Fréttablaðið - 22.03.2018, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Brynhildur klæðist gjarnan svörtum fötum og leðurjakka þegar hún spilar á tónleikum. MYND/EYÞÓR
Brynhildur Oddsdóttir, söng-kona og gítarleikari hljóm-sveitarinnar Beebee and the
Bluebirds, hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Hljómsveitin gaf
nýlega út sína aðra plötu, Out of
the dark, sem hefur fengið afar
góðar viðtökur. „Á föstudaginn
höldum við tónleika á Græna hatt-
inum á Akureyri. Við erum mest
komin út í rokktónlist en í grunn-
inn er Beebee and the Bluebirds
blús-, rokk- og sálarband,“ segir
Brynhildur.
Hljómsveitin hefur komið víða
við og spilað á tónlistarhátíðum á
borð við Icelandic Airwaves, Blús-
hátíð Reykjavíkur, Drangey Music
Festival, auk hátíða erlendis. Bryn-
hildur segir spennandi tíma fram
undan hjá sveitinni og stefnan
er að spila á tónlistarhátíðum í
sumar.
Spáir þú í hverju þú klæðist þegar
þú kemur fram? „Já, algjörlega.
Ég er mest í rokkuðu lúkki og þá
helst fötum úr leðri eða með kögri.
Ég er mikið í svörtum fötum eða
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
CHANEL-kynning í Sigurboganum
21.–24. mars
Við kynnum nýja farðann frá Chanel, Le Teint Ultra.
Ný kynslóð af farða sem gefur góða þekju,
er mjög léttur og endist frá morgni til kvölds.
Einnig kynnum við nýja ilminn Rouge Coco Intense
og varalitinn Rouge Coco Lip Blush sem hægt
er að nota bæði á varir og kinnar.
Gréta Boða verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf.
20%
afsláttur
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt,
fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
glans. Stundum er ég með áberandi
skartgripi til að poppa upp lúkkið.
Ég held að heildarsvipurinn skipti
máli og sé í samræmi við hvað
maður gerir. Ég fylgi ekki algjörlega
nýjustu tískustraumum heldur vil
frekar skapa minn eigin stíl.“
Hvernig myndir þú lýsa þínum
fatastíl? „Mér finnst gaman að
vera í götustíl, t.d. svörtum buxum
eða gallabuxum, leðurjakka og
Dr. Martens skónum mínum. Svo
er skemmtilegt að poppa þennan
stíl upp og gera hann aðeins meira
fansí með því að klæðast töff gervi-
feldi yfir. Dagsdaglega klæði ég mig
gjarnan á þennan hátt og svo finnst
mér gervifeldurinn gera mig aðeins
fínni.“
Hvar kaupir þú föt? „Hér og
þar. Ég kaupi föt sem mér finnst
falleg og það skiptir mig ekki máli
úr hvaða búð þau eru. Ég fer oft
í second-hand búðir og á fata-
markaði. Ég kaupi helst skó frá
góðu merki, mér finnst mikilvægt
að eiga góða skó.“
Finnst þér skemmtilegt að kaupa
föt? „Já, alltof gaman. Sem dæmi
þá á ég allt of mikið af jökkum. Ég
held ég sé með jakkablæti. Það er
rosalegt. Ég er nýbúin að kaupa mér
tvo gervipelsa þótt ég eigi skrilljón
jakka. Falleg yfirhöfn setur líka
punktinn yfir i-ið, ekki síst í köldu
veðri. Mér hefur líka alltaf þótt
gaman að kaupa mér skó.“
Hvaða litum klæðist þú helst?
„Svörtum og síðan er gaman að
hafa einhvern lit með sem sker sig
úr, t.d. rauðan. Ég er líka mikið fyrir
föt í felulitum og á jakka, kjóla og
buxur með þannig mynstri.“
Áttu þér uppáhalds fataverslun?
„Ég fer bara inn í þá búð sem er
með falleg föt í útstillingarglugg-
anum. Mér finnst Gyllti kötturinn
flott búð og Spútnik líka.“
Áttu uppáhaldsskó? „Dr. Martens
skórnir mínir eru í algjöru uppá-
haldi hjá mér. Ég fer varla úr þeim.“
Notar þú fylgihluti? „Já, ég er
mikið fyrir hálsmen, helst stór og
áberandi. Mér finnst þau þurfa að
vera með, ekki síst ef ég er í lát-
lausum fötum.“
Bestu fatakaupin? „Tvímælalaust
tveir jakkar sem ég fékk á klink úti
í Bandaríkjunum.“
Áttu flík sem þú getur ekki verið
án? „Svörtu buxurnar mínar frá
Freddy’s. Þær eru algjörlega ómiss-
andi í minn fataskáp.“
Framhald af forsíðu ➛
Brynhildur er hrifin af götustíl og fötum í felulitum. MYND/EYÞÓR
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . M A R S 2 0 1 8 F I M MT U DAG U R
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
5
-1
1
0
8
1
F
4
5
-0
F
C
C
1
F
4
5
-0
E
9
0
1
F
4
5
-0
D
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K