Land & synir - 01.08.2001, Síða 16

Land & synir - 01.08.2001, Síða 16
VERKEFNI í UNDIRBÚNINGI, TÖKUM OG EFTIRVINNSLU. SENDIÐ UPPLÝSINGAR Á olla.asi@simnet.is (ný verkefni á skrá feitletruð) Hilmir Snær Guðnason leikur gistihússeiganda sem þarf að glíma við erfiða karaktera og enn erfiðari rekstur í Rvk. Guesthouse - rent a hike sem væntanleg er innan tíðar. B í Ó M Y N D I R : Gæsapartí: Hún er að fara að gifta sig en vinkonur hennar eru staðráðnar að sýna henni hverju hún missir af við ráðahaginn. Leikstjóri: Böðvar Bjarki Pétursson. Handrit: BBP og Pétur Már Gunnarsson. Framleiðandi: BBP/20 geitur. Áætluð frumsýning í október. Rvk. Guesthouse - rent a bike: Gistihússeigandi glímir við reksturinn og skrautlega karaktera. Leikstjórar: BjörnThors og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Framleiðandi: Sömu, Börkur Sigþórsson/Réttur dagsins ehf. STAÐA: I eftirvinnslu. Frumsýningar- tími er óákveðinn. Gemsar: Kvikmynd um unglinga: það er ekkert grín að vera 16 ára þegar maður á bróður í fangelsi, pabba sem heldur að skellinaðra geri þig vinsælan eða vinkonu sem skemmtir sér við að sofa hjá Grænlendingum. Leikstjóri/handritshöfundur: Mikael Torfason. Framleiðendur: Þórir Snær Sigurjonsson og Skúli Fr. Malmquist. STAÐA: ( eftirvinnslu. Áætlaður frumsýningartími: jól 2001 Nói albinói: Nói er vandræðaunglingur í litlu þorpi á nyrðstu byggðarmörkum heimsins. Hann brennir brýrnar að baki sér, hverja á fætur annarri, en þegar feigðin blasir við, er ekki hægt að flýja. Leikstjóri/handritshöfundur: Dagur Kári Pétursson. Framleiðendur: Þórir Snær Sigurjonsson og Skúli Fr. Malmquist. STAÐA: Eftirvinnsla í gangi. Regína: Dans- og söngvamynd fyrir alla fjölskylduna. Handrit: Margrét Örnólfsdóttir og Sjón. Leikstjórn: María Sigurðardóttir. Framleiðandi: Friðrik Þór Friðriksson. STAÐA: Tökur hefjast í júní. Frumsýning áætluð: jól 2001 • Fálkar: Spennumynd um fálkaþjófa tekin á íslandi og í Hamborg. Handrit: Einar Kárason. Leikstjórn: Friðrik Þór Friðriksson. Framleiðendi Friðrik Þór Friðriksson. STAÐA: Tökur hefjast í lok september. Frumsýning áætluð eftir áramót. 1. apríl: Leikin bíómynd um aprílgöbb. Handrit og leikstjórn. Haukur M. Hrafnsson. Framleiðendur: Haukur M. Hrafnsson og Friðrik Þór Friðriksson. STAÐA: f eftirvinnslu. Frumsýning áætluð á næsta ári. Maður eins og ég: Gamanmynd framleidd til sýninga í kvikmyndahúsum. Handrit: Róbert I. Douglas og Árni Óli Ásgeirsson. Leikstjórn: Róbert I. Douglas. Framleiðandi: Júlíus Kemp. STAÐA: í tökum. Mávahlátur: Þroskasaga ungrar stúlku í sjávarplássi um miðja öldina. Handrit: Kristín Atladóttir og Ágúst Guðmundsson. Leikstjórn: Ágúst Guðmundsson. Framleiðandi: (sfilm, Ágúst Guðmundsson. STAÐA: í eftir- vinnslu. HEIMILDARMYNDIR: Eldborg 2001: Heimildarmynd um íslenska útihátíð, tekin á Eldborg 2001. Framleiðandi: Ingvar H Þórðarson. Stjórnandi: Ágúst Jakobsson. Spyrlar: Arna Borgþórsdóttir (Glamúr), Jón Atli Jónasson. (eftirvinnslu. Rúnturinn: Heimildarmynd til sýninga í kvikmyndahúsum. Farið á rúntinn í bæjum og þorpum landsins. Handrit og stjórn: Steingrímur Dúi Másson. Framleiðendur: Steingrímur Dúi Másson og Friðrik Þór Friðriksson. STAÐA: í eftirvinnslu, frumsýning áætluð haust2001. Tuttugu bit: Um Sigurð Guðmundsson myndlistar- mann. Handrit og leikstjórn: Ari Alexander Ergis Magnússon. Framleiðendur: Ari Alexander Ergis Magnússon, Anna María Karlsdóttir og Friðrik Þór Friðriksson. STAÐA: ( tökum, frumsýning áætluð haust 2001. Maður eigi einhamur: Líf og list Guðmundar frá Miðdal. Handrit og stjórn: Valdimar Leifsson. Fram- leiðandi: Lífsmynd, Valdimar Leifsson. STAÐA: I eftirvinnslu, fyrirhuguð sýning í Sjónvarpinu næsta vetur. Heita vatnið: Handritshöfundar: Kristín Norland og Sveinn M. Sveinsson. Stjórn: Sveinn M. Sveinsson. Framleiðandi: Plús film, Sveinn M. Sveinsson. STAÐA: [ eftirvinnslu, verður sýnd í Sjónvarpinu. Á nyrstu nöf: Ævintýraferð RAX Ijósmyndara til nyrstu þorpa vestur-Grænlands og nyrstu byggðu bóla veraldar, Qaanaaq og Shiropoluk sem liggja norðan herstöðvarinnar á Thule. RAX fer á veiðar með innfæddum á hundasleðum út á ísinn sem skilur þorpin og Norðurpólinn. Stjórn: Sveinn M. Sveinsson. Framleiðandi: Plús film, Sveinn M. Sveinsson. STAÐA: Eftirvinnslu að Ijúka. Frosið heimsveldi: Um Vilhjálm Stefánsson landkönnuð. Handrit: Garðar Baldvinsson/ Sigurjón Baldur Hafsteinsson. Leiksjóri og framleiðandi: Þór Elís Pálsson. STAÐA: í klippingu. Frumsýning áætluð í haust. TEIKNIMYNDIR: Leifur heppni: 10 mín. teiknimynd. Leikstjóri og handritshöfundur : Sigurður Örn Brynjólfsson. Framleiðandi: Taka kvikmyndagerð. STAÐA: Hljóðvinnslu lokið, verið að teikna, frumsýning um jól 2001. ÚTHLUTUN ÚR KVIKMYNUASJÚÐIÍSLANUS 2002 Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum um framlög og vilyrði til leikinna kvikmynda í fullri lengd. H æ g t er að sækja um: Framlag til framleiðslu árið 2002 Framleiðslufyrirtæki geta sótt um, sem telja sig geta fullfjármagnað og farið f tökur á kvikmynd árið 2002. Vilyrði til framleiðslu árið 2003 Framleiðslufyrirtæki geta sótt um, sem telja sig þurfa eitt ár til að fullfjármagna kvikmynd. Framlag til þróunar árið 2002 Framleiðslufyrirtæki geta sótt um, ef handrit að kvikmynd liggur fyrir, en þarfnast frekari þróunar Framlag til handritsskrifa árið 2002 Einstaklingar geta sótt um. Ekki tekið á móti fullunnum handritum. • Umsóknir skulu berast Kvikmyndasjóði fyrir kl. 16:00, 1. október 2001, á umsóknareyðublöðum sjóðsins ásamt umbeðnum fylgigögnum. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á vef sjóðsins, www.iff.is • Umsóknir, sem afhentar eru eða póstlagðar eftir að umsóknarfrestur rennur út eru ekki gildar. • Öll umsóknargögn skulu berast I fjórum eintökum. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu Kvikmyndasjóðs, Túngötu 14, 101 Reykjavík. • Allar nánari upplýsingar eru veittar á sama stað.

x

Land & synir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.