Fréttablaðið - 24.03.2018, Síða 110
Að minnsta kosti 600 þúsund Rohingjar hafa
flúið frá Myanmar frá því í lok ágúst 2017 þegar
stjórnarherinn og vígasveitir búddista í Rak-
hine-héraði réðust á fólkið.
Aðildarstofnanir Alþjóðlegs hjálparstarfs
kirkna, ACT Alliance, Christian Aid, DCA, Diakonia
og ICCO Cooperation hafa aðstoðað Rohingja á
flótta í Bangladesh frá því í október 2017. Næstu
tvö ár munu þær tryggja þúsundum fjölskyldna
mat og drykk, þak yfir höfuðið, hreinlætisað-
stöðu, heilsugæslu og læknisþjónustu. Fólki með
áfallastreitu er sinnt sérstaklega með sálræn-
um stuðningi.
Móttökusamfélagið í Cox‘s Bazar í Bangladesh
fær auk þess stuðning til þess að halda úti þjón-
ustu en bágir innviðir í einu fátæktasta samfé-
lagi heims duga skammt þegar stór straumur
flóttafólks þarf á aðstoð að halda. Í desember
síðastliðnum gerðu svo Alþjóðlegt hjálparstarf
kirkna, ACT Alliance, og Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF, með sér samkomulag um að
starfa saman að því að tryggja enn frekar að
börn á svæðinu njóti verndar og stuðnings.
Utanríkisráðuneytið samþykkti í febrúar beiðni Hjálp-
arstarfsins um styrk til að aðstoða stríðshrjáða Sýr-
lendinga og Hjálparstarfið sendi í beinu framhaldi alls
26 milljónir og 330 þúsund króna framlag Íslendinga
til Lútherska heimssambandsins í Jórdaníu. Þar fær
flóttafólk sem er nýkomið yfir landamærin aðstoð við
að koma sér fyrir í nýju samfélagi, sálfélagslega þjón-
ustu og stuðning við að afla sér lífsviðurværis.
Í Jórdaníu er flóttafólk frá Sýrlandi um 650 þúsund
talsins. Lútherska heimssambandið aðstoðar meðal
annars með því að bjóða upp á starfsnám og greiðslu
fyrir vinnuframlag. Skólagjöld eru greidd fyrir nem-
endur og konur fá þjálfun og aðstoð við að koma sér
upp smávöruverslun sér til lífsviðurværis. Börnum og
unglingum er veittur sálrænn stuðningur og konum er
veitt sálfélagsleg þjónusta.
Aðstoðin er liður í heildstæðu verkefni Alþjóðlegs
hjálparstarfs kirkna, ACT Alliance, sem bað aðildar-
stofnanir sínar um 10,2 milljónir Bandaríkjadala til að
veita 180 þúsund manns mannúðaraðstoð vegna
átakanna í Sýrlandi á árinu 2018. Aðstoðin er veitt
innan landamæra Sýrlands, í Jórdaníu og í Líbanon en
langflestir þeirra sem flýja átökin í Sýrlandi leita hæl-
is í þessum tveimur nágrannaríkjum.
Átökin í Sýrlandi hafa nú varað í sjö ár og meira en
helmingur íbúanna hefur neyðst til að yfirgefa heimili
sín. Samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna þurfa nú 13,5 milljónir Sýrlendinga á mannúðar-
aðstoð að halda, þar af eru 6,3 milljónir íbúa á ver-
gangi innan landamæra Sýrlands. Um 13 milljónir
manns hafa ekki aðgengi að heilbrigðisþjónustu og 5,8
milljónir íbúanna hafa verið í eldlínunni oftar en einu
sinni og endurtekið þurft að yfirgefa heimili sín. Um
helmingur þeirra sem eru á flótta eru á barnsaldri.
Neyð þeirra er mikil og þörfin fyrir aðstoð er brýn.
Ung stúlka lyftir litla bróður á loft. Þau eru nýkomin yfir landamærin frá
Myanmar í Kutupalong flóttamannabúðir í útjaðri Cox’s Bazar í Bangladesh
þar sem þau njóta aðstoðar Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna, ACT Alliance.
Mynd tekin með leyfi foreldra: ACT Alliance/Paul Jeffrey.
Alþjóðlegt
hjálparstarf kirkna
aðstoðar Rohingja
í Bangladesh
til ársloka 2019
Brýn mannúðaraðstoð
veitt stríðshrjáðum Sýrlendingum
Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna veitir börnum á flótta frá Sýrlandi sálrænan stuðning og greiðir skólagjöld fyrir þau til sveitarfélaga í Jórdaníu sem taka á móti flóttafólkinu.
10 – Margt smátt ...
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
C
-D
6
D
8
1
F
4
C
-D
5
9
C
1
F
4
C
-D
4
6
0
1
F
4
C
-D
3
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K