Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 114

Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 114
Hvernig er að heita Albertína Friðbjörg? Er saga bak við nafnið? Það hefur bæði kosti og galla að heita jafn sérstöku nafni og Albertína Friðbjörg er. Kostur­ inn er að fólk man yfirleitt eftir nafninu mínu, en gallinn er má segja sá sami – fólk man yfirleitt eftir nafninu mínu. Ég er ann­ ars alnafna langömmu minnar, Bertu á Grænagarði, en hún hét Albertína Friðbjörg Elíasdóttir. Hún var hins vegar ávallt kölluð Berta sem olli því að Friðbjar­ garnafnið gleymdist þegar ég var skírð. Ég vildi hins vegar endilega vera alnafna hennar og þegar ég var orðin 18 ára fór ég og lét bæta því við. Ertu hamingjusöm með nýja starfið? Ég er það sannarlega. Þetta er virkilega áhugavert, fjöl­ breytt og krefjandi starf þar sem enga rútínu er að finna sem hentar mér vel. Ekki skemmir fyrir að vera í langskemmtilegasta þing­ flokknum. Eini gallinn er líklega sá að Alþingi er staðsett í Reykjavík en mér þykir alveg sérstaklega gott að búa á Akureyri. Þekktir þú einhvern í þinginu þegar þú komst þangað? Það vill svo skemmtilega til að ég þekkti töluvert marga í þinginu þegar ég kom þarna, en ég hef síðustu ár verið í störfum sem hafa krafist þess að ég væri í nokkrum sam­ skiptum við þingmenn. Þá sitja sömuleiðis með mér á þingi tveir þingmenn sem tengjast mér nokkuð nánum fjölskyldubönd­ um; Halla Signý Kristjánsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson, þannig að ég hef þekkt þau töluvert lengur en aðra á þingi. Hver eru þín helstu baráttumál? Byggðamál, orkumál, nýsköpun og jafnréttismál eru mér ávallt ofarlega í huga, enda endurspegla þeir málaflokkar vel bakgrunn minn og reynslu. Þó ég nefni þessa málaflokka hef ég áhuga á fjölmörgum öðrum málaflokkum og bý til að mynda að því að hafa kennt á öllum skólastigum nema leikskólastigi. Hvaðan ertu og hvernig var upp- vöxturinn? Ég er fædd og upp­ alin á Ísafirði sem var yndislegur staður að alast upp á. Ísafjörður er einn af þessum mögnuðu stöðum þar sem er alltaf eitthvað um að vera og alltaf nóg að gera. Ég var eins og flestir Ísfirðingar skráð í Tónlistarskólann sex ára og æfði gönguskíði. Ég á stóra fjölskyldu á Ísafirði og var dýrmætt að eiga þau ávallt að í uppvextinum og auð­ vitað enn þó það sé aðeins lengra að fara núna. Hefurðu unnið í fiski? Já, ég vann eitt sumar í Íshúsfélagi Ísfirðinga, en ég held að langflestir jafnaldra minna á Ísafirði hafi unnið í fiski, að minnsta kosti eitt sumar ef ekki lengur. Þú starfaðir sem organisti í kirkjum vestra, hvernig var það? Það var virkilega gaman! Ég datt inn í þetta starf í afleysingum, en þetta var sannarlega dýrmæt og góð reynsla. Það eru fáir kórar jafn skemmtilegir að vinna með og kirkjukórar og það voru sannar­ lega forréttindi að starfa með kór­ unum fyrir vestan en þar er bæði hæfileikaríkt og stórskemmtilegt söngfólk. Af hverju fluttir þú frá Ísafirði til Akureyrar? Í stuttu máli, þá sótti ég um áhugavert starf og fékk það. Þetta var kannski ekki alveg svo einfalt, en í grunninn stóð ég á ákveðnum tímamótum í lífi mínu og langaði að breyta til og spreyta mig á nýjum stað. Þetta var ákvörðun sem reyndist hárrétt fyrir mig á þeim tímapunkti og tóku Akureyringar virkilega vel á móti mér í alla staði. Nærðu að fylgjast með fréttum? Ég hef alltaf verið og er enn alger fréttafíkill. Ég reyni því nú sem áður að fylgjast vel með fréttum enda fjölmiðlar oft nefndir fjórða valdið og mikilvægt að vera með á nótunum. Hvernig verðu helgunum helst? Ég reyni að fara alltaf heim á Akureyri eftir að þingstörfum lýkur í lok vikunnar og vinn þar þá á föstudegi. Helgarnar fara svo yfirleitt í alls kyns afþreyingu, úti­ vist, að hitta góða vini og oftar en ekki mæti ég á tónleika á Græna hattinum eða viðburði hjá Menn­ ingarfélagi Akureyrar. Hvert er mesta ævintýri sem þú hefur lent í? Ég hef lent í alls kyns ævintýrum, sum þeirra eru ógleymanlegri en önnur. Svona í fljótu bragði er þó líklega eftirminnilegast að hafa fengið botnlangabólgu þar sem ég var á námskeiði í Eistlandi. Mér tókst raunar að ferðast til tveggja landa með botnlangabólguna, en þetta er því miður full löng saga til að deila í svona stuttu viðtali, en hún er býsna kostuleg og geta áhugasamir spurt mig um söguna við tækifæri. Fólk man yfirleitt eftir nafninu mínu Að vera í fjölbreyttu og krefjandi starfi þar sem enga rútínu er að finna hentar Albertínu Friðbjörgu alþingismanni vel. Hún er í Sam- fylkingunni og telur sig tilheyra langskemmtilegasta flokknum. Í Hrísey hitti Albertína þennan heiðursmann, gerðan af Aðalheiði Eysteinsdóttur listakonu. „Eini gallinn er líklega sá að Alþingi er staðsett í Reykjavík en mér þykir sérstaklega gott að búa á Akureyri,“ segir Albertína um starf sitt. MyNd/AuðuNN NÍElssoN 30. janúar 2018 Geðheilbrigðismál Nú berast fregnir af því að taka eigi fjármagn frá farsælu teymi á sviði geðheilbrigðisþjónustu. Um er að ræða teymið Geðheilsa – eftir- fylgd sem starfað hefur náið með félagasamtökunum Hugarafli sem hlotið hafa mikið lof fyrir störf sín í þjónustu við þá aðila sem glíma við andlega erfiðleika. Nú stendur til að efla þjónustu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins í geðheilbrigðismálum sem er löngu tímabært skref en ég spyr hæstvirtan ráðherra: Er metnaður hennar ekki meiri en svo að loka eigi farsælu og framsæknu úrræði og setja starfsemi Hugarafls í upp- nám til að fjármagna breytingar á starfsemi Heilsugæslunnar? 8. febrúar 2018 Flutningskerfi raforku á landsbyggðinni Staðreyndin er sú að við erum nú þegar með buxurnar niðrum okkur þegar kemur að flutningskerfi raforku landsins. Segjum að einhver hafi áhuga á að byggja upp fyrirtæki á Akur- eyri sem þyrfti tíu megavött til starfsemi sinnar. Þau megavött er mjög erfitt, ef ekki ómögulegt, að nálgast vegna þeirrar stöðu sem uppi er í flutningskerfinu í dag. Staðan á Akureyri er raunar sú að nokkur fyrirtæki hafa tekið í notkun olíukatla. Það hlýtur að vera óásættanlegt fyrir Ísland sem stærir sig af endurnýjanlegri orku og grænum markmiðum. Þekktu þingmanninn Albertína Friðbjörg Elíasdóttir Kjördæmi: Norðausturkjördæmi Flokkur: Samfylkingin Fædd: 1980 Hvaðan: Fædd og uppalin á Ísa- firði, búsett á Akureyri Maki: Dofri Ólafsson Börn: Engin Menntun: BA í félagsfræði og MSc í landfræði Áhugamál: Starfið, matargerð, útivist og tónlist störf: Framkvæmdastjóri, verk- efnastjóri, fablabari, kennari Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Albertína með hópi samfylkingarkvenna á Akureyri. Æskuvinkonur að vestan mættu til Akureyrar að fagna úr- slitum kosninganna. Úr þingræðum Albertínu: H e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ðh G46 l A U G A R D A G U R 2 4 . m A R s 2 0 1 8 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 1 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 4 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 C -F E 5 8 1 F 4 C -F D 1 C 1 F 4 C -F B E 0 1 F 4 C -F A A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.