Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 54
Twitter getur verið
grimmur staður,
ekki síst fyrir konur og þá
sem tilheyra minnihluta-
hópum.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja að Twitter hafi
brugðist í baráttunni gegn staf-
rænu ofbeldi gegn konum. Þetta
kom fram í skýrslu frá samtök-
unum sem var birt á miðvikudag, á
12 ára afmæli Twitter.
Twitter getur verið grimmur
staður, ekki síst fyrir konur og þá
sem tilheyra minnihlutahópum.
Amnesty International hefur
rannsakað upplifun kvenna af
samfélagsmiðlum vandlega yfir
langt tímabil og í skýrslu sinni um
niðurstöðurnar gagnrýna sam-
tökin Twitter harðlega.
Twitter fær harða
gagnrýni frá Amnesty
Mannréttindasamtökin Amnesty International birtu í vikunni skýrslu þar sem samfélagsmiðillinn
Twitter er harðlega gagnrýndur fyrir að bregðast hlutverki sínu við að vernda kvenkyns notendur.
Skýrsla Amnesty International gagnrýnir Twitter harðlega fyrir að beita sér ekki gegn stafrænu ofbeldi. MYNDIR/AMNESTY INTERNATIONAL
Lítið samræmi í viðbrögðum
Twitter hefur hlotið mikla gagn-
rýni fyrir að framfylgja sínum eigin
reglum ekki nægilega vel. Amnesty
segir að það sé lítið samræmi í
viðbrögðum samfélagsmiðilsins
við kvörtunum vegna óviðeigandi
notkunar, jafnvel þótt þær brjóti
reglur miðilsins. Oft er tilkynn-
ingum um óviðeigandi hegðun
ekki sinnt og hún látin afskiptalaus.
Einn breskur blaðamaður sagði
Amnesty að aðeins tvö af þeim
hundrað óviðeigandi tístum sem
hún tilkynnti hefðu verið fjarlægð.
Til eru dæmi um að notendur
hafi fengið bann fyrir að deila
hótunum sem þeir fengu í gegnum
miðilinn og konum sem hafa til-
kynnt nauðgunarhótanir hefur
verið sagt að þau skilaboð brjóti
ekki reglur Twitter.
Twitter gerir ekki nóg
Amnesty sakaði Twitter um að
virða ekki réttindi kvenna með
því að upplýsa notendur ekki um
hvernig miðillinn túlkar reglur
sínar og framfylgir þeim til að
koma í veg fyrir
eitrað efni.
Afleiðingin af
þessu er sögð
vera morðhót-
anir, nauðg-
unarhótanir,
kynþáttahatur
og hatur gagn-
vart transfólki
og hinsegin fólki,
sem bitni sérstak-
lega á konum.
Amnesty
gerði könnun
meðal 1.100 breskra kvenna fyrir
skýrsluna og í henni kom fram að
aðeins 9% töldu Twitter gera nóg
til að stöðva stafrænt ofbeldi gegn
konum, en 78% fannst Twitter
ekki vera staður þar sem þær gætu
deilt skoðun sinni án þess að fá yfir
sig reiðiöldu.
Tröllin eru að vinna
Kate Allen, framkvæmdastjóri
Amnesty International í Bret-
landi, sagði að Twitter væri orðinn
„eitraður staður fyrir konur“ og að
„í alltof langan tíma hafi Twitter
verið staður þar sem konur geta
auðveldlega orðið fyrir morðhót-
unum eða nauðgunarhótunum og
árásum á kyn, kynþátt og kyn-
hneigð þeirra.
Tröllin eru að vinna eins og er,
því að þrátt fyrir endurtekin loforð
hefur Twitter ekki gert nóg til að
stöðva þau,“ sagði Allen. „Twitter
þarf að beita sér með ákveðnum
hætti til að mæta og fyrirbyggja
stafrænt ofbeldi gagnvart konum á
sínum vettvangi.“
Jaðarsettir eru vinsæl
skotmörk
Opinberar persónur voru mjög
oft skotmörk, en aðrar konur
urðu líka fyrir stafrænu ofbeldi,
sérstaklega ef þær tjáðu sig um
kynjamisrétti eða notuðu myllu-
merki herferða. Amnesty sagði að
þótt herferðir eins og #MeToo hafi
styrkjandi áhrif, þá mæti þátttak-
endur oft mótlæti.
Amnesty talaði líka
um að konur í minni-
hlutahópum verði
fyrir sérstöku ofbeldi
út frá því hverjar þær
eru og sagði að þetta
gæti haft þau áhrif
að reka jaðarsettar
raddir frekar út úr
almannaumræðu.
„Getum ekki eytt
fordómum og
hatri“
Amnesty sagði að
samkvæmt reglum Sameinuðu
þjóðanna um viðskipti og mann-
réttindi bæri Twitter skylda til að
fyrirbyggja mismunun og mis-
notkun á tjáningarfrelsi og mæta
þessum vandamálum á gagnsæjan
hátt.
Twitter er ósammála niður-
stöðum Amnesty og bar fyrir sig
að miðillinn gæti ekki „eytt hatri
og fordómum úr samfélaginu“ og
ítrekaði að „móðgandi og haturs-
full hegðun gagnvart konum, þar
á meðal áreitni og beinar hót-
anir um ofbeldi, væri bönnuð á
Twitter“.
Fyrirtækið sagðist líka hafa gert
yfir 30 breytingar á miðli sínum á
síðustu 16 mánuðum til að auka
öryggi og hefði meðal annars
fjölgað tilfellum þar sem það beitti
sér vegna móðgandi tísta.
Amnesty berst fyrir því að
Twitter framfylgi reglum sínum
betur undir myllumerkinu
#ToxicTwitter.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind
GALLAJAKKI
13.990
512 SLIM TAPER
12.990
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A R S 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
8
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
D
-1
7
0
8
1
F
4
D
-1
5
C
C
1
F
4
D
-1
4
9
0
1
F
4
D
-1
3
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K