Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 118

Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 118
aðilar sem gætu beitt sér gegn öllum hugmyndum um bann. Raunar hafði Templurum orðið mikið ágengt í baráttu sinni gegn áfengisdjöflinum á upphafsárum tuttugustu aldar. Neysla áfengra drykkja dróst jafnt og þétt saman og sífellt fleiri völdu bindindi sem lífsstíl. Líklega hafa Íslendingar aldrei, frá því að millilandaverslun hófst fyrir alvöru, drukkið jafn lítið og fyrsta ár áfengisbannsins, enda gerði heims­ styrjöldin það að verkum að lítið var um skipakomur og þar með smygl, auk þess sem landsmenn höfðu enn ekki náð tökum á landabruggun. Í deilunum um áfengisbannið fór nánast ekkert fyrir umræðum um bjór. Bjórinn hafði raunar náð nokk­ urri fótfestu hér á landi undir lok nítjándu aldar, einkum á knæpum Reykjavíkur. Tengslin við Dan­ mörku skiptu hér nokkru máli, enda í landinu hálfdönsk kaupmanna­ stétt sem alin var upp við að kneyfa öl og dönsku fyrirtækin Carlsberg og Tuborg í fararbroddi á heimsvísu í að tappa lagerbjórum á flöskur og selja út um allt. Bjórinn var þó tal­ inn litlu skipta í heildarmyndinni samanborið við danska brennivínið sem einkum rann um kverkar lands­ manna. Oft er því haldið fram að áfengis­ bannið hafi engum árangri skilað og að drykkjuskapur hefði jafnvel aldrei verið meiri en á bannárunum. Endurómar sú umræða svipaðar staðhæfingar um bannárin í Banda­ ríkjunum, sem í hugum margra voru einkum tími leynivínsölu og skipu­ lagðrar glæpastarfsemi. Hið rétta er að rannsóknir benda til að í báðum löndum hafi neysla dregist verulega saman á banntímanum. Á hinn bóginn er það rétt að bann­ lögin voru þverbrotin og kom þar margt til. Ýmsar undanþágur voru veittar frá banninu og munaði þar einna mestu um heimild lækna til að skrifa út áfengi sem lyf. Árið 1922 var banninu svo greitt kjaftshögg þegar Alþingi heimilaði sölu léttra vína. Það var gert að kröfu Spánarstjórnar, en Spánn var um þær mundir helsta útflutningsland fyrir íslenskar fisk­ afurðir. Ekki svo að skilja að Íslend­ ingar þriðja áratugarins hafi legið í spænskum rauðvínum – fáir nenntu slíku sulli – en með Spánarvínunum var grafið stórlega undan virðingunni fyrir lögunum. Sýslumenn landsins höfðu takmarkaðan áhuga á að fram­ fylgja þeim, enda sönnunarfærsla erfið, sektir lágar og landasalar oft vinsælir menn í sínu héraði. Breytt viðhorf Eftir því sem leið á þriðja áratuginn varð betur ljóst að stríðið gegn landa­ framleiðslunni væri tapað. Ýmsir sáu ofsjónum yfir þeim mögulegu skatttekjum sem ríkissjóður yrði af í áfengissölu vegna bannsins en aðrir höfðu áhyggjur af því heilsufarstjóni sem lélegt heimaframleitt áfengi og jafnvel tréspíri yllu samfélaginu. Árið 1933 var því efnt til nýrrar þjóðar­ atkvæðagreiðslu um áfengismál og í henni snerust atkvæðatölurnar frá 1908 við. Um 60% voru nú hlynnt sölu áfengis á meðan 40% voru enn á móti. En víkur þá aftur að þætti Bjarna Ásgeirssonar. Árið 1932 var hann fyrsti flutningsmaður að frumvarpi um ölbruggun á Íslandi, ásamt þeim Jóni Auðuni Jónssyni, Hannesi Jóns­ syni og Guðbrandi Ísberg – allt lands­ byggðarþingmönnum úr Framsókn­ ar­ og Sjálfstæðisflokki, sem stangast verulega á við viðteknar kenningar um að stuðningurinn við bjórinn hafi risið á mölinni en andstaðan verið mest til sveita. Frumvarpið bar þá einföldu yfir­ skrift: „frumvarp til laga um ölgerð og sölumeðferð öls“. Samkvæmt því var gert ráð fyrir að heimila mætti brugg­ húsum að framleiða bjór á bilinu 2­4% að styrkleika gegn föstu gjaldi í ríkissjóð og tilteknum skatti af hverri seldri flösku. Skyldi skatturinn nema 40 aurum á hvern lítra sem fram­ leiddur væri fyrir innanlandsmarkað en fimm aurum fyrir útflutning, sem flutningsmenn bundu vonir við að gæti orðið umtalsverður. Ekki reyndu tillöguflytjendur að áætla hver hagnaður ríkisins af bjórnum gæti orðið, þótt þeir teldu augljóst að hann yrði mikill. Því síður freistuðust þeir til að ráðstafa hinum væntanlega gróða. En auk ábata rík­ isins og framleiðenda, drógu Bjarni og félagar fram fleiri rök fyrir máli sínu. Að þeirra mati hlyti innlendur bjór að draga úr eftirspurn eftir inn­ fluttum Spánarvínum. Þá álitu þeir að ef unnt væri að kaupa öl með lög­ legum hætti, myndi það draga úr vin­ sældum landabruggara og minnka samúð með lögbrotum þeirra. Áhugavert er að í lögunum var gert ráð fyrir að áfengi yrði selt í almenn­ um verslunum og einnig var gert ráð fyrir að ekki væri heimilt að kaupa bjór í minni einingum en 25 flöskur saman. Þeirri hugmynd var augljós­ lega ætlað að draga úr sölu til fátæk­ linga og ungmenna. Höfðu Templarar raunar barist fyrir því seint á nítjándu öld að lágmarksmagn í bjórkaupum væri 100 flöskur! Bindindismenn á þingi brugðust ókvæða við frumvarpinu, sem þeir sökuðu flutningsmenn (og ekki alveg að ósekju) um að leggja fram til að hlaða undir einkafyrirtæki: Ölgerð­ ina Egil Skallagrímsson. Átökin um ölfrumvarpið 1932 vörpuðu kast­ ljósinu á bjórinn, sem almennt hafði lítið verið ræddur í ritum Templara. Fljótlega komu fram flest þau rök sem áttu eftir að heyrast í umræðum um bjórinn næstu áratugina, svo sem um ógnir dagdrykkju og meinta leti danskra verkamanna. Sem fyrr segir kaus meirihlutinn með afnámi áfengisbannsins árið 1933 og urðu bindindismenn á þingi að una þeirri niðurstöðu sem tók gildi tveimur árum síðar– en vegna ölfrum­ varpsins árið áður gátu þeir þó náð fram örlitlum hefndum. Segja mátti að þingið hefði sérstaklega tekið bjór­ inn fyrir og hafnað honum. Og í frum­ varpinu hafði einmitt ekki verið litið á bjórinn sem hverja aðra áfengisteg­ und sem selja skyldi í apótekum eða sérvöruverslunum, heldur átti hann að fara í almennar búðir. Þannig var hægt að rökstyðja að þjóðaratkvæða­ greiðslan hafi ekki náð til sölu á bjór. Bjarni Ásgeirsson og félagar vildu ölgerðarmönnum vel og árið 1933 var Bjarni einn flutningsmaður að frum­ varpi um að heimila þó að minnsta kosti ölgerð til útflutnings, sem ekki fékkst afgreidd. En dómur sögunnar hlýtur þó að vera sá að hefðu fjór­ menningarnir ekki lagt fram frumvarp sitt, er nær útilokað að bjórinn hefði verið undanskilinn við afnám áfengis­ bannsins. En þá hefðum við líka engu að fagna þann 1. mars ár hvert. KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Í 54 ár, frá árinu 1935 til 1989, bjuggu Íslendingar við þá sérstöðu að neysla á sterkum bjór væri bönnuð þótt aðrar og kröftugri áfengistegundir væru leyfðar. Þetta tímabil hefur því verið kallað „bjórbannið“ og orðið mörgum að umfjöllunar­ efni. Er útgangspunkturinn þá yfir­ leitt sá hversu sérkennileg ráðstöfun það hafi verið að leyfa sterkari og þá væntanlega skaðlegri tegundir áfengis en úthýsa þeim veikari. Eink­ um virðist þetta öfugsnúið ef horft er til þess að í ýmsum löndum Evrópu gætti þveröfugrar tilhneigingar á fyrri hluta tuttugustu aldar, þar sem allra sterkustu tegundunum var kennt um flest samfélagsmein og fremur hvatt til neyslu hinna veikari. En bjórbannið var svo sem ekki afleiðing úthugsaðrar stefnu, heldur niðurstaða sem mótaðist af tilvilj­ unum og leiddi af margslungnum deilum sem snerust minnst um bjór. Í raun má segja að bjórinn hafi verið rangur drykkur á röngum tíma – sak­ laust fórnarlamb (þótt sumir deili um sakleysið) í slag sem snerist í raun um allt aðra hluti. Hvernig var þessi ákvörðun tekin? Með hvaða hætti var hún rökstudd. Og er hún einhverjum sérstökum að kenna? Í þessum pistli er ætlunin að leita að sökudólgi: þeim Íslendingi sem öðrum fremur ber ábyrgð á ára­ tugalöngu bjórbanninu sem vakti svo mikla undrun útlendinga. Sá maður hét Bjarni Ásgeirsson og var alþingis­ maður Mýramanna. Það kann að virðast harðneskju­ legt að skella skuldinni svona ein­ dregið á Bjarna, einkum og sér í lagi í ljósi þess að hann var enginn bjór­ andstæðingur. Þvert á móti var hann hreinlega stuðningsmaður þess að Íslendingar hæfu bjórbruggun. En það var einmitt í þeirri viðleitni sinni sem Bjarni lenti í að sá í garð óvinar síns. Ekki sá fyrsti og fráleitt sá síðasti heldur. Bjarni Ásgeirsson var raunar merkismaður. Hann sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn frá 1927 til 1951 og gegndi embætti landbúnaðarráð­ herra um tveggja ára skeið. Áður en þingferillinn hófst og samhliða þingstörfum var hann bóndi, lengst af á Reykjum í Mosfellssveit þar sem hann var frumkvöðull á sviði ylrækt­ ar. Víkjum betur að Bjarna síðar. Það stendur í lögum … Bjórinn var bannaður á Íslandi um leið og allt annað áfengi á grunni þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var árið 1908. Ekki lá þingheimi þó mikið á að lögfesta áfengisbannið og var talið nauðsynlegt að veita landsmönnum aðlögunarfrest allt til ársins 1912. Eftir þann tíma höfðu drykkfelldir önnur þrjú ár til að klára birgðir, en á nýársdag 1915 varð Ísland fyrsta kristna landið í hinum vestræna heimi til að banna áfengi með öllu. Reyndar hafði innlend áfengisgerð verið bönnuð enn lengur. Templara­ hreyfingin fékk þegar um aldamótin leitt í lög að bannað væri að fram­ leiða drykki með hærra áfengisinni­ haldi en 2,25%. Hugsun Templaranna var rökrétt. Markmið þeirra var að koma á algjöru áfengisbanni, en vitað var að ýmsir aðilar höfðu hug á að hefja áfengisframleiðslu, einkum bjórbruggun. Ef slík starfsemi skyti rótum í landinu yrðu til hagsmuna­ Maðurinn á bak við bjórbannið Júní 1984. Starfsmenn við vinnu í verksmiðju Sanitas hf. á Akureyri. Verið er að pakka bjórflöskum í kassa, bjór ætlaður til útflutnings (seldur í Fríhöfninni). Mynd/LJóSMyndASAFn ReykJAVíkuR Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um sögulegt sjálfs- mark. … ekki væri heimilt að kauPa bjór í minni einingum en 25 flöSkur. 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r50 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 C -E 5 A 8 1 F 4 C -E 4 6 C 1 F 4 C -E 3 3 0 1 F 4 C -E 1 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.