Fréttablaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 26
Arndís segir að þau hafi ákveðið fyrir mörgum árum að ganga í hjónaband. „Við
létum samt aldrei verða af því.
Einhvern veginn hélt maður að
þetta yrði svo mikið umstang. Við
höfðum bæði verið gift áður og mig
langaði alls ekki að hafa eitthvert
rjómatertubrúðkaup. Þegar við
loksins ákváðum daginn vorum við
sammála um að hafa allt í hófi, bara
eins og okkur langaði helst til að
hafa umgjörðina,“ segir Arndís.
Þegar hún er spurð hvort þessi
dagsetning hafi einhverja þýðingu
fyrir þau, svarar hún: „Karlinn minn
á erfitt með að muna dagsetn-
ingar. Þegar við trúlofuðum okkur
gerðum við það 1. apríl. Hann hefur
aldrei getað gleymt þeim degi. Það
var því ágætt að hafa brúðkaupið
1. júlí í góðu veðri,“ segir hún.
Vöndur úr lúpínum
Arndís segir að þau hafi valið
Kálfatjarnarkirkju vegna þess
hversu falleg hún er auk þess sem
hún er í þeirra sveitarfélagi. „Mér
finnst kirkjan yndisleg og á svo
fallegum stað,“ segir hún. Það var
séra Kjartan Jónsson sem gaf þau
saman. „Þessi dagur var geggjaður.
Við vöknuðum snemma og fórum
út að tína blóm í brúðarvöndinn.
Ég bjó hann til sjálf úr lúpínum. Ég
hafði samband við nokkra blóma-
skreytingamenn en þeir treystu
sér ekki til að útbúa blómvönd
með lúpínum. Ég vildi hafa blómin
frjálsleg og vöndinn lafandi og fékk
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Útgefandi:
365 miðlar
Veffang:
frettabladid.is
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumaður auglýsinga:
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429
ráðleggingar um að ég yrði að tína
blómin sama dag svo þau myndu
haldast falleg. Það voru allir mjög
hrifnir af vendinum,“ segir Arndís
sem er mikil handavinnukona og
flest allt föndur leikur í höndunum
á henni.
Í kúrekafötum frá Nashville
Kjóllinn var sérsaumaður hjá Evu-
klæðum og mágkona mín, Sigrún
Kristjánsdóttir, var álitsgjafinn
minn. Ég teiknaði grunnhug-
myndina sjálf og þessar yndislegu
konur hjá Evuklæðum saumuðu.
Ég fann mig strax í þessum kjól.
Róbert fékk hins vegar brúðarfötin
sín í Nashville. Hann hefur alltaf
langað í kúrekaföt enda hlustar
hann mikið á kántrítónlist. Við
fórum í ferðalag til Nashville og
þar fékk hann allan gallann og var
virkilega sáttur með sig. Róbert
hefur alltaf verið einhvers konar
kúreka-indíáni í sér og hefur
gengið í kúrekastígvélum frá því ég
kynntist honum,“ útskýrir Arndís
og segir að ferðin til Nashville hafi
verið í þeim tilgangi að kynnast
tónlistinni.
Það var þó ekki leikin slík tónlist
í kirkjunni á brúðkaupsdaginn.
„Nei, við áttum okkar lög sem við
lékum mikið á ferðalagi um landið
þegar við vorum að byrja saman.
Hann valdi eitt lag með Neil Young
og ég annað með Eagles. Síðan
var eitt sameiginlega valið, You’ve
Got a Friend, með James Taylor.
Okkur hefur alltaf þótt vinátta
skipta miklu máli í sambandinu.
Við höfum alltaf verið góðir vinir
og erum jafnskotin hvort í öðru og
fyrst þegar við hittumst. Ég er tíu
árum yngri en Róbert og það hefur
aldrei skipt máli, hann er fæddur
1950 og ég 1960. Maður er bara
eins gamall og maður vill vera,“
segir Arndís.
Sérstök boðskort
Arndís útbjó sérstök boðskort sem
hún keypti á indianweddingcard.
com sem er eins konar pappírs-
rolla, líkt og handrit sem sent var
til hefðarfólks fyrr á öldum. Kortið
var upprúllað og fallegt band utan
um og síðan sett í gjafaöskju. Arn-
dís segir að hún hafi sett öll kortin
í póst sama dag en bróðir hennar í
Noregi fékk það fyrst.
Arndís segir að þau hafi boðið
nánustu fjölskyldu í brúðkaupið,
börnum þeirra, mökum, barna-
börnum, systkinum og mökum auk
foreldra hennar. Foreldrar Róberts
eru fallnir frá. Við buðum öllum út
að borða í Hörpu og það var virki-
lega flott og skemmtilegt. Okkur
langaði auðvitað að bjóða miklu
fleirum en ákváðum að njóta
dagsins vel með okkar nánasta
fólki og hafa tíma fyrir það. Þetta
var svo gaman allan daginn að ég
get varla lýst því,“ segir Arndís.
Range Rover í morgungjöf
Þegar Arndís er spurð hvort laga-
leg mál hafi flýtt fyrir giftingunni
svarar hún því játandi. „Við erum
að eldast og vildum hafa þessi
bönd á milli okkar,“ segir hún.
Róbert var ekkert að spara við sig
þegar hann gaf frúnni Range Rover
í morgungjöf sem kom brúðinni að
sjálfsögðu mikið á óvart.
Þau hjónin hafa svipuð áhuga-
mál, stunda stangveiði og ferðast
mikið um landið. Arndís hnýtir
flugur í frístundum en þau fóru
í brúðkaupsferð í Sæmundará
þar sem þau nutu sín við veiðar í
nokkra daga.
Glæsileg brúðhjón ganga að kirkjunni. Róbert í kúrekafötunum og Arndís í fallegum hvítum kjól sem hún hannaði sjálf. Þau tíndu sjálf lúpínur í brúðarvöndinn.
MYNDIR/THELMA
Gengið inn í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd.
Arndís og Róbert á stóra deginum. Brúðarkossinn í íslenskri náttúru.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R BRÚÐKAup
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
8
-C
2
9
0
1
F
4
8
-C
1
5
4
1
F
4
8
-C
0
1
8
1
F
4
8
-B
E
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K