Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 126

Fréttablaðið - 24.03.2018, Side 126
Spilið Nú fara margir frídagar í hönd. Sumir bregða sér í bústaðinn eða annað upp í sveit þar sem gott næði er til að taka upp spil. Svarti Pétur er einfalt spil fyrir tvo til tíu þátttakendur. Öll spilin í stokknum eru notuð nema lauf- gosinn sem er tekinn úr í byrjun. Spaðagosinn er nefndur Svarti Pétur og það þykir ekki eftirsóknar- vert að hafa hann á hendi, sérstak- lega ekki í lokin. Öll spilin í bunkanum eru gefin, eitt í einu. Þátttakendur leita að samstæðum (tveimur tvistum, tveimur kóngum …) í sínum bunka og leggja þær frá sér á grúfu á borðið. Ekki má mynda sam- stæðu með spaðagosanum eða henda honum burtu, heldur fara rauðu gosarnir saman. Allir halda svo stökum spilum á hendi þegar þeir eru búnir að hreinsa út sam- stæðurnar og passa að láta ekki næsta mann sjá á þau. Þátttakendur draga nú spil hver af öðrum, eitt í einu. Sá sem er á vinstri hönd við þann sem gaf er í forhönd og dregur eitt spil af gjafaranum. Ef það myndar samstæðu við spil sem hann hefur á hendi losar hann sig við hana á borðið. Nú dregur næsti maður spil af þeim sem dró fyrst og svona gengur leikurinn koll af kolli. Þeir sem draga spaðagosann láta ekki á neinu bera en vona auðvitað að næsti maður álpist til að draga hann.  Í lokin hafa allir losað sig við spilin sín nema sá sem endar á að hafa Svarta Pétur á hendi. Hann fær heitið Svarti Pétur. Svarti Pétur 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r58 H e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð krakkar Konráð á ferð og ugi og félagar 294 „Þar fór í verra,“ sagði Konráð. „Okkur liggur á en þurfum að komast í gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn: „Við verðum of sein.“ „Of sein, of sein,“ sagði Kata pirruð. „Hvað gerir til að vera aðeins of sein?“ bætti hún við. En Lísaloppa og Konráð voru ekki sammála. Þau vildu mæta á réttum tíma. Getur þú hjálpað þeim að komast í gegnum völundarhúsið? ? ? ? Patrik Nökkvi Pétursson er níu ára gamall strákur í Grafarvogi sem slær í gegn sem leikari í kvikmyndinni Andið eðlilega. Fyrsta spurning til hans er: Hvernig líður þér að vera orð- inn þekkt kvikmyndastjarna? Mér finnst það mjög skemmtilegt, sér- staklega þegar fólk kemur til mín og hrósar mér fyrir leikinn í myndinni. Hvað var erfiðast við tökurnar á Andið eðlilega? Það var erfiðast að hafa stjórn á kettinum Músa, sér- staklega í einni senunni þegar hann neitaði að koma undan framsætinu í bílnum. En skemmtilegast? Það var svo skemmtilegt fólk að vinna við mynd- ina að mér fannst allt skemmtilegt, tökurnar sjálfar, tíminn á setti, sminkið og bara allt. Hvernig líkar þér við strákinn sem þú leikur þar? Mjög vel. Hann er einlægur og örugglega góður vinur. Ég vorkenndi honum samt mikið því mamma hans var í svo miklu basli. Hefur þú lært leiklist? Já, ég hef verið í listhópi í Sönglist í Borgar- leikhúsinu. Tefja leiklistarverkefnin fyrir skólanámi hjá þér? Ég þurfti að fá frí í skólanum á meðan tökurnar voru í gangi. Það var samt allt í lagi því mamma mín er kennari og hún hjálpaði mér að vinna upp það sem ég missti úr. Færðu mikinn pening fyrir að leika í kvikmyndum? Já, mjög mikinn. Ég má samt ekki eyða honum öllum strax og geymi hann á bankareikn- ingi þangað til ég verð stór. Langar þig að leggja leiklist fyrir þig eða hefur þú önnur framtíðar- áform? Það kemur alveg til greina að verða leikari því það er mjög gaman að leika. Mig langar líka að verða fót- boltamaður, handboltamaður eða tannlæknir. Nú það er aldeilis. Áttu kannski enn fleiri áhugamál? Já, ég á fullt af áhugamálum, fótbolta, handbolta, skíði, söng og að tromma. Erfiðast að hafa stjórn á kettinum Músa Patrik Nökkvi er með nett trommusett heima hjá sér og kann vel við sig með kjuðana. Fréttablaðið/Eyþór ÁrNasoN 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 4 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 2 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 C -A 5 7 8 1 F 4 C -A 4 3 C 1 F 4 C -A 3 0 0 1 F 4 C -A 1 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.