Fréttablaðið - 23.03.2018, Síða 8
Viðskipti Árslaun og hlunnindi Gylfa
Sigfússonar, forstjóra Eimskips, sem
námu nærri 103 milljónum króna á
síðasta ári, hafa hækkað um 41 pró-
sent eða ríflega 30 milljónir króna frá
árinu 2014. Heildargreiðslur til for-
stjórans hækkuðu um tæp níu prósent
árið 2017 frá fyrra ári en þar munar
mest um rúmlega 8,9 milljónir króna
í árangurstengdar greiðslur vegna
ársins 2016.
Hærri árangurstengdar greiðslur til
forstjórans í fyrra má rekja til bættrar
afkomu Eimskips árið 2016 þegar
félagið skilaði 21,9 milljónum evra
í hagnað samanborið við 17,8 millj-
ónir árið 2015. Á árinu 2017 dróst
hagnaður félagsins þó aftur saman og
nam 16,8 milljónum evra. Samkvæmt
upplýsingum frá Eimskip kom ekki til
bónusgreiðslna vegna afkomu ársins
2017, þar sem stjórnendur höfðu ekki
náð settum markmiðum í rekstri.
Upplýsingar um laun og hlunnindi
eru sundurliðaðar í ársreikningi Eim-
skips en til hlunninda teljast árang-
urstengdar greiðslur, ferðapeningur,
framlag í lífeyrissjóði og húsnæðis- og
bifreiðahlunnindi.
Samkvæmt ársreikningum Eim-
skips hafa grunnlaun forstjórans
hækkað úr 55,9 milljónum árið 2014
í 67,4 milljónir í fyrra, eða um 11,5
milljónir. Miðað við grunnlaun voru
mánaðarlaun forstjórans 5,6 milljónir
í fyrra, en með hlunnindum námu
þau 8,6 milljónum.
Launaskrið hefur sömuleiðis verið
Bónusgreiðslur hífðu upp forstjóralaun
Bónusgreiðslur vegna afkomu ársins 2016 útskýra hækkun launa Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips. Árslaunin námu tæpum 103
milljónum í fyrra. Forstjóralaunin hækkað um 40 prósent frá 2014. Sex framkvæmdastjórar hækkuðu um alls 53,5 milljónir milli ára.
Árslaun Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips, námu tæpum 103 milljónum í fyrra og hafa hækkað um 41 prósent frá
árinu 2014. Hækkun milli ára skýrist af bónusgreiðslum vegna afkomu félagsins 2016. Fréttablaðið/StEFÁn
Laun og hlunnindi lykilstjórnenda
Árið 2017 Grunnlaun Hlunnindi allS
Gylfi Sigfússon forstjóri 67,4 35,2 102,6
Sex framkvæmdastjórar 170,3 75,0 245,4
Árið 2016 Grunnlaun Hlunnindi allS
Gylfi Sigfússon forstjóri 67,9 26,3 94,2
Sex framkvæmdastjórar 147,5 44,3 191,8
upphæðir í milljónum króna
Launaþróun forstjórans*
2014 2015 2016 2017
Gylfi Sigfússon
72,5 75,7
94,2
102,6
hjá öðrum yfirstjórnendum félagsins.
Laun og hlunnindi sex framkvæmda-
stjóra Eimskips námu alls 245,4 millj-
ónum króna í fyrra samanborið við
191,8 milljónir árið áður. Grunnlaun
þeirra hækkuðu um 15,5 prósent milli
ára eða sem nemur 22,8 milljónum
króna en mest munar um 69 prósenta
hækkun á hlunnindalið vegna bónus-
greiðslna sem námu alls 30,7 millj-
ónum. Hækkun á launum og hlunn-
indum framkvæmdastjóranna nemur
alls um 28 prósentum eða sem nemur
53,5 milljónum króna milli ára.
Hlutabréfaverð Eimskipafélags
Íslands hf. er nánast á sama stað í dag
og við skráningu undir lok árs 2012 en
fyrir aðalfundi félagsins sem fram fór
í gær lá fyrir tillaga um að greiða hlut-
höfum félagsins 1.269 milljónir króna
í arð. Sex lífeyrissjóðir eru meðal tíu
stærstu hluthafa Eimskips. Lífeyris-
sjóður verslunarmanna er næststærsti
hluthafi félagsins með 13,9 prósenta
eignarhlut en Gildi lífeyrissjóður er
fjórði stærsti með rúm 9,4 prósent.
mikael@frettabladid.is
41%
Hækkun launa og hlunninda
forstjóra Eimskips frá 2014
*laun og hlunnindi
Audi Q7 e-tron quattro
Spennuþrungið
tilboð
Nokkrir Audi Q7 e-tron quattro hlaðnir
aukahlutum á einstöku tilboðsverði.
Á rafmagninu kemstu flestra þinna
daglegra ferða en í lengri ferðum tekur
dísilvélin við.
Listaverð 11.690.000 kr.
Tilboðsverð 10.990.000 kr.
Aukahlutir umfram staðalbúnað:
• Sportsæti með leður-/alcantara- áklæði • Samlitir brettakantar
og stuðarar • Audi Connect tenging fyrir SIM kort
• Google Map tenging með StreetView • Snjallsímatenging fyrir
Google Play og Apple Carplay • Dökkar rúður • Leðurklætt
sport aðgerðastýri, fjögurra arma með flipaskiptingu
• Bakkmyndavél • LED inniljósapakki • Lykillaust aðgengi með
snertilausri opnun á afturhlera • Ambient inniljósapakki
• Lengri hleðslukapall • 20” álfelgur 10-Spoke Star Design
• Dráttarbeisli með bakkaðstoð • Hæðastillanleg loftpúðafjöðrun
2 3 . m a r s 2 0 1 8 F Ö s t U D a G U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
8
-B
D
A
0
1
F
4
8
-B
C
6
4
1
F
4
8
-B
B
2
8
1
F
4
8
-B
9
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K