Fréttablaðið - 23.03.2018, Síða 22
Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, er fædd og uppal
in í Hrunamannahreppi og lauk
námi í félagsfræði og kennslufræði
við HÍ. Hún hóf störf sem fram
kvæmdastýra Kvennaathvarfsins
fyrir ellefu árum. „Ég sá þetta starf
auglýst og hringdi í fráfarandi
framkvæmdastýru sem lýsti starf
inu þannig að ég hugsaði: hvernig
er hægt að taka allt það skemmti
legasta í þessu fagi og setja það í
eitt starf? Og svo var ég svo ótrú
lega heppin að umsókn mín var
valin. Ég þekkti aðeins til hér því
ég skrifaði BAritgerðina mína upp
úr gögnum úr Kvennaathvarfinu og
hafði starfað hér sem sjálfboðaliði
meðan ég var í háskólanámi.”
Margir ímynda sér að það sé
þungt yfir í Kvennaathvarfinu
en Sigþrúður segir svo ekki vera.
„Vissulega á sér margt sorglegt
og erfitt stað hérna en það er
líka gríðarlega mikið hlegið í
Kvennaathvarfinu. Konurnar sem
eru hér eru náttúrlega kröftugustu
konur í heimi og þær eru að stíga
svo merkileg skref, kannski að
lifa fyrstu vikurnar án ofbeldis í
mörg ár og áratugi. Það eru algjör
forréttindi að fá að eyða með þeim
hversdeginum þeirra. Athvarfið er
heimili kvennanna á meðan þær
eru hér og þær og börnin þeirra
sinna sínu daglega lífi en eru líka í
stuðningi og viðtölum hjá ráðgjöf
unum sem starfa hér við að hjálpa
þeim að vinna í sínum málum.
Þetta er heimili og úlfatíminn eftir
skóla er hér eins og annars staðar.
Hér eru að meðaltali tíu börn á
dag og við höldum jól og afmæli og
hrekkjavöku og þess háttar.”
Hún segir að konur þurfi að vera
misjafnlega lengi í Kvennaathvarf
inu. „Það er enginn skilgreindur
dagafjöldi, svo lengi sem okkur
finnst við vera að hjálpa konu er
hún hér. Stundum er ofbeldis
maðurinn fjarlægður af heimilinu
fljótlega, í einstaka ánægjulegum
tilfellum hafa hjónin samið um að
hann fari og hún komi heim og þau
vinni í sínum málum, stundum
bjóða ættingjar og vinir skjólshús
en konur sem eiga ekkert bakland
þurfa kannski að vera hér lengur.“
Börnin efst í huga
Hún segir konur gjarnan líta á
Kvennaathvarfið sem síðasta
úrræðið. „Það er risastórt skref að
koma hingað og við hittum alls
ekki allar sem verða fyrir heim
ilisofbeldi. Mörg hundruð konur
hafa komið í Bjarkarhlíð í viðtöl
vegna heimilisofbeldis sem greini
lega sjá Kvennaathvarfið ekki sem
kost í sinni stöðu. Okkar markmið
er að hjálpa konunum sem hingað
leita að losna við ofbeldið úr lífi
sínu og gera þeim grein fyrir styrk
sínum og hugrekki því þær hafa
lifað af aðstæður sem aðrir geta
vart gert sér í hugarlund.“ Hún
segir að í flestum tilfellum sé skiln
aður óumflýjanlegur fyrir konur í
þessari stöðu. „Ég held að það þurfi
mikið til að hjónaband gangi upp
eftir langvarandi ofbeldi því svo
margt hefur gengið á sem erfitt er
að fyrirgefa. Stundum fara kon
urnar aftur til ofbeldismanna þar
sem við vitum að ofbeldið heldur
áfram. En sem betur fer fækkar
þeim tilfellum milli ára og einstaka
sinnum er maðurinn tilbúinn til að
leggja á sig þá vinnu sem þarf til að
rjúfa mynstrið.“
Hún viðurkennir að börnin séu
henni alltaf ofarlega í huga við
þessar aðstæður sem og aðrar. „Við
tilkynnum til barnaverndar ef það
eru börn í spilinu sem eru þá að
fara aftur á vígvöll, stundum bara
pínulítil og auðvitað er það erfitt.“
Hún bendir á að rannsóknir sýni
að heimilisofbeldi hafi djúpstæð
áhrif á börn og framtíðarmögu
leika þeirra, jafnvel þó ofbeldið
beinist ekki að þeim. „Við sjáum
að margar kvennanna sem koma
hingað til dvalar eiga ofbeldissögu
úr æsku að baki og oft kemur í
ljós að það eiga margir mannanna
líka þó það sé alls ekki algilt. Börn
sem alast upp við heimilisofbeldi
þekkja oft ekki aðrar aðferðir til að
leysa úr ágreiningi. Ég viðurkenni
að eftir að ég varð amma drengs
þá hugsa ég mikið um hvernig það
gerist að drengir verði að mönnum
sem beita ofbeldi. Þetta er keðja
sem okkur langar svo til að brjóta
svo þessi börn geti notið sömu lífs
gæða og mannréttinda og önnur
börn.“
Lífið eftir skilnað reynist mörg
um þessara kvenna erfitt og ógn
vekjandi. „Þess vegna erum við að
leggja í það stóra verkefni að byggja
lítið fjölbýlishús sem verður nokk
urs konar áfangaheimili fyrir konur
í veikri stöðu sem geta þá farið í
húsnæði á viðráðanlegu verði og
unnið að því að styrkja stöðu sína,
klára nám, læra íslensku, fá vinnu
og svo framvegis.“
Fólki þykir vænt um Kvenna-
athvarfið
Sigþrúður segist verða vör við
mikinn hlýhug í garð Kvenna
athvarfsins sem er sjálfseignar
stofnun og rekið af Samtökum um
kvennaathvarf. „Ég er nánast alltaf
með eitthvað í bílnum mínum
sem fólk vill gefa okkur. Svo erum
við líka með sjálfboðaliða hérna
sem ganga í þau verk sem til falla
og sýna þannig stuðning í verki. Í
kringum tíu þúsund einstaklingar
styrkja okkur mánaðarlega, mörg
félagasamtök líka og svo eru ýmsir
sem hafa samband og vilja gefa
okkur húsgögn og þess háttar.
Konurnar geta oft ekki sótt eigur
sínar þar sem ofbeldismaðurinn
er enn á heimilinu og vantar því
stundum allt til að hefja nýtt líf,
eru stundum bara með fötin sem
þær standa í. Við erum því miður
ekki lengur með aðstöðu til að
geyma hluti en svo er ótrúlegt
hvað allt smellur saman, kannski
hringir einhver með sófa, ísskáp og
þvottavél og það er akkúrat að fara
frá okkur kona inn í galtóma íbúð.
Okkur þykir óskaplega vænt um
þennan hlýhug.“
Sigþrúður var sæmd Hinni
íslensku fálkaorðu um áramótin og
finnst sú viðurkenning mikilvæg,
bæði persónulega og fyrir mála
flokkinn. „Ég varð fyrst mjög hissa
og svo þótti mér ógurlega vænt um
að við skyldum fá þessa viður
kenningu. Það þýðir að þessi mála
flokkur þykir mikilvægur, sem
hann er því starf okkar snýst um
að búa konum og börnum betra
líf. Svo bættist ofan á öll gleði fólks
yfir því að ég skyldi hafa fengið
þessa viðurkenningu sem mér
þykir líka rosalega vænt um.“
Skemmtilegast að vera
amma
Sigþrúður áttaði sig fljótt á því að
starf og einkalíf yrðu ekki aðskilin
með góðu móti. „Ég fer til dæmis
aldrei svo í veislu eða gönguferð
með gönguhóp án þess að þessi
mál beri á góma.“ Hún segist þó
stundum þurfa að taka sér frí og
þá er best að fara upp í sveit eða
út í lönd. „Ég á bróður sem er kúa
bóndi og það gefst sveitastelpunni
stundum best að taka til hendinni
í búskapnum. Mér finnst líka gott
að fara til útlanda og í lengri og
skemmri gönguferðir, sérstaklega
í rigningu og roki, þá gustar svo
vel út úr höfðinu. Það skemmti
legasta sem ég gerði áður en ég
varð amma var að fara eitthvert,
nú er að vera amma það skemmti
legasta og ég eyði miklum tíma
með ömmu stráknum mínum og
fjölskyldunni.“
Aðspurð hvort hún sjái fyrir sér
að starfa hjá Kvennaathvarfinu
næstu ellefu árin segist Sigþrúður
ekkert geta sagt um það. „Ég get
ekki ímyndað mér skemmtilegra
og meira gefandi starf. En ég vona
að einhver hnippi í mig þegar
ég verð of þaulsætin og farin að
staðna. Þá vona ég að einhver
hvísli mjög hlýlega í eyrað á mér að
nú sé kominn tími til að fara.“
„Að fá fálkaorðuna þýðir að þessi málaflokkur þykir mikilvægur, að búa konum og börnum betra líf.“ mynd/ernir
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms
Hallgrímsson
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 |
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur
H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | máté dalmay,
mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Framhald af forsíðu ➛ Okkar markmið er
að hjálpa konunum
sem hingað leita að losna
við ofbeldið úr lífi sínu og
gera þeim grein fyrir
styrk sínum og hugrekki.
NÝ SENDING!
2 KynninGArBLAÐ FÓLK 2 3 . m A r S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
8
-B
3
C
0
1
F
4
8
-B
2
8
4
1
F
4
8
-B
1
4
8
1
F
4
8
-B
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K