Fréttablaðið - 22.03.2018, Síða 35
KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 2 2 . m a r s 2 0 1 8 NoRÐURLAND
Akureyringar kunna þá list öðrum betur að bera fram girnilegar pulsur og ham-
borgara. Í bílalúgum eru til dæmis
afgreiddar djúpsteiktar pulsur
með óvæntu meðlæti eins og
rauðkáli, osti, kryddi, frönskum og
kokteilsósu og eru algjört lostæti.
Vitaskuld er líka hægt að panta
hefðbundið pulsumeðlæti í pulsu-
brauðið; lauk, tómatsósu, sinnep
og remúlaði, en hitt sérakureyrska
er einstaklega ljúft og sælt eitt og
sér.
Hamborgari með girnilegum,
djúpsteikum frönskum kartöflum
á milli er annar akureyrskur sæl-
kerabiti og hjá mörgum þekktur
sem „Akureyringur“ enda ómiss-
andi bragðupplifun á ferð um
Norðurland.
Ómissandi
sælkerastopp
Hrísey hefur löngum verið kölluð perla Eyjafjarðar en hún býður m.a. upp á fallega
náttúru, skemmtilega gistimögu-
leika og ýmsa afþreyingu fyrir fólk
á öllum aldri. Í eyjunni er m.a.
hægt að fara í margar skemmti-
legar gönguferðir, bregða sér upp
á traktor með heimamönnum í
túr um eyjuna, heimsækja hús
Hákarla-Jörundar sem er eftir-
minnileg upplifun, kíkja í sund-
laugina og rabba við heimamenn
eða bara njóta friðsældar og fjöl-
breytts fuglalífs á þessum einstaka
stað. Matvöruverslun er í Hrísey
auk veitingastaða, leiksvæða og
frisbígolfvallar.
Ár hvert er haldin Hríseyjarhátíð
en hún fer fram í júlí og stendur
yfir heila helgi. Boðið er upp á
fjölskylduvæna dagskrá sem felst
m.a. í óvissuferðum um eyjuna,
fjöruferð, kvöldvöku, varðeldi og
söng. Hríseyjarhátíðin 2018 verður
haldin helgina 13. til 14. júlí.
Ferjan Sævar siglir til Hríseyjar
reglulega allt árið frá Árskógssandi
og tekur siglingin aðeins um 15
mínútur.
Nánari upplýsingar má m.a. finna á
www.hrisey.is.
Perla Eyjafjarðar
Mývatn er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins, enda náttúran,
vatnið sjálft og umhverfið engu
líkt. Á góðum sumardögum koma
fleiri ferðamenn að Mývatni en
til Þingvalla en á veturna snýst
dæmið við. Við vatnið eru vegir
og merktar gönguleiðir sem leiða
fólk að áhugaverðum stöðum og
er hægt að njóta landslagsins,
skoða náttúrufyrirbæri eða
stunda plöntu- og fuglaskoðun.
Mývatn er einmitt frægt fyrir
fjölbreytt fuglalíf en talið er að
á svæðinu haldi sig fleiri anda-
tegundir en annars staðar á
jörðinni.
Dimmuborgir eru í nágrenni
vatnsins en um er að ræða
hraunmyndanir sem líkjast
helst kynjaverum úr íslenskum
ævintýrum. Fyrir jólin má t.d.
sjá jólasveina á ferð um Dimmu-
borgir. Frá Mývatni er stutt yfir
að Dettifossi, sem er ekki aðeins
stórbrotinn heldur aflmesti foss
landsins.
Á síðasta ári kom út bókin
Undur Mývatns eftir Unni
Jökulsdóttur. Unnur hlaut Hin
íslensku bókmenntaverðlaun
og Fjöruverðlaunin fyrir bókina
sem lýsir vel lífinu við Mývatn.
Við Mývatn eru hótel, veitinga-
staðir og önnur þjónusta.
Mývatn kemur stöðugt á óvart
Mývatn er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
4
-E
4
9
8
1
F
4
4
-E
3
5
C
1
F
4
4
-E
2
2
0
1
F
4
4
-E
0
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K