Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 32
 4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . m A R s 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R NoRÐuRLANd Tveir þingmenn Norðausturkjör- dæmis eru sam- mála um að allar forsendur séu fyrir góðu mannlífi og öflugu atvinnulífi á næstu árum á Norðurlandi. Anna Kolbrún Árnadóttir sett-ist á þing fyrir Miðflokkinn á síðasta ári en hún hefur búið á Akureyri stærstan hluta ævi sinnar. Hún segir helstu styrkleika Norður- lands liggja m.a. í frjóu mannlífi auk þess sem þau séu svo lánsöm að hafa góða skóla á öllum skólastigum sem styðji hverjir aðra bæði í formlegu og óformlegu samstarfi. „Þetta sam- starf leiðir svo af sér góða tengingu við atvinnulíf, menningu, ferða- mennsku og margt fleira.“ Hún sér fyrir sér góðan vöxt á svæðinu næsta áratuginn en þar þurfi þó allir hagaðilar að vinna áfram saman og móta sameigin- lega stefnu þannig að svæðið nái sem bestri stöðu. „Mér finnst mest spennandi að þróa svæðið þannig að vel verði staðið að fjölskyldum og að við tökum utan um einstaklinga frá vöggu til grafar. Að allir njóti aðstoðar þurfi þeir á henni að halda og að einstaklingar upplifi sig sem hluta af heild. Ég vil gjarna sjá fleiri fyrirtæki á svæðinu með fjölbreytta starfsemi og samhliða því vil ég sjá aukna nýsköpun sem laðar þá að fleiri til þess að búa hér og heldur vonandi í alla þá sem annars myndu flytja burt. Það finnst mér mest spennandi og jafnframt töluverð áskorun.“ Hún segir Norðlendinga með ein- dæmum hjálpsamt fólk. „Ef einhver festir sig t.d. í skafli á bílnum þá eru um leið komnir allavega tveir eða þrír jeppar til að draga viðkomandi af stað. Þetta sést sjaldan á höfuð- borgarsvæðinu er ég viss um.“ Aðspurð hvort hún geti nefnt nokkrar faldar perlur sem íslenskir ferðalangar ættu að kynna sér segist hún ekki beint vilja auglýsa þær. „En ætli það sé ekki auðvelt að benda á öll litlu söfnin sem eru á Norður- landi. Eins er hægt að velja að pakka nesti og fara í sveitaferð, svo eru ýmiss konar kaffihús og veitinga- staðir sem öll hafa sína sérstöðu.“ Háskólinn í lykilhlutverki Njáll Trausti Friðbertsson hóf formlega afskipti af bæjarmálum á Akureyri árið 2010 sem varabæjar- fulltrúi og fjórum árum síðar sem bæjarfulltrúi. Hann settist á þing árið 2016 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og segir stóra málið vera uppbygg- ingu meginflutningskerfis raforku á Norðurlandi. „Sú ótrúlega staða sem komin er upp hér á Norðurlandi í þessum málaflokki er með hreinum ólíkindum. Lélegt dreifikerfi hefur haft afar slæm áhrif á atvinnuupp- byggingu á svæðinu undanfarinn áratug og það þarf að laga strax.“ Aðspurður um helstu styrkleika Norðurlands nefnir hann fyrst Háskólann á Akureyri sem gegni lykilhlutverki í framþróun svæðisins og um leið mikilvægu hlutverki á landsbyggðinni. „Hlutverk skólans nú þegar við förum inn í fjórðu iðnbylt- inguna verður stórt og mikilvægt og vonandi tekst að byggja upp frekara nám sem snýr að tækni og raun- greinum á næstu misserum. Okkar góðu framhaldsskólar gegna líka stóru hlutverki í þessu samhengi.“ Hann nefnir einnig ferðaþjónust- una sem hefur styrkst ásamt öllum innviðum hennar. „Við erum að sjá mun fjölbreyttari þjónustu við ferðamenn en áður og það hefur gefist vel. Menningarlífið hefur einn- ig verið öflugt á svæðinu og er mikil gróska á þeim vettvangi.“ Allar forsendur eru fyrir hendi fyrir góðu mannlífi og öflugu atvinnulífi á næstu árum á Norður- landi segir Njáll. „Það eru gríðarlega miklir möguleikar í uppbyggingu ferðaþjónustunnar á svæðinu og þá gegna góðar samgöngur inn á svæðið lykilhlutverki og þá sér- staklega ef það á að nást árangur við að byggja upp heilsársferða- þjónustu á svæðum sem eru lengst frá Keflavíkur flugvelli. Það er gaman að fylgjast með öflugri uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér á Norður- landi með fjölbreyttu úrvali afþrey- ingar fyrir ferðamenn.“ Hann nefnir nokkrar náttúru- perlur sem hann hvetur Íslendinga til að skoða á ferð sinni um Norðurland. „Þar má m.a. nefna Flateyjardal, Grímsey, Fjörðurnar og Laxárdal. Ekki má síðan gleyma norðausturhorni landsins sem mig grunar að margir Íslendingar hafi ekki kynnt sér, t.d. Melrakkasléttu og Þistilfjörð. Það er af nógu að taka og fjölbreytileiki svæðisins til ferða- laga er mikill.“ Tækifærin eru til staðar á Norðurlandi Anna Kolbrún Árnadóttir, þingkona mið- flokksins. mYNd/ERNIR Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður sjálfstæðis- flokks. mYNd/AuÐuNN Icelandair Hótel Akureyri | Þingvallastræti 23 | Akureyri | 518 1000 Lifa borða njóta Lífsins lystisemdir bíða þín á Icelandair hótel Akureyri. Njóttu góðrar hvíldar í björtu herbergi með fallegu útsýni yfir bæinn og gómsætrar máltíðar á glæsilega veitingahúsinu okkar, Aurora Restaurant. Við tökum vel á móti þér! Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 4 -D 0 D 8 1 F 4 4 -C F 9 C 1 F 4 4 -C E 6 0 1 F 4 4 -C D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.