Fréttablaðið - 22.03.2018, Qupperneq 48
CresCendo er ekki
eitthvað sem
stigmagnast og verður
brjálað í lokin heldur hæg
alda sem fær fólk til að
fljóta með.Þe t t a ve r k s n e r t i r við hjarta þeirra sem kynnast því. Mér líður eins og það sé undurfagurt og sviðsmyndin hjá Evu Berger undir
strikar þá tilfinningu; eldrautt teppi
og dúnmjúkir búningar,“ segir Heba
Eir Kjeld dansari innt eftir and
anum í Crescendo, dansverki Katr
ínar Gunnarsdóttur sem frumsýnt
verður í Tjarnarbíói í kvöld klukkan
20.30.
Heba Eir segir Katrínu hafa
sótt innblásturinn í sögu líkam
legrar vinnu kvenna, samhug, elju
og samvinnu. Konurnar þrjár á
sviðinu túlki þá sögu með síbreyti
legum hreyfingum og söngvum.
„Þetta er hljóðlát bylting, andstætt
þeim sem eru að gerast í heiminum,
#metoo og fleiri slíkum. Samt mik
ill styrkur og þrautseigja. Katrín
blandar vinnusöngvum þar inn og
lætur okkur humma þegar við erum
að prjóna, sauma eða klára eitthvað
annað. Við erum saman í öllu sem
við erum að gera þar til yfir lýkur.“
Hún segir verkið krefjast mikillar
nákvæmni og samstillingar. „Cresc
endo er ekki eitthvað sem stigmagn
ast og verður brjálað í lokin heldur
hæg alda sem fær fólk til að fljóta
með.“
Heba Eir útskrifaðist sem dansari
frá Listaháskólanum 2015 og hefur
starfað sem dansari síðan en líka í
öðrum verkefnum sem markaðs
fulltrúi. „Þetta hefur verið dálítið í
bland hjá mér, á tímabili var mark
aðsvinnan að taka yfir en það hefur
tónast niður í betra jafnvægi núna,“
útskýrir hún. Kveðst hafa heyrt fyrst
af verkinu Crescendo einhvern tíma
í gæðastund hjá þeim Katrínu þar
sem þær voru að fara yfir viðfangs
efnin fram undan. „Þá spurði hún
mig hvort ég væri til í að vera dans
ari hjá henni í þessu verki. Fram að
því var ég markaðspían hennar.“
Hinar tvær sem stíga dansinn í
Tjarnarbíói eru Snædís Lilja Inga
dóttir og Védís Kjartansdóttir „Þetta
er virkilega skemmtilegt tríó en við
erum gjörólíkar í karakter, útliti og
sem dansarar,“ segir Heba og bætir
því við að Védís eigi von á barni.
„Þetta er í rauninni ekki tríó heldur
kvartett eftir allt saman,“ segir
hún hlæjandi og bætir við að það
sé hrina af fæðingum fram undan.
„Katrín og Védís eiga von á sér með
fárra daga millibili og kynningar
fulltrúinn er óléttur líka – en við
hinar erum bara rólegar. Ekkert að
gerast hjá okkur eins og er!“
Nú langar mig að forvitnast meira
um hana sjálfa. Ætlaði hún alltaf að
verða dansari?
„Nei, ég ætlaði að verða leikkona.
Var með þá drauma lengi lengi. En
ég var í tónlistarnámi og dans
námi alla mína barnæsku og fram á
unglingsár. Þegar ég var sextán ára
þurfti ég að velja milli víólunnar og
dansins og ég fór í dansinn á fullu.
Þá varð ekki aftur snúið. Ekki það,
ég horfi stundum á leikkonur og
fæ alveg í magann, væri svo til í að
vera í þeirra sporum. Að sama skapi
fæ ég ofboðslega mikið út úr því að
dansa og þegar ég byrjaði í Lista
háskólanum 2012 fann ég alveg að
ég var á réttri hillu. Mér leið mjög
vel í skólanum, er afar þakklát fyrir
það nám og hvað það hefur gefið
mér af sjálfsaga og sjálfsöryggi sem
listamaður. Ég upplifi mikið frelsi
sem því hefur fylgt, dríf mig í verk
efnin og prófa mig áfram.“
Dansarar þurfa ekki aðeins að
halda sér stöðugt við líkamlega
heldur líka andlega að sögn Hebu
Eirar. Hún kveðst taka skorpur í að
hugsa vel um sig, sofa vel og borða
rétt, þó detti hún í að vera aðeins
slakari inn á milli. „En að vera dans
ari krefst þess að vera meðvitaður
um líkamann, hlusta á hann og vera
í tengslum við sjálfan sig. Líkaminn
þarf að vera í formi til að taka við
þeim verkefnum sem hent er í hann
og sömuleiðis þarf sálin að vera í
jafnvægi og viðbúin öllu.“
Þar sem við sitjum í betri stofu
Tjarnarbíós yfir kaffi og súkkulaði
lýsir Heba Eir því að þar sé gott
að æfa og dvelja. „Það er góður og
heimilislegur andi í húsinu,“ segir
hún. „Ég tók upp á því að hekla í
ferlinu, enda eru svo mörg vinkonu
börn að fæðast í kring um mig.“
Ekki tríó heldur kvartett eftir allt saman
Þrír dansarar túlka mýkt og natni í störfum kvenna með taktvissum hreyfingum og söng í verkinu Cresc
endo eftir katrínu gunnarsdóttur sem frumsýnt verður í tjarnarbíói í kvöld. ein þeirra er heba eir kjeld.
Snædís Lilja, Heba Eir og Védís dansa af sérstakri nákvæmni og samstillingu og syngja vinnusöngva í verkinu Crescendo. Með því túlka þær sögu kvennastarfa. FréttabLaðið/anton brink
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
2 2 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r28 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
menning
2
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:5
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
4
-D
0
D
8
1
F
4
4
-C
F
9
C
1
F
4
4
-C
E
6
0
1
F
4
4
-C
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K