Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 52

Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 52
Smart föt, fyrir smart konur Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 Stærðir 38-52 Netverslun á tiskuhus.is Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Flott föt, fyrir flottar konur Stærðir 38-58 HEIMILI OG SKÓLI ÓSKA EFTIR TILNEFNINGUM TIL FORELDRAVERÐLAUNA 2018 Tilnefningar sendist með því að fylla út rafrænt eyðublað á heimiliogskoli.is. Hægt er að tilnefna til Foreldraverðlauna en einnig má tilnefna dugnaðarfork Heimilis og skóla. Síðasti skiladagur tilnefninga er 10. apríl 2018. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Einn af eftirminnilegustu viðburðum tónlistarhátíðar-innar Sónar, sem haldin var í Hörpu um síðustu helgi, voru tón- leikar tónlistarmannsins Bjarka. Sjálfsagt kannast ekki allir við nafnið en Bjarki hefur þó skapað sér gott orð á erlendri grundu og verið á miklu ferðalagi undanfarin ár þar sem hann hefur fyllt tón- listarhús, næturklúbba og stærstu tónleikasvið um allan heim. Tónleikarnir um síðustu helgi voru fyrstu stóru tónleikarnir hans á Íslandi og var öllu tjaldað til að hans sögn. „Það er eitt að spila í útlöndum en allt annað að spila hér á Íslandi í kringum fólkið sitt. Ég á marga ættingja sem fylgjast með mér og meira að segja mamma mín og 86 ára gömul amma mín sóttu tónleikana. Ég lagði mikla vinnu í undirbúning tónleikanna. Þar naut ég m.a. aðstoðar æskuvina minna Daníels Arnar Heimissonar og Baldvins Vernharðssonar, fyrirtækisins Irma, Inga Kristjáns og Einars Þor- björnssonar auk Gabríels Brynjars og Ingibjargar Írisar sem rekur útgáfufyrirtækið bbbbbb Records með mér. Ég er bara nokkuð ánægður með árangurinn og fann strax að áhorfendur voru mjög vel með á nótunum. Ég þakka bara fyrir mig, þakka þeim sem mættu og einnig forráðamönnum Sónar.“ Mikið ævintýri Undanfarin ár hafa verið mjög annasöm hjá Bjarka sem hefur m.a. komið fram í öllum löndum Evrópu, í Ísrael, Líbanon og Túnis, í Mið- og Suður-Ameríku og Bandaríkjunum, í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Japan. „Auð- vitað hefur þetta verið talsvert ævintýri en um leið mikil vinna sem krefst þess að ég sé með fulla athygli allan tímann. Það gengur t.d. alls ekki upp að fá sér einn eða tvo bjóra í vinnunni. Slíkt er bara ófagmannlegt og gengur aldrei upp. Ég hef yfirleitt verið einn á ferð og stundum er maður að spila á nokkuð vafasömum stöðum og því betra að vera vel vakandi. Oft sér maður skuggahliðar mann- legrar tilveru, hóflausa áfengis- og eiturlyfjaneyslu og fólk sem er hreinlega að eyðileggja sjálft sig. Þetta eru skuggahliðar tónleika- haldsins. Björtu hliðarnar eru þær að kynnst góðu og vönduðu fólki sem endurgeldur kurteisi með kurteisi, gleði með gleði og þann- ig verður til vinátta sem maður eignast bæði meðal áhorfenda og tónleikahaldara. Öllum þykir hrósið gott og það fær mann til að líða betur í hjartanu og vonandi er það vegna þess að fólk kann vel að meta tónlistina og útrásina sem henni fylgir.“ Byrjaði á Blönduósi Tónlistaráhuga Bjarka má rekja til æskuráranna á Blönduósi þar sem hann kynntist bræðrum sem bjuggu til tónlist í tölvum. „Ég varð dolfallinn og byrjaði að fikta. Átján ára hélt ég til Hollands og lauk þar námi í hljóðverkfræði þar sem ég lærði m.a. uppbyggingu tónlistar, framreiðslu hennar og fleira sem síðan hjálpaði mér við tónsmíðar. Þannig varð tónlistarmaðurinn Bjarki til sem hverfur daglega inn í tónsmíðar sínar og óskar þess heitast að fá næði fyrir hugsanir og tjá þær í gegnum tóna. Af og til vil ég segja frá og þá ferðast ég um heiminn og tjái hugsanir, tilfinn- ingu og reynslu í gegnum tóna sem ég vinn í að þróa til þess sem ég tel réttast.“ Eftirspurnin eykst Segja má að straumhvörf hafi orðið í lífi hans þegar hann kynntist rússnesku tónlistarkonunni og útgefandanum Ninu Kraviz árið 2014. „Við kynntumst eitt kvöld í Kaupmannahöfn og í kjölfarið sendi ég henni nokkur tóndæmi. Hún varð nokkuð hrifin og þar með hófst samstarf okkar. Nina hefur glöggt eyra fyrir því hvað áhangendur teknótónlistar vilja. Hún hvatti mig áfram og spilaði m.a. lög eftir mig á tónleikum víða um heim. Þar að auki gaf hún út plötur á vínyl með gömlum og nýjum lögum eftir mig sem seldust þokkalega. Um leið varð til eftir- spurn eftir mér og fyrr en varði var ég farinn að spila á jafnvel gríðar- lega stórum tónleikum víða um Evrópu, Ameríku og víðar.“ Kynnir framtíðina Lítil afslöppun er fram undan hjá Bjarka sem heldur áfram að ferðast um heiminn en líka að kynna íslenska tónlist, m.a. gegnum bbbbbb Records. „Ekkert fæst án fyrirhafnar. Síðustu ár hafa verið afar erfið og innihaldið mikil ferðalög sem eru þreytandi þegar til lengdar lætur. Ég hef verið að einblína á að kynna íslenska dans- tónlist erlendis, m.a. Volruptus, Lord Pusswhip og dj. flugvél og geimskip sem eru í miklu uppá- haldi. Sömuleiðis er tvöföld safn- plata væntanleg í sumar sem mun heita Future Sound Of Selfoss og mun innihalda margt af því besta frá nýrri framtíð íslenskrar dans- tónlistar.“ Bjarki hefur einnig haldið litla tónleika með Ninu Kraviz um mitt sumar úti í náttúru landsins og boðið útlendum blaðamönnum þar sem hann hefur bæði kynnt landið fyrir þeim og tónlistina. „Í sumar mun ég halda svipaða tónleika einn. Þeir verða ekki fjöl- mennir, kannski um 500 manns, og um helmingur gesta kemur frá útlöndum. Aðalatriðið er að kynna landið og tónlistina, gleðja fólk og deila út hamingju.“ Hlusta má á tónlist Bjarka m.a. á Spotify og Soundcloud. Ekkert fæst án fyrirhafnar Einn af hápunktum Sónar um síðustu helgi voru tónleikar tónlistarmannsins Bjarka. Þrátt fyrir að vera lítt þekktur hér á landi hefur hann skapað sér nafn erlendis. Tónleikar Bjarka voru einn af hápunktum tónlistarhátíðarinnar Sónar um siðustu helgi. MYND/SÓNAR REYKJAVÍK Stendur undir nafni 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 8 F B 1 4 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 4 D -2 A C 8 1 F 4 D -2 9 8 C 1 F 4 D -2 8 5 0 1 F 4 D -2 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.