Fréttablaðið - 24.03.2018, Qupperneq 50
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 |
Ólafur H. Hákonarson, olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 | Máté Dalmay, mate@frettabladid.is, s. 512 5442 ,
Ég er mikill sveitastrákur og Hornfirðingur í húð og hár. Heimakær að eðlisfari og ein-
falt, reglusamt líf á best við mig,“
segir Grétar sem sleit barns skónum
á Höfn í Hornafirði.
„Á heimili móðurforeldra minna
var mikil tónlist og Signý amma átti
mjög gott Wagner-píanó sem konur
í Austur-Skaftafellssýslu höfðu gefið
henni í þakklætisskyni fyrir vel
unnin störf, en hún var ljósmóðir.
Ég sat við píanóið eins oft og lengi
og ég mátti og lærði þannig að spila
fyrstu lögin,“ segir Grétar sem náði
fyrst tökum á uppáhaldslaginu sínu,
Blátt lítið blóm eitt er.
„Þegar ég varð fimmtán ára
eignaðist ég tveggja borða Yamaha-
orgel með fótbassa og fékk fljótlega
tækifæri til að spila með eldri og
reyndari tónlistarmönnum á Hótel
Höfn. Með þeim lærði ég að spila
sígild dægurlög, djass-standarda og
gömlu dansana. Það var heilmikill
skóli og hefur alla tíð nýst mér vel,“
segir Grétar og það lá strax í loftinu í
hvaða átt hann stefndi.
„Tónlistin átti hug minn allan,
en ég gat ekki helgað mig henni á
þessum tíma. Eins og aðrir ungir
menn á Höfn vann ég ýmis störf,
eins og í saltfiskverkun, byggingar-
vinnu, málningarvinnu og sópaði
göturnar hjá bænum. Ég kynntist
líka sjómennsku lítillega þegar ég
réð mig, alls óreyndur, sem kokkur
á bát. Ég hafði matreiðslubók frá
ömmu með mér um borð og hún
reyndist mér heldur betur vel
við pottana. En tónlistin togaði
sterkt í mig og mig dreymdi um að
stofna hljómsveit. Hljómsveitin
Tilbreyting varð svo til 1978 og við
spiluðum nánast um hverja helgi í
félagsheimilinu Sindrabæ.“
Vinátta og bræðralag
Hljómsveit Grétars Örvarssonar
hafði spilað í nokkur ár á Hótel
Sögu þegar Grétar fann löngun til að
breyta um áherslur.
„Ég fékk þá Öldu Ólafsdóttur
söngkonu og Matthías Hemstock
trommuleikara til liðs við hljóm-
sveitina. Við byrjuðum að æfa og
hlutirnir gerðust hratt og skemmti-
lega. Alda og Matti höfðu áður verið
í hljómsveit sem gekk undir nafninu
Stjórnin og þegar við áttum í vand-
ræðum með að finna heiti lagði
Alda til að við kölluðum hana bara
Stjórnina. Það varð úr og hljóm-
sveitin tók til starfa í apríl 1988,“
útskýrir Grétar um tilurð Stjórnar-
innar sem stendur á þrítugu.
Síðla sumars það sama ár fékk
Grétar símtal frá skemmtanastjór-
anum Birgi Hrafnssyni.
„Hann tjáði mér að sjálfur Ólafur
Laufdal vildi fá hljómsveitina sem
„húsband“ á Hótel Ísland og þar var
tækifærið komið sem ég þáði með
þökkum. Hljómsveitin lagði á sig
ómælda vinnu sem skilaði sér strax
í miklum vinsældum og staðurinn
var yfirfullur allar helgar. Alda vakti
athygli fyrir söngstíl, sviðsfram-
komu, skrautlega búninga og ekki
síst fyrir frumlega hárgreiðslu.“
Grétar segist ekki hafa séð fyrir
hversu vinsæl Stjórnin yrði.
„Nei, í raun og veru ekki. En með
þennan góða mannskap, sem bjó
yfir mikilli spilagleði og æfði af elju,
kom mér það ekki á óvart. Hlutirnir
gerðust hratt og áður en ég vissi
af vorum við orðin eitt vinsælasta
band landsins.“
Eftir tæpt ár með Stjórninni flutti
Alda til London og Sigga Beinteins
kom í hennar stað.
„Sigga hafði leyst Öldu af í nokkur
skipti á Hótel Íslandi og ég hafði
strax augastað á henni þegar ljóst
var að Alda yfirgæfi bandið. Sigga
var sem betur fer til í að ganga til
liðs við Stjórnina og saman höfum
við haldið um Stjórnartaumana
með mýkt og æðruleysi að leiðar-
ljósi. Á þrjátíu árum hafa margir
komið að samstarfinu. Menn hafa
skipst á skoðunum og ekki alltaf
verið einhuga, en í dag ríkir vinátta
og bræðralag, við njótum þess að
hittast og koma fram saman.“
Ævintýri á sumarnóttum
Stjórnin hefur afmælisárið með
tveimur páskaböllum á Bryggjunni
Brugghúsi, miðvikudaginn 28. mars
og laugardagskvöldið 31. mars. Í
apríl verða tónleikar í Menningar-
húsinu Miðgarði í Skagafirði og
sjálfir afmælistónleikarnir verða í
Háskólabíói 28. september og í Hofi
daginn eftir.
„Við lofum stjórnlausu fjöri og
mikilli spilagleði,“ segir Grétar
kátur. „Við erum að setja saman
og skoða nokkur ný lög sem okkur
langar að gefa út á afmælisárinu.“
Þegar horft er um öxl, til þess
tíma er frægðarsól Stjórnarinnar
reis hæst, segir Grétar það hafa verið
skemmtilegan og krefjandi tíma.
„Þetta var annasamt líf en til-
finningin er góð þegar maður nær
markmiðum sínum og draumar
manns rætast. Ég hafði unnið að því
árum saman að byggja upp vinsæla
hljómsveit og það tókst að lokum.
Því fylgdi mikil ánægja og gleði. Við
vorum á ferð og flugi um allt land.
Sveitaballamenningin var í hámarki
og mikil stemning á böllunum. Fullt
út úr dyrum hvar sem við komum
og íslensk sumarnóttin umvafði
þetta ævintýri okkar.“
Af lögum Stjórnarinnar þykir
Grétari vænst um lag Jóhanns G.
Jóhannssonar, Við eigum samleið.
„Jóhann var góður vinur minn.
Við áttum saman margar stundir
þar sem við sátum á stofugólfinu
heima hjá honum og hlustuðum
á lög af kassettum sem hann hafði
samið. Við eigum samleið er eitt
þeirra, einnig önnur vinsæl lög
sem Stjórnin flutti eins og Ég lifi í
voninni og Ef ekki er til nein ást.
Jóhann var vandaður lagasmiður og
tónlistarmaður.“
Önnur kær minning sem tengist
Stjórninni er þegar hljómsveitin
vann undankeppni Eurovision með
laginu Eitt lag enn árið 1990.
„Það var hápunktur ferils hljóm-
sveitarinnar og skilaði okkur á
sviðið í Zagreb. Alveg ógleymanleg
ferð og lífsreynsla. Ég gleymi því
ekki hve stoltur ég var af frammi-
stöðu hljómsveitarinnar,“ segir
Grétar sem nýtur þess að koma fram
á sviði. „Það eru forréttindi að fá að
spila með jafn hæfu tónlistarfólki og
skipað hefur Stjórnina.“
Grétar óskar Ara góðs gengis í
Lissabon og vonar að Evrópubúar
kunni að meta framlag hans.
„Í öllu falli veit ég af eigin reynslu
að Ari styrkist við áskorunina um
að syngja fyrir alla Evrópu. Þetta er
ógleymanlegt tækifæri fyrir hann.“
Sonur harmóníkupoppara
Grétar er sonur Örvars Kristjáns-
sonar sem var einn ástsælasti
harmóníkuleikari þjóðarinnar.
„Pabbi er í mínum huga mesti
„harmóníkutöffari“ sem Ísland
hefur átt. Hann var eiginlega „harm-
óníkupoppari. Pabbi hafði sinn
persónulega kraftmikla stíl, góða
tilfinningu fyrir lagavali og heillaði
fólk með flutningi sínum. Ég held að
ég hafi fengið tónlistarhæfileikana í
erfðaefnunum frá pabba. Foreldrar
mínir skildu þegar ég var lítill peyi
svo ég ólst ekki upp hjá honum. Ég
man þó vel hve mikið mér þótti til
þess koma þegar ég var lítill strákur
þegar pabbi kom til Hafnar ásamt
hljómsveit og spilaði þar fyrir dansi.
Þá fékk ég að hlusta á hjómsveitina
æfa sig og það þótti mér gaman.“
Örvar spilaði á harmóníkuna í
tuttugu ár á Kanaríeyjum á veturna
og segir Grétar hann líka hafa verið
dáðan þar.
„Meðan pabbi lifði fórum við
Sigga í nokkur skipti til Kanaríeyja
og skemmtum ásamt honum á
þorrablótum. Stuttu eftir að pabbi
lést ákvað ég að heimsækja þá staði
sem hann hafði spilað sem lengst á
og dvaldi þar í nokkrar vikur. Það
var gott að finna hve mikils hann
hafði verið metinn. Margir komu
til mín sem höfðu þekkt pabba,
bæði Íslendingar og útlendingar, og
minntust hans með hlýju og þakk-
læti. Það verður ekki svo auðveld-
lega fetað í fótspor pabba. Hann
var einstakur í sínum tónlistar-
flutningi.“
Lífið er núna
Grétar er fæddur 1959. Hann er
fimm barna faðir og afi sem nýtur
þess að fylgjast með barnabörn-
unum þroskast og dafna.
„Ég á fjórar dætur og soninn Krist-
ján og fjögur barnabörn, vönduð og
vel gerð öllsömul. Tvær dætur mínar
búa í Los Angeles og starfa þar við
tónlist, sú þriðja býr á Akureyri með
sambýlismanni sínum og sú fjórða
býr ásamt fjölskyldu sinni í Mos-
fellsbæ. Næstelsta barnabarn mitt
og nafni fermist á pálmasunnudag
svo það er hátíðisdagur í vændum á
morgun.“
Kristján, sonur Grétars, tók sæti
í Stjórninni þegar Friðrik Karlsson
flutti búferlum til London 1996.
Hann var fastur liðsmaður til ársins
2000 og hefur æ síðan spilað reglu-
lega með hljómsveitinni.
„Það er vissulega gaman að hafa
strákinn með. Ég er ákaflega stoltur
af honum, topp gítarleikari og fag-
maður,“ segir Grétar.
Þessa dagana er Grétar upptekinn
við að undirbúa og bóka Stjórnina
vítt og breitt um landið í tilefni af 30
ára afmæli hljómsveitarinnar.
„Það sem gerir líf atvinnutón-
listarmanns skemmtilegt er fjöl-
breytileikinn og frelsið,“ segir hann.
„Enginn einn dagur er eins og hver
dagur felur í sér ný verkefni. Þá daga
sem ég er að spila er ég upptekinn
við undirbúning og æfingar. Aðra
daga leita ég tilboða, geng frá pönt-
unum á samkomur og dansleiki og
vinn að útsetningum.“
Grétar gaf eftirfarandi heilræði í
tímaritinu Æskunni 1992: „Byrjið
aldrei að reykja! Byrjið heldur aldrei
að neyta áfengis eða nota vímuefni
því slíkt er eintómt böl.“
„Góð vísa er aldrei of oft kveðin
og þessi gömlu heilræði mín eiga
jafn mikið erindi í dag og þá. Þegar
ég var 25 ára gamall tók ég þá
ákvörðun að hætta bæði að reykja
og drekka áfengi. Ég hef reynt að
fylgja því allar götur síðan. Lífið er
núna. Njótum þess, verum þakklát
og kærleiksrík í garð annarra,“ segir
Grétar sem er heilbrigðið uppmálað
og einn af myndarlegustu mönnum
landsins.
„Ég mun seint flokkast undir að
vera heilsugúrú og heilsuátökin
hafa komið í skorpum. Ákveðnum
grunnreglum reyni ég þó að fylgja,
að fá nægan svefn, borða hollt og
hreyfa mig. Ég reyni að sneiða hjá
brauði, borða lítið kjöt og gæti
hugsað mér að hafa fisk í öll mál.“
Spurður út í ástamálin svarar
Grétar að bragði: „Ég er umvafinn
ást og kærleika og nýt hvers dags.“
Grétar ætlar að spila í einkasamkvæmi í kvöld en á morgun fer hann í fermingu afastráks síns og nafna. MYND/EYÞÓR
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
Full búð af
nýjum vörum
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-3
E
8
8
1
F
4
D
-3
D
4
C
1
F
4
D
-3
C
1
0
1
F
4
D
-3
A
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K