Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 22
Skipholti 50b • 105 Reykjavík • Sími 569 0900
Fax 569 0909 • lifbank@lifbank.is • www.lifbank.is
Ársfundur 2018
Ársfundur Lífeyrissjóðs bankamanna verður haldinn
miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi kl. 17.15.
Fundurinn verður haldinn á Icelandair Hotel Reykjavík
Natura, Þingsal 2-3.
Dagskrá:
1.
2.
3.
Venjuleg störf ársfundar skv. 6. gr.
samþykkta sjóðsins
Tillögur til breytinga á samþykktum
sjóðsins
Önnur mál
Stjórn Lífeyrissjóðs bankamanna
Tillögur til breytinga á samþykktum Lífeyrissjóðs bankamanna munu
liggja frammi á skrifstofu sjóðsins að Skipholti 50b eigi síðar en viku
fyrir ársfund. Einnig verður hægt að nálgast tillögurnar og allar nánari
upplýsingar á vef sjóðsins www.lifbank.is.
Vakin er athygli á að á fundinum fer fram kosning þriggja stjórnarmanna
af sex og skulu tilkynningar um framboð vegna stjórnarkjörs, ásamt
upplýsingum um starfsferil, berast skriflega til skrifstofu sjóðsins eigi
síðar en tveimur vikum fyrir ársfund skv. 2. grein samþykkta sjóðsins.
Haukar - Keflavík 78-81
Stigahæstir: Paul Anthony Jones 21/11
fráköst, Kári Jónsson 17, Haukur Óskarsson
14 - Guðmundur Jónsson 20, Hörður Axel
Vilhjálmsson 17, Ragnar Örn Bragason 10.
Haukar leiða einvígið 2-1.
Tindastóll - Grindavík 84-81
Stigahæstir: Sigtryggur Arnar Björnsson 21,
Antonio Hester 17, Axel Kárason 12, Pétur
Rúnar Birgisson 7 - Sigurður Gunnar Þor-
steinsson 20, Ingvi Þór Guðmundsson 16,
Dagur Kár Jónsson 15, J’Nathan Bullock 15.
Tindastóll vinnur einvígið 3-0.
Nýjast
Domino’s-deild karla, 8-liða úrslit
Crossfit Annie Mist Þórisdóttir,
Katrín Tanja Davíðsdóttir og Sara
Sigmundsdóttir voru í beinni
útsendingu um allan heim aðfara-
nótt föstudags þegar þær reyndu
fyrstar í heiminum 18.5 æfinguna
sem er hluti af undankeppninni fyrir
CrossFit-leikana. Tæpar tvær millj-
ónir manna fylgdust með í beinni
útsendingu á netinu þegar þær
spreyttu sig á æfingunni í CrossFit
Reykjavík stöðinni. Annie Mist náði
besta árangrinum með 178 endur-
tekningar (e. reps) en skammt undan
voru Katrín Tanja með 176 og Sara
með 171 endurtekningu.
Var með fiðrildi í maganum
Var þetta í fyrsta sinn sem æfing er
tilkynnt í Evrópu. Þar kom Ísland
snemma til greina enda náð ótrúleg-
um árangri á leikunum. Annie Mist
ruddi brautina og varð hraustasta
kona heims 2011 og 2012 en Katrín
Tanja lék það eftir árið 2015 og 2016.
„Þetta var öðruvísi aðdragandi,
sem stöðvareigandi var ég mikið í
starfi milliliðs CrossFit en á mánu-
daginn þurfti ég að loka á allt það
og einblína á að undirbúa mig fyrir
æfinguna,“ segir Annie Mist stuttu
eftir æfinguna.
„Það var góð tilfinning að labba
inn og sjá andlit sem maður þekkir.
Ég held að ég hafi aldrei verið jafn
slök á leiðinni inn í æfingu (e. wod).
Ég er búin að vera með fiðrildi í
maganum af spennu yfir að gera
þetta hérna með stelpunum og fyrir
framan fólkið okkar.“
Upplifun sem hittir í hjartastað
Katrín Tanja sem býr og æfir í Boston
tekur undir orð Annie Mistar en hún
var gífurlega stolt af að fá að æfa fyrir
framan fjölskyldu og vini á Íslandi.
„Þetta er í þriðja skiptið sem ég tek
þátt í svona tilkynningu um næstu
æfingu í CrossFit Open en manni
þykir langmest vænt um þessa, hún
hittir nálægt hjartastað. Fjölskylda
mín var í salnum, bestu vinir mínir
og þjálfarinn minn,“ segir Katrín sem
átti ekki í erfiðleikum með að halda
einbeitingu þó að fjölskylda og vinir
væru í stúkunni.
„Það var gott að sjá þau áður en ég
byrjaði og að geta talað við þau eftir
á en ég tek lítið eftir fólkinu í kring
meðan á æfingu stendur. Ég finn fyrir
orkunni og öskur úr stúkunni getur
veitt manni aukakraft. Annars er ég
bara með einbeitinguna á æfingunni
hverju sinni.“
Katrínu fannst sérstakt að stilla
líkamann inn á að keppa á miðnætti.
„Það var í raun mesta áskorunin,
ég hef aldrei keppt svona seint að
nóttu. Ég var mikið að bíða og var
farin að stressa mig svolítið um
kvöldið en þetta var mjög skemmti-
legt.“
Finnum fyrir miklu þjóðarstolti
Annie og Katrín voru báðar hrærðar
yfir fallegum orðum sem forráða-
menn CrossFit létu falla um Ísland.
Níu ár eru síðan Annie tók þátt í leik-
unum fyrst Íslendinga.
„Ég finn fyrir miklu stolti yfir
árangri okkar, við erum búnar að
standa okkur frábærlega og að fá
þessa tilkynningu hingað er mikil
viðurkenning fyrir Ísland og Cross-
Fit-senuna á Íslandi. Það er erfitt að
lýsa því í orðum þegar maður bíður
og heyrir forráðamennina lofsama
Ísland, ég fyllist stolti. Það hefur
ótrúlega margt breyst frá því ég
keppti fyrst árið 2009, þá var þetta
bara á litlum sveitabæ í Bandaríkj-
unum,“ segir Annie og Katrín er á
sama máli.
„Annie ruddi brautina fyrir
okkur Íslendingana og nú erum við
allar þrjár í þessu og erum að bæta
hver aðra með samkeppninni, við
þurfum hver aðra til að bæta okkur.“
Sara hafði einnig orð á því hversu
stoltir Íslendingar væru af árangri
þeirra.
„Við erum ótrúlega stoltar af
okkar árangri og Ísland líka, það
er þannig með Íslendinga að þegar
einhverjum gengur vel gengur
þjóðinni yfirleitt vel. Við erum góð
í CrossFit, við erum góð í fótbolta.
Þjálfara mínum og umboðsmanni
fannst ótrúlegt hvað við værum
dugleg í að styðja hvert annað sem
þjóð.“
kristinnpall@frettabladid.is
Með fiðrildi í maga af spennu
Annie Mist, Katrín Tanja og Sara frumsýndu næstu
CrossFit-æfingu í beinni frá Íslandi í vikunni. Mikil
virðing var borin fyrir afrekum Íslendinga í CrossFit.
Sara, Katrín Tanja og Annie Mist sáttar og sælar eftir að hafa lokið æfingunni í vikunni en þær voru á fullu í sjö mínútur. FréTTAblAðið/eyþór
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r22 s p o r t ∙ f r É t t a B L a ð i ð
sport
hanDBoLti Íslenska kvennalands-
liðið í handbolta mætir því slóv-
enska í Celje í undankeppni EM á
morgun. Liðin mættust í Laugar-
dalshöllinni á miðvikudaginn og
gerðu 30-30 jafntefli. Það var fyrsta
stig Íslands í undankeppninni.
Íslenska liðið er í fjórða og neðsta
sæti riðils 5 með einu stigi minna en
Slóvenía sem er í 3. sætinu. Tvö efstu
liðin í riðlinum komast í lokakeppni
EM, sem og liðið sem er með bestan
árangur í 3. sæti riðlanna. – iþs
Kemur fyrsti
sigur Íslands?
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-A
F
5
8
1
F
4
C
-A
E
1
C
1
F
4
C
-A
C
E
0
1
F
4
C
-A
B
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K