Fréttablaðið - 23.03.2018, Side 28
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 11-15
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Glæsilegur
Verð 39.900 kr.
Stærð 38-46
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . m A R s 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R BRúÐKAup
Hjónin Valgerður
Sigurðardóttir og
Friðbjörn Björns-
son hafa verið gift
í tæp 47 ár. Þau
segjast heppin
með hvort annað
og hlakka til að
vakna á morgnana
og horfa til hvers
nýs dags. Í farsælu
hjónabandi segja
þau mikilvægt að
gefa hvort öðru
svigrúm.
Það er ekki sjálfgefið að eiga farsælt hjónaband í nær hálfa öld en það þekkja hjónin
Valgerður Sigurðardóttir (Vala) og
Friðbjörn Björnsson (Böddi) úr
Hafnarfirði sem hafa verið gift í tæp
47 ár. Þau segjast hafa verið heppin
með hvort annað og hlakka til að
vakna á morgnana og horfa til nýs
dags. Besta ráðið sem þau geta gefið
ungum brúðhjónum er að gefa hvort
öðru svigrúm og leyfa hinum aðil-
anum að njóta sín á eigin vettvangi.
„Hann Böddi er t.d. mikill veiði-,
golf- og útivistarmaður og ég hef
lengi verið í félags- og stjórnmálum.
Núna gegni ég t.d. stöðu formanns
Félags eldri borgara í Hafnarfirði
en við höldum upp á 50 ára afmæli
félagsins á næstu dögum. Áhugamál
okkar beggja eru tímafrek en okkur
hefur tekist vel að vinna úr því. Við
eigum svo líka sameiginleg áhuga-
mál og hjálpuðumst að heima fyrir
með eldamennsku og uppeldi og
nutum þá hvort á sinn hátt þess sem
við vorum að gera, áhyggjulaus,“
segir Vala.
Halda upp á daginn
Vala og Böddi ólust upp og gengu
saman í skóla í Garðahreppi sem
nú heitir Garðabær. Böddi segist
hafa fallið fyrir Völu því hún hafi
verið bæði sæt og skemmtileg
meðan hún segist hafa heillast af
því hversu flottur fótboltamaður
hann hafi verið auk þess að vera
fyndinn og skemmtilegur. „Við
áttum ekkert formlegt fyrsta
stefnumót heldur fórum við að
vera saman í útilegu sem var
haldin á vegum æskulýðsfélagsins
þetta sumarið. Við vorum komin í
foreldra- og íbúðarkaupendahlut-
verkið innan við tvítugt þannig að
ábyrgðin var mikil á þessum fyrstu
árum eins og tíðkaðist gjarnan á
þessum tíma. Við vorum bæði að
stíga okkar fyrstu skref að heiman
og því tók það smá tíma að fóta sig
en okkur tókst það,“ segir Böddi.
Þau giftu sig 19. desember árið
1971 og hafa haldið upp á daginn
frá því þau áttu tíu ára brúðkaups-
afmæli. „Þennan dag höfum við
lengi nýtt í að gera eitthvað fyrir
bara okkur tvö, t.d. farið saman á
hótel yfir nóttina eða út að borða
og átt notalega kvöldstund saman.
Þegar við fögnuðum t.d. 20 ára
brúðkaupsafmæli okkar fórum við
á Hótel Örk í Hveragerði og vorum
ein á hótelinu því allir voru heima
að undirbúa jólin. Fyrir vikið
fengum við afbragðs þjónustu.“
Ógleymanlegur dagur
Hjónin ráku saman fiskverkun
í fimmtán ár og segja þau þessi
Ástin kviknaði í útilegu
Nýgift hjón þann 19. desember árið 1971. Friðbjörn og Valgerður hlakka til næstu ára og eru stað-
ráðin í því að njóta lífsins í botn.
Valgerður sigurðardóttir og Friðbjörn Björnsson ásamt dætrum sínum þremur. Í þessari samhentu fjölskyldu eru auk
þeirra tengdasynirnir, átta barnabörn og tvö langömmu- og langafabörn.
ár hafa verið góðan tíma fyrir
hjónabandið og fjölskylduna. „Við
framleiddum saltfisk og skreið og
stóðum sjálf í útflutningi seinni
árin. Stelpurnar okkar þrjár höfðu
gaman af því að vera með okkur
þótt þær hafi ekki verið háar í
loftinu í byrjun og var það fjöl-
skyldulífinu ómetanlegt. Auðvitað
tókum við oft vinnuna með okkur
heim þar sem verkunin var það
sem líf okkar snerist um. Það sem
hefur sjálfsagt haft jákvæð áhrif
á þessa miklu samveru okkar var
hvað þetta var allt gaman. Lífið var
sannarlega saltfiskur í þá daga.“
Vala og Böddi endurnýjuðu heit
sín þegar Böddi varð sextugur árið
2012. Hann segir það hafa verið
sína hugmynd. „Mig langaði alltaf
að kvænast Völu aftur þar sem ég
var svo ungur þegar við giftum
okkur. Ég var líka ákveðinn í að
gera eitthvað ógleymanlegt þegar
ég yrði sextugur. Við byrjuðum
daginn á því að bjóða gestum í
golfmót á Úthlíðarvelli. Eftir mótið
stormuðu gestir til Úthlíðarkirkju
þar sem Kristján Valur vígslubisk-
up, vinur okkar, kom og blessaði
samband okkar. Um kvöldið var
haldin veisla að sveitasið.“
Gæðastundir eru góðar
Þau hlakka bæði til næstu ára og
eru staðráðin í því að njóta lífsins.
„Við erum bæði búin að ganga í
gegnum veikindi undanfarin ár.
Ég fékk brjóstakrabbamein og
Böddi hefur farið þrisvar sinnum
í hjartaþræðingu og vonum við
að sá kafli sé endanlega að baki.
Golfið er á hraðri leið með að
verða sameiginlegt áhugamál
okkar og svo eigum við sam-
henta fjölskyldu í dætrum okkar
þremur og tengdasonum, átta
barnabörnum og tveimur lang-
ömmu- og langafabörnum. Það
hefur verið ánægjuefni fjölskyld-
unnar að ferðast, fyrst í tjaldi og
svo í tjaldvagninum. Kannski
hefur upphaf sambands okkar
haft þau áhrif á okkur, hver veit,“
segir Vala.
Þau segjast gera sér grein fyrir
því að ung brúðhjón í dag búi í
allt öðru og hraðara samfélagi en
þau, þegar þau hófu búskap fyrir
nærri hálfri öld síðan. „Umhverfið
gerir meiri kröfur til ungs fólks í
dag en áður. Það keyra færri um
á lélegum bílum og búa í rúm-
lega fokheldum húsum, eins og
margir gerðu hér á árum áður.
Við hvetjum því ungt fólk til sjálf-
stæðis og að haga seglum eftir
þeirra eigin vindaspá. Einnig er
gott að eiga gæðastundir í ró og
næði þar sem þau geta spjallað
um heima og geyma og gleymt
skyldum hverdagsins.“
Valgerður og Friðbjörn endurnýjuðu heit sín í úthlíðarkirkju árið 2012.
2
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
8
-A
E
D
0
1
F
4
8
-A
D
9
4
1
F
4
8
-A
C
5
8
1
F
4
8
-A
B
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K