Fréttablaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 46
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
2 2 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r26 B í l a r ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Bílar
BMW gert að stöðva
framleiðslu BMW 7
vegna mengunarreglna
BMW er gert að hætta framleiðslu á þessum bílum fyrir Evrópumarkað þar sem aðrar reglur gilda fyrir aðra heimshluta.
Herferðin #Shedrives hlaut verð-
launin Herferð ársins á Dubai Lynx
International Festival of Creativity
nú í vikunni. Herferðinni er ætlað að
vekja umtal í Sádi-Arabíu á meðal
kvenna um að læra að keyra þar sem
þann 1. júní næstkomandi taka gildi
lög í fyrsta skipti sem heimila
konum að aka bifreið. Ghost-
lamp, íslenskt sprotafyrirtæki,
vann að þessari herferð með
TBWA\RAAD í Dubai. „Það er frá-
bært að hafa tekið þátt í þessari
herferð sem á eflaust eftir að fá
fleiri alþjóðleg verðlaun á þessu
ári,“ segir Jón Bragi Gíslason,
framkvæmdastjóri Ghostlamp,
um herferðina. „Þetta er líklega
það erfiðasta sem Ghostlamp
hefur tekið að sér. Við áttuðum
okkur alls ekki á því hvað það er
erfitt að fá konur til að tjá sig opin-
berlega í þessum heimshluta um svo
einfaldan hlut eins og að aka bíl. En
sem betur fer er verið að breyta lög-
unum þarna en samfélagið hefur
ekki fylgt eftir og herferðin von-
andi hjálpar til við það.“ Herferðin
var unnin fyrir Nissan.
#Shedrives verðlaunuð í Sádi-Arabíu
Jón Bragi Gíslason, framkvæmdastjóri Ghostlamp.
Síharðnandi mengunarkröfur og
lagasetningar þar að lútandi hafa
gert mörgum bílaframleiðand-
anum skráveifu og nú kveður svo
rammt að því að BMW hefur verið
gert að hætta framleiðslu á BMW 7
flaggskipi sínu í heilt ár, þ.e. þeim
gerðum hans sem ganga fyrir bens-
íni. Það þykir eflaust mörgum skjóta
skökku við að framleiðsla á bensín-
bílum en ekki dísilbílum 7-línunnar
sé stöðvuð í ljósi umræðunnar um
hættulega mengun dísilbíla og eftir
dísilvélasvindl Volkswagen. BMW
7 bílar með bensínvél hafa einfald-
lega ekki komist í gegnum strangar
kröfur hinna nýju WLTP (World-
wide Harmonized Light Vehicle
Test Procedure) viðmiðana, en þær
tóku gildi í fyrra. Þessar nýju reglur
taka mið af raunverulegri mengun
bíla við hinar ýmsu aðstæður og
eru þeir prófaðir á ýmsan hátt til
að standast þessar breyttu kröfur.
Fyrri mælingaaðferðir reyndust of
einhæfar og gerðar við of frábreyttar
aðstæður.
Þurfa líka að hætta
að framleiða 3-línuna
Líklega bitna þessar nýju mælingar
á fleiri bílum BMW því fyrirtækið
ætlar víst að hætta framleiðslu
núverandi kynslóðar 3-línunnar í
ágúst á þessu ári og hún verður ekki
tekin upp aftur fyrr en með næstu
kynslóð sem verður ekki tilbúin fyrr
en árið 2020.
Taka skal fram að BMW er gert
að hætta framleiðslu á þessum
bílum fyrir Evrópumarkað en þar
sem aðrar reglur gilda fyrir aðra
bílamarkaði heimsins, svo sem í
Bandaríkjunum, er ekki loku fyrir
það skotið að framleiðslu verði
haldið áfram fyrir aðra markaði en
Evrópu.
Ný BMW 7-lína með
bensínvélum nær
ekki nýjum WLTP-
mengunarstaðli Evr-
ópusambandsins.
Kia fagnaði því í dag að fimm millj-
ón eintök af sportjeppanum vin-
sæla, Kia Sportage, hafa nú selst á
heimsvísu. Bíllinn var fyrst settur
á markað árið 1993 og fagnar því
25 ára afmæli í ár. Kia Sportage var
fyrst kynntur á bílasýningunni í
Tókýó árið 1991 tveimur árum áður
en hann kom á markað og vakti þá
strax talsverða athygli. Jepplingar
voru á þeim tíma að ryðja sér til
rúms í auknum mæli og þóttu fram-
sæknir á margan hátt. Kia ætlaði
sér stóra hluti með Sportage en lík-
lega óraði engan þó fyrir því hversu
miklum vinsældum sportjeppinn
myndi ná og að 25 árum síðar væri
bíllinn búinn að seljast í alls fimm
milljón eintökum um heim allan.
Yfir 2.000 þeirra á Íslandi
Sportage hefur einnig verið Íslend-
ingum einkar kær og hafa yfir
2.000 Sportage-jepplingar prýtt
vegi landsins hingað til og seljast
enn grimmt. Kia Sportage hefur
einnig verið söluhæsti bíll Kia á
undanförnum árum. Nýjasta kyn-
slóð sportjeppans hefur selst í
alls milljón eintökum á aðeins
29 mánuðum. Og sem dæmi hafa
síðustu tvær kynslóðir Sportage
selst í tæplega 2.000 eintökum
hér á landi. Kia Sportage er fram-
leiddur fyrir Evrópumarkað í
hátæknivæddri verksmiðju Kia í
Zilina í Slóvakíu. Þar hefur sport-
jeppinn verið framleiddur síðan
2007.
Fimm milljón eintök af
Kia Sportage hafa selst
Svo mikil hefur eftirspurnin verið
eftir rafmagnsbílnum e-Golf frá
Volkswagen að fyrirtækið á svo
til aldrei neinar birgðir af bílnum,
fremur er barist um þau eintök
sem framleidd eru. Eftirspurnin
eftir Volkswagen e-Golf hefur ekki
síst verið mikil í öðrum Evrópu-
löndum en Þýskalandi og hefur
sala hans t.d. verið gríðarmikil í
Noregi og á Íslandi.
Volkswagen e-Golf náði því til
að mynda að vera söluhæsta bíl-
gerðin í nóvember á síðasta ári í
Noregi. Bíllinn var líka söluhæsti
rafmagnsbíll í V-Evrópu í janúar á
þessu ári og sló með því við bílum
eins og Renault Zoe og Nissan
Leaf.
Rafmagnsbílar VW þrisvar
sinnum eftirsóttari 2017 en 2016
Stjórnarformaður Volkswagen, Her-
bert Diess, segir að rafmagnsbílar
Volkswagen hafi verið þrisvar sinn-
um eftirsóttari árið 2017 en 2016
og það sé greinilegt að bílakaup-
endur séu viljugir til að að skipta úr
brunabílum yfir í rafmagnsbíla svo
fremi sem verðið sé rétt. Þessi þróun
ætti að ýta Volkswagen enn hraðar
áfram við þróun sinna næstu raf-
magnsbíla og á þeim verður enginn
hörgull á næstunni, með tilvonandi
bílum eins og I.D. Cross og I.D. Buzz.
Volkswagen býður líka rafmagns-
bílakaupendum sínum upp á ódýrar
hleðslustöðvar til heimanota sem
kosta aðeins 300 evrur.
Rafmagnsbíllinn VW
e-Golf yfirleitt uppseldur
Kia Sportage var fyrst kynntur á bílasýningunni í Tókýó árið 1991.
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
4
-E
4
9
8
1
F
4
4
-E
3
5
C
1
F
4
4
-E
2
2
0
1
F
4
4
-E
0
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K