Fréttablaðið - 22.03.2018, Side 52

Fréttablaðið - 22.03.2018, Side 52
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is Nýjar vörur frá geoSilica Kísill Íslenskt kísilsteinefni Recover Fyrir vöðva og taugar Renew Fyrir húð, hár og neglur Repair Fyrir bein og liði Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica. Nánari upplýsingar má fi nna á www.geosilica.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i Andið eðlilegA HHHHH Ísold Uggadóttir segir mikla og áhrifaríka sögu á töfrandi hátt og lætur engan ósnortinn. Andið eðli- lega er krefjandi, nístandi fögur mynd sem á erindi við alla. Út um allan heim. Fullir vAsAr HHHHH Hressileg „strákamynd“ sem virkar einhvern veginn betur en maður reiknaði með. Margt gott í gangi og fínn húmor á köflum en sagan er full þvæld. Skemmtilega leikin og gefur góð fyrirheit um það sem koma skal frá „snöppur- unum“. BlAck PAnther HHHHH Bráðskemmtileg og spennandi ofurhetjumynd sem svíkur hvergi en undir niðri kraumar mögnuð og tímabær samfélagsgagnrýni sem gerir Black Panther að tímamóta- mynd. Dómana í fullri lengd má nálgast á www.frettabladidi.is/lifid/ Enn í bíó Netflix gerir grimmt út á King með misjöfnum árangri. 1922 hefði getað verið betri. Í breyttum heimi er Stephen King enn kóngurinn. Stephen King hefur verið eftirlæti kvikmynda gerðar­fólks allt frá því að Brian De Palma snaraði fyrstu skáld­sögu hans, Carrie, á filmu 1976. Meistari Stanley Kubrick stökk á þriðju skáldsögu Kings, The Shining, 1980 og síðan þá hefur nánast allt sem hann setur á blað endað í kvikmyndahúsum eða sjónvarpi. Þökk sé ofur­ mannlegum afköstum þessa meistara hrollvekjunnar, sem í seinni tíð hefur frekar keyrt á mannlegu drama og spennu en við­ bjóði, er enn af nógu að taka. Og hann bætir stöðugt við. Ekki veitir af þar sem þrátt fyrir stöðugar vinsældir út um allan heim í fjóra áratugi hefur eftirspurnin eftir verkum Kings til kvikmyndunar aldrei verið meiri. Þessi fyrrverandi enskukennari og sérvitringur, sem skrifaði sínar fyrstu sögur á ritvélar og tölvur sem eru orðnar safngripir, skrifar nú fullkomlega í takt við nýja tíma og tækni. Breytt neysluhegðun í áhorfi með tilkomu efnisveitna eins og Netflix og Hulu hefur opnað á nýja flóð­ bylgju efnis sem byggt er á verkum Kings og eftirspurnin er ótak­ mörkuð. Á Netflix á Íslandi er nú hægt að horfa á fyrsta árgang Under the Dome, The Mist og „sjónvarps­ myndirnar“ 1922 og Gerald’s Game. Óhætt að mæla með öllu þessu og þá ekki síst því nýjasta, 1922 og Gerald’s Game. 1922 er gerð eftir samnefndri nóvellu úr safninu Full Dark, No Stars frá 2010. Það besta við þessa mynd er að hún er einhvers konar afturhvarf til upphafs­ ára Kings. Hér er boðið upp á subbulega glæpi, afturgöngur, gróteskan viðbjóð og rottur. Hell­ ing af tannhvössum rottum. Tom Jane leikur hér kotbónda sem er að húrra á hausinn árið 1922. Hann er hálfgerður Svartur í Vetrarhúsum og freistar þess að bjarga búskapnum með því að draga ungan son sinn með sér í blóðugan björgunarleiðangur sem getur aldr­ ei endað nema illa. Vel þess virði að horfa á. Gerald’s Game er gerð eftir skáld­ sögu Kings frá 1992. Hún þótti all sérstök þá en hún gerist í höfðinu á konu sem er hlekkjuð við rúmgafl í afskekktum sumarbústað, með líkið af eiginmanni sínum á gólfinu, og bíður þess að veslast upp og deyja. Ef hungraður flækingshundur étur hana ekki áður. Carla Gugino er firnasterk í hlut­ verki Jessie sem óvart drepur eigin­ mann sinn í upphafi kynlífsleiks sem hún hafði engan áhuga á að taka þátt í. Á meðan hún bíður þess sem verða vill, bjargarlaus, spólar hún í gegnum alls konar ógeð sem hún hefur upp­ lifað. Gerald’s Game er skólabókardæmi Kings um að mesti hryllingurinn fer fram í huga fólks, lesandans, áhorf­ andans. Næstu ár eiga eftir að verða aðdá­ endum Kings, gömlum og nýjum, gjöful í sjónvarpi og í bíó þannig að það er um að gera að drífa í að klára það sem er í boði á Netflix. Ef það á að halda í við kónginn dugir ekki að slóra. thorarinn@frettabladid.is Hryllingskóngurinn drottnar yfir sjónvarpinu Með tilkomu efnis- veitna á borð við Netflix hefur eftir- spurnin eftir Stephen King og fjörutíu far- sælum áratugum aldrei verið meiri. 2 2 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r32 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð Bíó 2 2 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :5 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 4 -D F A 8 1 F 4 4 -D E 6 C 1 F 4 4 -D D 3 0 1 F 4 4 -D B F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 6 4 s _ 2 1 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.