Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 109
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, ræðir við öldunga í Jijga í Eþíópíu um árangur starfsins á svæðinu í október 2017.
Orðið valdefling er mikið notað í um-
ræðunni um samfélagsmál um þessar
mundir og á kaffistofum heyrist sagt
að það sé nú bara enn einn innantómi
frasinn sem notaður sé án aðgerða
sem leiði til raunverulegra breytinga í
lífi fólks. Við hjá Hjálparstarfi kirkjunn-
ar fullyrðum hins vegar að valdefling
sé aðferð sem best virki til þess að
hjálpa fólki til sjálfshjálpar og leiði þar
með til sjálfbærni og aukinnar al-
mennrar farsældar. Við höfum orð
fólksins sem við vinnum með til þess að
rökstyðja mál okkar:
„Fjárhagslegt sjálfstæði kvennanna
hefur haft mest að segja um framfarir
hér,“ sagði öldungur á starfssvæði
Hjálparstarfs kirkjunnar í Jijiga í
Eþíópíu þegar Bjarni Gíslason fram-
kvæmdastjóri spurði hann í október
2017 hvernig verkefni Hjálparstarfsins
hefði breytt aðstæðum fólksins hans.
„Jú,“ sagði hann, vissulega hefði aukið
aðgengi að vatni komið öllu af stað og
aðstoð í landbúnaði og búfjárrækt
bætt lífsskilyrðin á svæðinu svo um
munaði en ef hann ætti að nefna eitt-
hvað eitt, sem stæði upp úr og sem
breytti aðstæðum til lengri tíma litið,
væru það valdeflingarverkefnin í þágu
kvennanna á svæðinu sem gerðu það.
Aðstæður hafa lengi verið þannig í Ji-
jiga að jafnrétti kynjanna er ábótavant
en ójafnréttið má rekja til rótgróinnar
menningar á svæðinu. Konur hafa verið
háðar ákvörðunum eiginmanna sinna
um flest í daglegu lífi. Þær hafa hins
vegar séð um að selja framleiðslu fjöl-
skyldunnar á markaði, eldamennskuna,
sækja eldivið og vatn ásamt því að sjá
um börnin.
Konurnar hafa ekki haft völd til að taka
ákvarðanir um landnotkun, búfénað
eða fjármál heimilisins. Þær hafa hvorki
fengið tilboð um þjálfun eða fræðslu
frá stjórnvöldum né heldur sæti við
ákvarðanatökuborðið um sveitar-
stjórnarmál. Konur hafa heldur ekki
haft aðgengi að fjármagni til að hefja
eigin atvinnurekstur. Þetta valdaleysi
kvennanna í fylkinu hefur haft neikvæð
áhrif á heilsu og lífsafkomu kvennanna
og fjölskyldna þeirra.
Stór þáttur í verkefni Hjálparstarfsins
á svæðinu er að stuðla að auknu valdi
og áhrifum kvenna en síðan árið 2014
hafa um 400 konur tekið þátt í sparnað-
ar- og lánahópum kvenna og sem eru
starfandi nú. Konurnar hafa fengið
fræðslu um það hvernig koma má auga
á arðbærar viðskiptahugmyndir, hvar
og hvenær er best að stunda mismun-
andi viðskipti og upplýsingar um
sparnaðarleiðir og lánamöguleika.
Konur sem hafa áhuga á að hefja at-
vinnurekstur fá tækifæri með því að
vinna saman í hópum sem bera sameig-
inlega ábyrgð á verkefnum.
Konurnar hafa fengið fræðslu og lán
en hver og ein fær sem svarar um
22.000 krónum til að hefja atvinnu-
rekstur svo sem geitarækt, laukrækt
og smáverslunarrekstur. Konurnar
greiða lánin til baka og nota síðan tekj-
ur af rekstrinum til þess að greiða
kostnað við skólagöngu barna sinna og
til þess að kaupa dagvöru, fatnað og
nytjahluti fyrir heimilið. Síðast en ekki
síst hafa tekjurnar nýst til að kaupa
vatn yfir versta þurrkatímann. Til þess
að ýta undir breytingar er jafnframt
fundað með skoðanaleiðtogum í fylkinu
um leiðir til að afnema skaðlegar venj-
ur eins og limlestingar á kynfærum
kvenna og það að gefa stúlkur barn-
ungar í hjónaband.
Öldungurinn sagði við Bjarna að kon-
urnar hefðu öðlast aukið sjálfstæði
eftir að hafa sótt sér fræðslu um versl-
unarrekstur og fengið lán til að hefja
rekstur smávöruverslana. Þetta aukna
sjálfstæði sagði hann hafa leitt til
betra samkomulags milli hjóna og að
með auknum tekjum fjölskyldunnar
væri hægt að fæða og klæða börnin og
koma þeim í skóla. Með auknu sjálf-
stæði hefðu konurnar líka fengið meira
sjálfstraust og að það leiddi til þess að
á þær væri hlustað og að þær væru nú
frekar með í því að taka ákvarðanir um
samfélagsmál.
Kjarninn í náminu á þremur mánuðum
„Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna hefur
haft mest að segja um framfarir hér“
Margt smátt ... – 9
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-D
1
E
8
1
F
4
C
-D
0
A
C
1
F
4
C
-C
F
7
0
1
F
4
C
-C
E
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K