Fréttablaðið - 22.03.2018, Side 17
Þorvaldur
Gylfason
Í dag Vinur minn einn, hátt settur, mik-ils metinn, víðförull og þaul-reyndur embættismaður, sagði
við mig yfir kvöldverði: Það má ekki
ýkja spillinguna á Íslandi. Það má ekki
bera spillinguna hér saman við Afríku
þar sem menn eru drepnir í stórum
stíl. Slík skot geiga. Ég tók athugasemd-
ina ekki til mín. Ég hef alltaf reynt að
virða reglu Gandís: Aldrei að ýkja, þess
þarf ekki. Samtal okkar vinanna fer hér
á eftir, við stiklum á stóru.
Er Ísland of lítið?
NN: Vandinn hér er ekki spilling,
heldur fólksfæð. Við erum einfaldlega
of fá.
ÞG: Ekki endilega. Fólksfæðin þarf
ekki að vera vandamál. Reynslan
utan úr heimi virðist sýna að lítil, þ.e.
fámenn lönd eru yfirleitt óspilltari en
stærri og fjölmennari lönd. Spillingin í
Indlandi, Indónesíu, Kína og Rússlandi
– 40% mannkyns búa í þessum fjórum
löndum! – stafar ekki af fólksfæð þar,
öðru nær. Í litlum löndum þar sem
allir vita allt um alla er auðveldara að
halda spillingu í skefjum en í stórum
löndum þar sem menn geta skýlt sér
bak við fjarlægðina og fjöldann.
NN: Já, en sjáðu t.d. Hæstarétt þar
sem einn dómari gnæfir yfir aðra. Í
stærri löndum geta einstakir menn
ekki náð slíkri stöðu því þar eru fleiri
um hituna.
ÞG: Nú jæja? Má ég minna á Earl
Warren, forseta Hæstaréttar Banda-
ríkjanna 1953-1969? – sem hafði verið
varaforsetaframbjóðandi repúblikana
1948. Hann þótti njóta slíkrar virð-
ingar að honum væri bezt treystandi
til að stýra nefndinni sem var skipuð
til að rannsaka morðið á Kennedy
forseta í Dallas 1963. Skýrslan reyndist
röng í grundvallaratriðum. Banda-
ríkjaþing hafnaði henni 1978 og lýsti
því yfir að Kennedy hefði líklega verið
fórnarlamb samsæris svo sem flestir
Bandaríkjamenn hafa talið trúlegast
frá öndverðu þvert á niðurstöðu
Warren-nefndarinnar. Og taktu Pútín
Rússlandsforseta sem stefnir á 24ra ára
samfellda setu á valdastóli án þess að
blikna. Og sjáðu Xi Jinping sem fékk
þingið í Beijing til að breyta stjórnar-
skránni svo hann getið setið á forseta-
stóli til æviloka. Ekki er fámenninu um
að kenna þar austur frá.
Spilling grefur undan lýðræði
NN: Nei, en aðalatriðið er að spillingin
hér heima er ekki stórvægileg og ekki
heldur illkynja eins og víða í Afríku
og Rússlandi þar sem blaðamenn og
stjórnarandstæðingar eru drepnir í
hrönnum. Okkar spilling er miklu
vægari, hér er enginn drepinn, heldur
eru menn í versta falli frystir úti …
ÞG: … Þú átt kannski við „andrúms-
loft dauðans“ eins og Morgunblaðið
lýsti því 24. júní 2006? …
NN: … og auðvitað bitnar t.d. klíku-
skapur í mannaráðningum, mismunun
í úthlutun aflaheimilda, einkavina-
væðing, sjálftaka o.fl. á saklausu fólki
og landinu öllu.
ÞG: Segðu. Nápotið er ekkert grín.
NN: Enda hefur ríkið oftar en einu
sinni verið dæmt til að greiða fórnar-
lömbum skaðabætur vegna spilltra
embættaveitinga í dómskerfinu og
kallað m.a. yfir sig hirtingu mannrétt-
indanefndar Sameinuðu þjóðanna og
Mannréttindadómstóls Evrópu hvað
eftir annað – og fordæmingu kjósenda
skv. könnunum Gallups og MMR. En
enginn var drepinn.
ÞG: Rétt. En eigum við þá að þegja
um spillinguna hér heima úr því að
hún kostar minna hér en í Afríku, Rúss-
landi og Kína? Eigum við ekki heldur
að ræða opinskátt um afturförina sem
er smám saman að birtast umheim-
inum og okkur sjálfum í erlendum
skýrslum sem sýna að spilling á Íslandi
mælist mun meiri en annars staðar
um Norðurlönd og vitna um lýðræði
sem hefur látið undan síga og mælist
nú einnig veikara hér en annars staðar
á Norðurlöndum? Nei, við verðum
að ræða málið opinskátt frekar en í
hálfum hljóðum. Annars getum við
varla endurheimt stöðu okkar við hlið
annarra Norðurlanda. Ef við þegjum
eykst hættan á að við höldum áfram að
dragast aftur úr.
Fyrirmynd annarra landa?
NN: Ísland er í grundvallaratriðum
gott land þótt margt megi betur fara.
Við þurfum að horfa áfram veginn.
ÞG: Já, vissulega, en hrunið afhjúp-
aði djúpar sprungur. Og Panama-
skjölin, maður lifandi. Og …
NN: Auðvitað var það gersamlega
galin hugmynd að Ísland gæti orðið
fyrirmynd annarra landa í bank-
arekstri eins og sumir sögðu fram að
hruni. Til þess erum við of fá. Og það
er jafngalið að hugsa sér að íslenzkir
dómstólar geti með réttu orðið öðrum
löndum fyrirmynd með því að dæma
alla þessa bankamenn í fangelsi.
Hvaðan skyldu 340.000 hræðum
norður í hafi koma slíkir yfirburðir
umfram önnur lönd? Í lögfræði!
ÞG: Þú meinar. Tveir þriðju hlutar
viðmælenda Gallups vantreysta
dómskerfinu skv. glænýrri könnun.
NN: En maturinn hér er góður.
Peking-önd í Reykjavík. Á Rauðarár-
stígnum!
Aldrei að ýkja
VANTAR
GARÐHÚSGÖGN?
Taktu þér greiðslufrí með Kortaláni og láttu drauminn rætast.
Kynntu þér málið. Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður | +354 525 2000 | valitor@valitor.is | valitor.com
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F i M M T u d a g u R 2 2 . M a R S 2 0 1 8
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
4
-D
0
D
8
1
F
4
4
-C
F
9
C
1
F
4
4
-C
E
6
0
1
F
4
4
-C
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K