalútt að bera kostnaðinn. Valgeir Jónasson, formaður húsfélags- ins í Þorrasölum 9-11 VIðsKIPtI Nýjasta tölublað hins íslenska Glamour, þar sem tón- listarkonan Björk Guðmundsdóttir er í forsíðuviðtali, er boðið til sölu á eBay fyrir ríflega þrefalt söluverð þess á Íslandi. Í viðtalinu ræðir Björk meðal annars um #metoo. „Ef ég ætti að segja eitthvað við yngri konur og þykjast vera reynd – ég er ekki mikið til í að vera einhver fyrirmynd – en kannski mest vegna þess að ungar konur hafa beðið mig um að tala, þá finnst mér mikilvægt að hlusta á alla. Ekki bara þolendur heldur líka gerendur og aðrar kynslóðir,“ segir Björk meðal annars í viðtalinu. Hér heima er blaðið selt á rúmar 2 þúsund krónur en á eBay er verðið 70 dollarar eða andvirði 7 þúsund króna. Björk á aðdáendur um víða veröld og því margir sem ásælast eintak þrátt fyrir íslenskuna. – jhh Glamour þrefalt dýrara á eBay KjaraMál Grunnskólakennarar felldu í gær kjarasamning sinn við Samband íslenskra sveitarfélaga. Rúm 68 prósent félagsmanna sögðu nei í atkvæðagreiðslunni. Alls voru 4.697 manns á kjörskrá og greiddu rúm 80 prósent þeirra atkvæði eða 3.973 félagsmenn. 2.599 greiddu atkvæði gegn samningnum. „Auðvitað eru það  alltaf von- brigði þegar það sem maður leggur fram nær ekki fram að ganga. Við hefðum ekki fallist á þennan kjara- samning hefðum við haldið að lengra yrði komist,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara. Samningurinn kvað meðal annars á um breytingar á launum, að horfið yrði frá vinnumati, greitt yrði fyrir sértæk verkefni og að tími til ann- arra faglegra starfa yrði minnkaður. Ólafur segir að strax í upphafi hafi verið þung herferð gegn samn- ingnum. Hún hafi átt rætur að rekja til Framsóknarflokksins í Reykja- vík. Tveir verðandi stjórnarmenn í félaginu séu á lista hjá flokknum í borginni. Vísar Ólafur þar meðal annars til Ásthildar Lóu Þórsdóttur en hún skipar þriðja sæti á lista Framsóknarflokksins í borginni. Aðspurður um hvað taki nú við segir Ólafur að það muni skýrast á næstunni. „Við hittum samninganefnd sveitar félaganna á morgun. Núver- andi stjórn mun gera allt sem hún getur til að ný stjórn taki við slíku búi að hún geti náð hámarksárangri í því verkefni sem fram undan er,“ segir Ólafur. – jóe Framsókn hafi herjað á samninginn Ólafur loftsson, formaður Félags grunn- skólakennara. 2 2 . M a r s 2 0 1 8 F I M M t u D a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 4 -C B E 8 1 F 4 4 -C A A C 1 F 4 4 -C 9 7 0 1 F 4 4 -C 8 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.