Fréttablaðið - 24.03.2018, Qupperneq 4
Umboðsaðili Jeep - Þverholti 6 - 270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.jeep.is
www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
®
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT Í JEPPA
LITLI BRÓÐIR GRAND CHEROKEE
DÍSEL 2.0L 140 HÖ. EÐA 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING
ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF MEÐ 4 DRIFSTILLINGUM
VERÐ FRÁ 5.490.000 KR.
Select-TerrainTM fjórhjóladrif með 4 drifstillingum, árekstravörn, akgreinaaðstoð,
leður/tau áklæði, hiti í stýri og framsætum, hraðastillir, snertiskjár, regnskynjari,
LED ljós að framan og aftan,Bluetooth, leðurklætt aðgerðarstýri, varadekk í fullri
stærð, 17” álfelgur o.fl. Einnig fáanlegur með 170 hö. bensínvél, sjálfskiptur.
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
VERÐLÆKKUN
Menntun „Okkar mat að loknum
þessum fundi er að við séum ekkert
að ná saman á þessum tímapunkti
um kjarasamning,“ segir Guðríður
Arnardóttir, formaður Félags fram-
haldsskólakennara. Þungt hljóð er í
forystu félagsins eftir samningafund
hjá Ríkissáttasemjara í gær.
Forysta félagsins og samninga-
nefnd ætla að hittast á mánudag til
að fara yfir næstu skref. „Við höfum
ekki endalaust langlundargeð við
samningaborðið. Við erum búin að
sýna gagnaðila talsvert svigrúm og
erum búin að vera öll af vilja gerð
til þess að ná samningum og hugsa í
lausnum. En núna erum við farin að
hugsa til hvaða aðgerða framhalds-
skólakennarar þurfa að grípa til þess
að knýja á um samning,“ segir Guð-
ríður. Forysta félagsins sé því farin að
skoða verkfallsaðgerðir.
Guðríður segir að krafa framhalds-
skólakennara sé fyrst og fremst sú að
ríkið standi við samning sem gerður
var árið 2014 og Félagsdómur stað-
festi árið 2016, að þær meginbreyt-
ingar sem urðu í framhaldsskólunum
með styttingu náms í þrjú ár hafi falið
í sér viðbótarálag á kennara. Þetta
viðbótarálag eigi að meta, en það hafi
aldrei verið gert.
„Það hafa orðið grundvallarbreyt-
ingar í sumum skólum á sumum
áföngum þar sem er verið að breyta
kennsluháttum og kennslutíma og
það hafa verið einhliða ákvarðanir
af hálfu stjórnenda án samráðs við
kennara,“ segir Guðríður. Hún segir
að lengi vel hafi kennarar vonað að
hægt væri að ná saman um þessi
umsömdu atriði þannig að það yrði
hægt að afgreiða málið í eitt skipti
fyrir öll og það yrði ekki viðvarandi
ágreiningur á milli aðila. Staðan sé
hins vegar orðin sú að kennarar muni
aftur sækja rétt sinn fyrir félagsdómi.
Guðríður segir að samið hafi verið
um nýtt vinnumat kennara árið 2014
þar sem ákveðið var að meta inn í
vinnu kennara ýmsa aðra þætti en
staðna kennslu. Svo sem samsetn-
ingu nemendahópa, hvaða kennslu-
hættir eru notaðir og fleira. Ekkert
fjármagn hafi fylgt þessa nýja vinnu-
mati. „Þannig að í rauninni snýst
þetta um efndir svo að við getum
látið þetta kerfi, sem við sömdum
um og þróuðum, virka,“ segir Guð-
ríður. Kerfið sé andvana fætt ef því
fylgi ekkert fjármagn.
Guðríður segir að fulltrúar kenn-
ara muni ekki ganga frá samninga-
borði núna með óefnd samnings-
ákvæði frá síðasta samningi. „En
framhaldsskólakennarar eru algjör-
lega búnir að fá sig fullsadda á því að
dragast ítrekað aftur úr í kjörum og
við munum gera það sem þarf til að
koma í veg fyrir að slíkt gerist.“
jonhakon@frettabladid.is
Forysta framhaldsskólakennara
er farin að huga að verkfalli
Forystumenn framhaldsskólakennara eru vonlitlir um að samningar við ríkið náist á næstunni. Eru farnir
að huga að verkfalli. Segja ríkið ekki hafa staðið við fyrirheit sem gefin voru í samningum árið 2014. Ekki
tekið tillit til viðbótarvinnu sem fylgdi styttingu náms og fjármagn hafi ekki fylgt nýju vinnumati.
Forystumenn Félags framhaldsskólakennara telja að ríkið hafi ekki efnt ákvæði í samningi frá 2014. Fréttablaðið/Eyþór
Við höfum ekki
endalaust lang-
lundargeð við samninga-
borðið.
Guðríður Arnardóttir,
formaður Félags
framhaldsskóla-
kennara
Smári McCarthy
þingmaður Pírata
sagði starfsemi og
starfsaðferðir
fyrirtækisins
Cambridge
Analytica, sem
safnaði per-
sónuupplýsingum
Facebook-notenda,
vera sálfræðihernað gegn kjós-
endum. Upplýsingarnar voru
nýttar við greiningu á stjórnmála-
viðhorfum fólks til að ávarpa
óákveðna kjósendur. Smári sagði
ríki heims hafa brugðist borgurum
með allt of veikri persónu- og upp-
lýsingaverndarlöggjöf.
Eva Bjarnadóttir
sérfræðingur hjá UNICEF
segir samnorræna
skýrslu frá UNI-
CEF, Barnahjálp
Sameinuðu
þjóðanna, um
stöðu barna í
leit að alþjóðlegri
vernd, sýna að ekk-
ert Norðurlandanna tryggi réttindi
barnanna samkvæmt viðmiðum
Barnasáttmálans.
Annie Mist Þórisdóttir
CrossFit-stjarna
sigraði þegar
fimmta æfinga-
röðin svokallaða,
sem er undanfari
heimsleikanna
í CrossFit, var
kynnt í beinni
útsendingu frá höfuðstöðvum
CrossFit Reykjavík. Hún setti jafn-
framt heimsmet í greininni. Kepp-
endur þurftu að ná sem flestum
endurtekningum og umferðum í
upphífingum og lyftingum á sjö
mínútum.
Þrjú í fréttum
Persónuvernd,
börn á flótta og
heimsmetið
tölur vikunnar 18.03.2018-24.03.2018
króna námu árslaun og hlunnindi
Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eim-
skips, á síðasta ári. Hækkunin frá
2014 var 41 prósent.
tæp er aukning hestaútflutnings frá
árinu 2010. Á síðasta ári voru flutt
út 1.485 hross.
milljarðar króna voru út-
lán Íbúðalánasjóðs í fyrra.
Höfðu þau dregist saman
um 78 milljarða frá árinu
2016.
hafa frá árinu 2010 verið ætluð áfengis- og
vímuefnasjúklingum. Þegar mest var, árið
1985, voru slík sjúkrarúm 265.
ríflega verður varið til
uppbyggingar á fjöl-
sóttum stöðum í náttúru
Íslands og innviðaupp-
byggingar á ferðamanna-
stöðum á næstu þremur
árum. Fjármagnið kemur
úr vasa skattgreiðenda.
var hlutfall atvinnulausra af vinnu-
afli í febrúar. Atvinnulausir eru um
1.200 færri en á sama tíma árið
2017 og hlutfall þeirra lækkaði um
0,6 prósentustig.
2,4% 62
50
0
2,8
milljörðum 103
milljónumsjúkrarúm
30%
2 4 . M a r s 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
7
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-B
9
3
8
1
F
4
C
-B
7
F
C
1
F
4
C
-B
6
C
0
1
F
4
C
-B
5
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K