Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 20
Fram - ÍBV 33-34
Markahæstir: Arnar Birkir Hálfdánsson 12,
Andri Þór Helgason 8, Valdimar Sigurðs-
son 6 - Sigurbergur Sveinsson 12/4, Andri
Heimir Friðriksson 6, Agnar Smári Jónsson
6, Kári Kristján Kristjánsson 4/2, Elliði Snær
VIðarsson 3.
Selfoss - Víkingur 37-26
Markahæstir: Árni Steinn Steinþórsson 8,
Haukur Þrastarson 6, Teitur Örn Einarsson
6/1, Hergeir Grímsson 4, Atli Ævar Ingólfs-
son 3, Richard Sæþór Sigurðsson 3, Elvar
Örn Jónsson 3 - Jón Hjálmarsson 7, Birgir
Már Birgisson 7, Egidijus Mikalonis 4.
Stjarnan - FH 26-38
Markahæstir: Ari Magnús Þorgeirsson 5/1,
Garðar B. Sigurjónsson 4, Leó Snær Péturs-
son 4, Birgir Steinn Jónsson 3 - Óðinn Þór
Ríkharðsson 12, Einar Rafn Eiðsson 11/1,
Jóhann Birgir Ingvarsson 5, Ásbjörn Frið-
riksson 5/2.
Haukar - Valur 22-29
Markahæstir: Adam Haukur Baumruk 5, Há-
kon Daði Styrmisson 4/2, Atli Már Báruson
3, Jón Þorbjörn Jóhannsson 2, Heimir Óli
Heimisson 2 - Magnús Óli Magnússon 11,
Vignir Stefánsson 6, Anton Rúnarsson 4/1,
Sveinn Aron Sveinsson 3.
Grótta - Fjölnir 30-35
Markahæstir: Gunnar Valdimar Johnsen 6,
Sveinn Jose Rivera 5, Pétur Árni Hauksson
5/1, Júlíus Þórir Stefánsson 4 - Kristján Örn
Kristjánsson 7, Sveinn Jóhannsson 7, Bjarki
Lárusson 5, Brynjar Loftsson 5/1, Andri Berg
Haraldsson 4/3, Sigfús Páll Sigfússon 3.
Afturelding - ÍR 43-21
Markahæstir: Gestur Ólafur Ingvarsson 7/1,
Böðvar Páll Ásgeirsson 5, Pétur Júníusson
4, Kristinn Hrannar Bjarkason 4, Ernir Hrafn
Arnarson 4/1, Gunnar Kristinn Þórsson 4 -
Orri Freyr Þorkelsson 7/4.
Efri
ÍBV 34
Selfoss 34
FH 34
Valur 31
Haukar 29
Afturelding 23
Neðri
Stjarnan 21
ÍR 18
Grótta 13
Fram 12
Fjölnir 10
Víkingur 5
Nýjast
Olís-deild karla
Keflavík - Haukar 90-70
Stigahæstar: Brittanny Dinkins 40/11 frá-
köst/6 stoðsendingar, Birna Valgerður Ben-
ónýsdóttir 15, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir
9, Thelma Dís Ágústsdóttir 7/11 stoðsend-
ingar - Helena Sverrisdóttir 21/8 fráköst,
Ragnheiður Björk Einarsdóttir 15, Whitney
Frazier 13/7 fráköst/6 stoðsendingar.
Valur - Snæfell 58-59
Stigahæstar: Aalyah Whiteside 20/14 frá-
köst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 15/13 frá-
köst, Hallveig Jónsdóttir 13, Dagbjört Dögg
Karlsdóttir 5/6 stoðsendingar - Kristen
McCarthy 24/14 fráköst/7 stoðsendingar/6
stolnir, Alda Leif Jónsdóttir 11, Berglind
Gunnarsdóttir 7, Rebekka Rán Karlsdóttir 7.
Skallagr. - Stjarnan 89-69
Stigahæstar: Carmen Tyson-Thomas 33/15
fráköst/8 stoðsendingar/5 stolnir, Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir 18/7 fráköst/6 stoð-
sendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10
- Danielle Rodriguez 40/12 stoðsendingar/5
stolnir, María Lind Sigurðardóttir 10/8
fráköst.
Breiðablik - Njarðvík 59-77
Stigahæstar: Whitney Knight 24, Sóllilja
Bjarnadóttir 9, Birgit Ósk Snorradóttir 9,
Telma Lind Ásgeirsdóttir 9/5 stolnir - Sha-
londa Winton 31/17 fráköst/6 stoðsend-
ingar, Ína María Einarsdóttir 13, Erna Freydís
Traustadóttir 9, Hulda Bergsteinsdóttir 8/9
fráköst.
Efri
Haukar 40
Keflavík 38
Valur 36
Skallagrímur 28
Neðri
Stjarnan 28
Snæfell 22
Breiðablik 22
Njarðvík 2
Domino’s-deild kvenna
Undankeppni EM 2018
Ísland 30-30 Slóvenía
(16-17)
Mörk Íslands Helena Rut Örvars-
dóttir 10, Þórey Rósa Stefánsdóttir
6, Karen Knútsdóttir 4/3, Birna Berg
Haraldsdóttir 4, Hildigunnur Einars-
dóttir 2, Ester Óskarsdóttir 1, Eva
Björk Davíðsdóttir 1, Arna Sif Páls-
dóttir 1, Perla Ruth Albertsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 11,
Guðný Jenný Ásmundsdóttir 5.
Handbolti Íslenska kvennalands-
liðið var fjórum sekúndum eða einu
stoppi í varnarleiknum frá því að
vinna fyrsta leik sinn í undankeppni
EM 2018 í handbolta í gærkvöldi í
30-30 jafntefli gegn Slóveníu. Sigur
hefði reynst liðinu afar mikilvægur
í baráttunni um að ná þriðja sæti
riðilsins sem getur komið liðum inn
á EM en þess í stað er Ísland áfram á
botni riðilsins með eitt stig.
Kaflaskiptur leikur
Íslenska liðið átti flotta kafla og
skiptust liðin á mörkum lengst af en
tapaðir boltar voru að kosta liðið og
leiddu Slóvenar í hálfleik.
Það forskot fór upp í fjögur mörk
um miðbik seinni hálfleiks en þá
kom kraftur í íslenska liðið sem
virtist ætla að fleyta því til sigurs.
Karen Knútsdóttir kom Íslandi yfir
þegar tuttugu sekúndur voru eftir
en Slóvenar svöruðu með marki af
línunni þegar fjórar sekúndur voru
eftir. Skot Helenu Rutar Örvars-
dóttur er lokaflautið gall fór fram
hjá og skildu liðin því jöfn.
„Þetta var mjög sárt, við vorum
með leikinn í okkar höndum á loka-
kaflanum en þær ná að bjarga stigi
hérna. Við spiluðum þetta alveg
eins og við settum upp, spiluðum
hraða miðju og náðum að finna fín
skot en það dugði ekki til,“ sagði
Helena Rut sem var markahæst í
íslenska liðinu með tíu mörk.
„Þær voru svolítið óskipulagðar í
vörninni og við fengum mörg mörk
upp úr því að keyra strax hratt á
þær.“
Verðum að spila þessa vörn
allan leikinn
Íslenska liðið átti frábæran 6-1 kafla
um miðbik seinni hálfleiks þegar
það náði forskotinu eftir að hafa
verið fjórum mörkum undir. Fyrst
og fremst byrjaði áhlaupið í varnar-
leiknum og markvörslu.
„Þegar við náum færslunum
okkar rétt þá erum við með stór-
hættulega vörn og þær voru að
tapa nokkuð mörgum boltum. Það
vantar bara að halda þessari vörn í
sextíu mínútur en ekki hluta leiks-
ins eins og í dag,“ sagði Helena.
„Það var flottur kafli en við fáum
of mikið af mörkum á okkur að
mínu mati og það er margt sem má
laga.“
Karen Knútsdóttir tók í sama
streng og Helena en var þó ánægð
með spilamennskuna.
„Miðað við hvernig leikurinn spil-
aðist er afar sárt að hafa bara fengið
stig en ég er samt stolt af liðinu.
Við spiluðum vel á báðum endum
vallarins og gáfumst aldrei upp.
Síðustu tíu mínútur leiksins var ég
alveg viss um að við myndum taka
þennan leik en við vorum ekki nógu
duglegar að refsa þeim fyrir þeirra
mistök.“ kristinnpall@frettabladid.is
Ekki nógu duglegar að refsa
Íslenska kvennalandsliðið var nokkrum sekúndum frá því að koma sér í vænlega stöðu í baráttunni um
3. sæti síns riðils í svekkjandi jafntefli í gær. Leikurinn var kaflaskiptur og Íslandi mistókst að refsa Slóveníu.
Karen Knútsdóttir sneri aftur í íslenska landsliðið í gær eftir meiðsli. Hún skoraði fjögur mörk í 30-30 jafntefli gegn Slóveníu. FRéttABlAðið/ERNiR
Handbolti Agnar Smári Jónsson
tryggði ÍBV fyrsta deildarmeistara-
titilinn í handbolta karla í sögu
félagsins þegar hann skoraði sigur-
mark liðsins gegn Fram í þann
mund sem leiktíminn rann út,
33-34.
Flest benti til þess að Selfoss yrði
deildarmeistari. Þeir unnu öruggan
sigur á Víkingi, 37-26, og svo virtist
sem Fram ætlaði að gera lærisvein-
um Patreks Jóhannessonar stóran
greiða. Framarar voru yfir nær
allan tímann gegn Eyjamönnum en
misstu tökin á leiknum undir lokin.
Bikarmeistarar ÍBV sóttu á, Sigur-
bergur Sveinsson jafnaði metin í
33-33, Aron Rafn Eðvarðsson varði
svo frá Arnari Birki Hálfdánssyni og
í lokasókninni skoraði Agnar Smári
sigurmark Eyjamanna sem fögnuðu
vel og innilega öðrum titlinum sem
liðið vinnur í mánuðinum.
Í úrslitakeppninni mætir ÍBV ÍR
sem steinlá fyrir Aftureldingu í gær,
43-21. Selfoss mætir Stjörnunni sem
tapaði fyrir FH, 26-38.
FH-ingar mæta Aftureldingu
í 8-liða úrslitunum, líkt og fyrir
tveimur árum. Þá fóru Mosfellingar
áfram.
Valur vann Hauka, 22-29, í
úrslitaleik um 4. sætið. Valsmenn
voru sterkari aðilinn í leiknum og
tryggðu sér 4. sætið og heimavallar-
rétt í einvíginu gegn Haukum. – iþs
Eyjamenn deildarmeistarar í fyrsta sinn
Eyjamenn fagna deildarmeistaratitlinum vel og innilega. FRéttABlAðið/ERNiR
2 2 . m a r S 2 0 1 8 F i m m t U d a G U r20 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
4
-E
9
8
8
1
F
4
4
-E
8
4
C
1
F
4
4
-E
7
1
0
1
F
4
4
-E
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K