Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 24

Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 24
M illi fjalls og fjöru er heiti sýn-ingar á verkum Rögnu Róberts-d ó t t u r s e m verður opnuð í Nýlistasafninu í Marshallhúsinu í dag, laugardaginn 24. mars. „Ég er mjög ánægð að fá að sýna hérna í Nýlistasafninu og rýmið er alveg dásamlegt. Fyrsta einkasýning mín var einmitt í Nýlistasafninu á Vatns- stíg árið 1986,“ segir Ragna. Verk Rögnu hafa sterkar skír- skotanir í náttúruna, en þau eru meðal annars úr hrauni, vikri og skeljum. Spurð hvort þar sé um að ræða áhrif úr bernsku segir hún: „Ég held það. Alveg frá því ég var smá- stelpa fór ég mikið í útilegu með foreldrum mínum. Við tjölduðum inni í hraunbreiðunum hjá Heklu, þar sem vikurbreiðurnar svörtu eru. Ég man enn þá eftir því hvernig það var sem krakki að stíga ofan í þær, þá heyrðist mjög sérstakt hljóð. Allt hefur þetta setið í mér. Eldfjallaefn- in sem ég nota við listsköpun mína eru frá sérstökum stöðum á Íslandi, til dæmis vikur frá Heklu og Kötlu. Í Þýskalandi byrjaði ég síðan að nota akrýlagnir og hef þær með í innsetningar. Það er sérstaklega skemmtilegt að nota þær hér á þess- ari sýningu vegna þess að rýmið í Nýlistasafninu er svo fjölbreytilegt.“ Eins og að fara í leiðslu Meðal verka á sýningunni er hraun- verk á vegg. Hraunverk Rögnu hafa vakið athygli víða um heim. „Ég gerði fyrst þannig verk árið 1994. Áður gerði ég verk þar sem ég not- aði sagað hraungrýti. Í útlöndum geri ég mikið af því að setja upp þessi stóru hraunverk. Útlendingar hrífast af þeim, finnst þau spenn- andi og setja hraunið í samband við Ísland.“ Hún segist ekki vera lengi að vinna hraunverkin, jafnvel þótt þau séu afar stór. Vinnuferlið sé þann- ig að nauðsynlegt sé að hafa hraðar hendur „Ég ber lím á veggina og set hraunið þar á smám saman. Það er ekki hægt að stoppa svo ég held bara áfram. Þetta er mikil líkamleg vinna en það er eins og ég fari í leiðslu í tvo til þrjá tíma. Mér finnst alltaf gaman að setja hraunverkin upp.“ Stórbrotið landslag Ragna og eiginmaður hennar, Pétur Arason, skipta tíma sínum milli Berlínar, Reykjavíkur og Arnar- fjarðar þar sem þau eru á sumrin. „Það er dásamlegt að vera fyrir vestan því manni líður svo vel í þessu stórbrotna landslagi. Þarna er svo margt sem hægt er að sjá og skoða og veðrabrigðin eru alveg sérstök,“ segir Ragna. Í Arnarfirði hefur hún tekið eftir breytingu sem veldur henni áhyggjum. „Á sumrin fer ég á hverjum einasta degi niður í fjöru til að tína skeljar, sérstak- lega olnbogaskeljar, og undanfarin ár hafa þær verið að hverfa. Þetta þykir mér ákaflega leitt. Það er lax- eldisstússið þarna sem maður hefur áhyggjur af.“ Ragna segist ekki meðvitað vera að senda skilaboð með verkum sínum. „Ég skapa verk mín af þörf, ég er ekki að predika. Ég fer mína leið og þarna er minn heimur,“ segir hún. Hin sterka náttúrutenging í verkum hennar hlýtur þó að leiða huga áhorfandans að mikilvægi þess að huga vel að náttúrunni. Hún segir að leggja verði aukna áherslu á náttúruvernd. „Ráða- menn virðast ekki skilja hvað það er mikilvægt fyrir okkur að vernda náttúruna. Ég er orðlaus yfir því. Mér finnst samt vera að eiga sér stað vakning hjá mörgum, sérstaklega ungu fólki. Ég vona að hún haldi áfram og málstaðurinn nái eyrum ráðamanna.“ Vegleg bók Samhliða sýningunni í Marshall- húsinu kemur út vegleg bók frá for- laginu DISTANZ um feril Rögnu sem gefur heildstæða mynd af verkum hennar frá 9. áratugnum til dagsins í dag. Þegar blaðamaður hitti Rögnu var hún nýbúin að fá bókina í hend- ur. „Það er óskaplega góð tilfinning, ég var búin að bíða lengi eftir henni. Ég er óskaplega ánægð með bókina.“ Að lokum er Ragna spurð hvort hún sjái sjálf þróun í verkum sínum? „Þessi sýning og bókin hafa hjálpað mér við að sjá þessa þróun. Verkin á sýningunni eru frá öllum tímabilum þannig að þetta er í raun lítil saman- tekt, og það er góð tilfinning að sjá hversu vel verkin smella saman,“ segir hún. Þarna er minn heimur Sýning á verkum Rögnu Róbertsdóttur opn- uð í Nýlistasafninu. Samhliða sýningunni kemur út vegleg bók um feril listakonunnar. „Það er góð tilfinning að sjá hversu vel verkin smella saman.“ Mynd/ I8 Ráðamenn viRðast ekki skilja hvað það eR mikilvægt fyRiR okkuR að veRnda náttúRuna. Ég eR oRðlaus yfiR því. mÉR finnst samt veRa að eiga sÉR stað vakn- ing hjá möRgum, sÉR- staklega ungu fólki. Ég skapa veRk mín af þöRf, Ég eR ekki að pRe- dika. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@frettabladid.is „Mér finnst alltaf gaman að setja hraunverkin upp,“ segir Ragna FRéttablaðIð/anton bRInk 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð helgin 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 C -C 3 1 8 1 F 4 C -C 1 D C 1 F 4 C -C 0 A 0 1 F 4 C -B F 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.