Fréttablaðið - 23.03.2018, Page 16
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Að tala um
Rússland og
réttarríki er
eins og hvert
annað
hlægilegt
öfugmæli.
Á meðan
ýmsir boða
byggingu
múra – vilja
Norðurlöndin
opna dyr.
Hinn 23. mars ár hvert fagna Norðurlöndin sam-vinnu sem er rótgróin og víðfeðm en líka skapandi og skilvirk. Lengi vel lá lífæð Íslands í gegnum
Kaupmannahöfn og nú skapa samskiptin við hinar
Norðurlandaþjóðirnar, þ. á m. á vettvangi Norrænu ráð-
herranefndarinnar og Norðurlandaráðs, trausta fótfestu á
alþjóðavettvangi.
En norrænt samstarf er svo miklu meira en bara stjórn-
mál. Undirstaðan er hið sumpart kyrrláta en þó kraft-
mikla samstarf sem fram fer úti um allt land. Ég leyfi mér
að fullyrða að tugþúsundir Íslendinga hafi tekið og taki
þátt í norrænni menningarsamvinnu, skóla- og vísinda-
samstarfi, eða hafi unnið og lært á Norðurlöndunum, og
hátt í 30 þúsund Íslendingar búa þar.
Norðurlöndin eru þannig sterkur heimavöllur fyrir
Ísland. Þangað flytja fyrirtækin út vörur og þjónustu
en samanlagt eru Norðurlöndin okkar stærsta einstaka
viðskiptaland. Norðurlöndin vilja verða samþættasta
svæði heims. Þá geta 27 milljónir manna, fólk og fyrirtæki,
fært sig hindrunarlaust og áreynslulítið á milli landa og
freistað gæfunnar. Á meðan ýmsir boða byggingu múra
– vilja Norðurlöndin opna dyr. Í viðskiptum geta norræn
fyrirtæki náð betri árangri sem heild heldur en hvert í sínu
horni, ekki síst á fjarlægum mörkuðum. Árangur danskra
arkitekta í Asíu getur rutt brautina fyrir finnska bændur
sem draga vagninn fyrir íslenska fatahönnuði. Norræna
glæpasagan selur bækur en líka fisk. Vörumerkið „Norður-
lönd“ er verðmætt og nýverið var sameiginlegu kynn-
ingarátaki TheNordics.com hleypt af stokkunum.
Og eins og í góðum fjölskyldum er heilbrigð samkeppni
milli fólks, við lærum hvert af öðru og berum okkur
saman. Þannig var ánægjulegt hve Ísland kom vel út úr
síðustu skýrslu Nordregio um efnahagsþróun og vaxtar-
möguleika á Norðurlöndunum. Þar voru sex íslenskir
landshlutar sannkallaðir hástökkvarar, auk Færeyja. Í
norrænum samanburði gengur margt vel á Íslandi en við
sjáum líka hvar við þurfum að bæta okkur. Meira um það
á fundi í Norræna húsinu kl. 14 í dag.
Ísland hlakkar til formennsku í Norrænu ráðherra-
nefndinni á næsta ári. Það verður skemmtilegt verkefni í
norrænu „fjörskyldunni“!
Norræna fjörskyldan
Sigurður Ingi
Jóhannsson
samstarfsráð-
herra Norður-
landa
MAR0KKÓ
9. maí í 11 nætur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Allt að
25.000 kr.
afsláttur á mann
Frá kr.
99.595
Hlátur í þingsal
Brynjar Níelsson, eins umdeild-
ur og hann er, má eiga það að
hann er sá þingmaður sem
oftast uppsker hlátur í þingsal.
Slíkt gerðist í gær í umræðum
um kosningaaldursfrumvarpið.
Þingmaðurinn er einn þeirra
sem vilja að málið verði ekki
afgreitt í flýti. Í ræðu hans var
kallað fram í að börn gætu verið
í flokknum þó þau gætu ekki
kosið. „Þeir mega vera í flokkn-
um. Það er einmitt þroskaferlið,
að byrja á að koma í flokkinn og
svo þegar búið er að þroska þau
þar, þá geta þau kosið,“ sagði
Brynjar úr pontu meðan þing-
heimur hló dátt.
Táknræn byssa
Annað atvik, miður geðslegt
og líklega án fordæma í þing-
heimi, átti sér stað í umræð-
unum um kosningaaldur í gær.
Hinum spurningaglaða Pírata
Birni Leví Gunnarssyni mis-
líkaði þá málflutningur Bjarna
Benediktssonar, fjármála- og
efnahagsráðherra. Ákvað þing-
maðurinn að láta þá skoðun
sína í ljós með því að mynda
byssu með fingrum sínum,
leggja hana að höfði sér og taka
í ímyndaðan gikkinn. Slíkt
athæfi, sem var vafalaust mis-
heppnuð tilraun til hnyttni, á
hvergi að sjást og sennilega allra
síst af þingmanni í þingsal. Er
það þingmanni til smánar.
joli@frettabladid.is
Aðeins Stalín hefur verið lengur við völd á síðari tímum í Rússlandi. Með yfirburða-sigri Vladímírs Pútín í nýafstöðnum forsetakosningum – hann hlaut um 75 prósenta fylgi – mun valdatíð hans, annaðhvort sem forseti eða forsætisráð-
herra, hafa staðið yfir í nær aldarfjórðung þegar sex ára
kjörtímabil hans rennur sitt skeið 2024. Óþarfi er að fjöl-
yrða um aðdraganda og niðurstöður kosninganna. Þær
voru skrípaleikur. Ekki er hægt að tala um raunverulegar
lýðræðislegar kosningar í landi þar sem fjölmiðlunum,
einkum stóru sjónvarpsstöðvunum, er að stærstum hluta
beitt í áróðursskyni fyrir stefnu ráðamanna í Kreml.
Þótt lífskjör almennings hafi vissulega batnað til
muna eftir þann glundroða sem einkenndi tíunda áratug
síðasta aldar þá varpaði alþjóðlega fjármálakreppan,
og í kjölfarið verðfall á olíumörkuðum, ljósi á kerfislega
veikleika rússneska hagkerfisins. Ekkert sem máli skiptir
hefur verið gert á undanförnum árum til að mæta þeirri
staðreynd að ráðamenn í Moskvu geta ekki lengur reitt
sig á hátt olíuverð til að standa undir miklum hagvexti.
Þess í stað hefur ágeng utanríkisstefna Pútíns, sem hefur
oft stjórnast af misráðnum skammtímasjónarmiðum
fremur en einhverri djúpviturri langtímahugsun, þjónað
þeim tilgangi að beina kastljósi almennings heima fyrir
frá þeirri víðtæku spillingu og efnahagsstöðnun sem
Rússar glíma við og viðhalda stuðningi við Pútín. Það
hefur tekist. Niðurstaðan er hins vegar meðal annars sú
að samskipti Evrópu og Bandaríkjanna við Rússland hafa
núna um langt skeið einkennst af spennu og tortryggni.
Viðskiptaþvinganir vesturveldanna, í kjölfar
hernaðar íhlutunar Rússlands á Krímskaga og í austur-
hluta Úkraínu, og lágt verð á olíumörkuðum hafði veru-
lega neikvæð áhrif á rússneskt efnahagslíf með miklum
fjármagnsflótta og gríðarlegu gengisfalli. Samkvæmt
tölum frá Alþjóðabankanum þá skrapp hagkerfið saman
um meira en þriðjung, mælt í Bandaríkjadölum, frá 2014
til 2016. Þó samdráttur síðustu ára sé að baki, samhliða
því að olíuverð hefur farið hækkandi, þá stendur Pútín
núna eftir sem áður frammi fyrir þeirri áskorun hvernig
eigi að nútímavæða hagkerfi Rússlands. Útflutningur
og tekjur ríkissjóðs Rússlands koma enn í dag nánast
einvörðungu til vegna sölu á olíu og gasi. Væntingar um
að þverrandi olíuauður myndi framkalla tímabærar
efnahags- og lagalegar umbætur í Rússlandi hafa reynst
tálsýn ein.
Rússland er um margt ónýtt ríki. Pólitískar stofn-
anir sem eiga að veita framkvæmdarvaldinu aðhald
fyrirfinnast ekki. Helstu fjölmiðlar landsins reyna
kerfisbundið að sverta og grafa undan öllum þeim sem
gagnrýna stefnu stjórnvalda hverju sinni. Og það sem
mestu máli skiptir: hagkerfi Rússlands stendur í reynd á
brauðfótum. Kerfislægar efnahagsumbætur hafa setið á
hakanum um árabil og fjárfesting í samfélagslegum inn-
viðum er hverfandi. Að tala um Rússland og réttarríki er
eins og hver önnur hlægileg öfugmæli. Þrátt fyrir þetta
sýna forsetakosningarnar að Pútín nýtur enn stuðnings
hjá meginþorra rússnesks almennings. Það er í senn
sorglegur en sumpart skiljanlegur veruleiki.
Skrípaleikur
2 3 . m a r s 2 0 1 8 F Ö s T U D a G U r16 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
SKOÐUN
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
8
-7
D
7
0
1
F
4
8
-7
C
3
4
1
F
4
8
-7
A
F
8
1
F
4
8
-7
9
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K