Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 130

Fréttablaðið - 24.03.2018, Page 130
F E R M I N G A R T I L B O Ð H E I L S U R Ú M F Y R I R U N G T , V A X A N D I F Ó L K S TÆ R Ð F U L LT V E R Ð F E R M I N G A R- A F B O R G U N M/CL ASSIC BOTNI T I L B O Ð Á M Á N U Ð I* 90X 200 79.900 K R. 63.920 K R. 5 .918 K R. 100X 200 89.900 K R. 71 .920 K R. 6 .608 K R. 120X 200 99.900 K R. 79.920 K R. 7 .298 K R. 140X 200 114.900 K R. 91 .920 K R. 8 .333 K R. * Miðað v ið vaxta lausar kred itkortagre iðs lur í 12 mánuði , með 3,5% lántöku­ g ja ld i og 405 kr. gre iðs lug ja ld i pr. a fborgun FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 C H I R O U N I V E R S E Aukahlutur á mynd: Gaf l . K R Ó N U M 5.918 F E R M I N G A R T I L B O Ð VAXTAL AUSAR* AFBORGANIR FRÁ DANA DRE A M ME DIUM Hlý og létt dúnsæng (650 gr). 80% andadúnn, 20% smáfiður. 100% bómullar áklæði. F Y L G I R M E Ð Ö L LU M H E I L S U R Ú M U M Á F E R M I N G A R T I L B O Ð I V E R Ð M Æ T I: 19.900 K R. Þau Birna Rún Eiríksdótt-ir og Bergur Þór Ingólfs-son eru meðal leikara í Sýningunni sem klikkar sem frumsýnd er á fjöl-um Borgarleikhússins í kvöld. Birna útskrifaðist úr Lista- háskólanum 2016. Skyldi hún hafa fengið þjálfun þar í að leika leikara í sýningu þar sem allt gengur á aftur- fótunum? „Nei, við gerðum nánast ekkert grín í skólanum yfir höfuð, hvað þá að leika í farsa sem gerist á tveimur plönum. Áherslan var öll á dramatíkina.“ En hvernig líður reyndum sviðs- manni eins og Bergi Þór? „Þessi sýning krefst mikillar leiktækni, af því að þetta eru tvö leikrit sem við erum að leika í einu, annars vegar glæpaverkið Morð á meðal vor og hins vegar Sýningin sem klikkar,“ útskýrir hann. „Það er mikill hraði í þessu verki og maður þarf að sækja tilfinningar á einni sekúndu, sem yfirleitt tekur lengri tíma að kalla fram. Svo er heilmikil handavinna í þessu stykki og mikið að gerast.“ Verkið fékk Olivier-verðlaunin sem besti gamanleikurinn í Bret- landi 2015 og hefur gengið þar fyrir fullu húsi frá því það var frumsýnt árið 2014, fyrst í West End, svo á Broadway. Bergur lýsir efninu aðeins nánar. „Þarna er leikhópur að láta draum sinn rætast og setja upp glæpaleikrit. Finnst of lítið hafa verið um þau í íslensku leikhúsi. En vegna tímaskorts, og kannski líka skorts á hæfileikum, þá fer allt úrskeiðis. Fólk gleymir text- anum sínum, leikmyndin er ekki tilbúin, leikmunir eru gallaðir og ruglast. En það er algerlega inn- prentað í hópinn að sýningin verði að halda áfram, hann stjórnast af íslenska hugarfarinu „þetta redd- ast“ – svo bara bætist „ekki“ við.“ Birna tekur við: „Hópurinn fær knappan tíma til undirbúnings en leggur allt í sölurnar fyrir að taka þátt, áhuginn drífur fólkið áfram og verður til þess að það gefst aldrei upp. Það er búið að gefa sig sýning- unni á vald. Verkefnið er líka rosa- lega mikilvægt fyrir hvern og einn. Mín persóna í Sýningunni sem klikkar er til dæmis nýútskrifuð leikkona og hún er sko ákveðin í að klára sína rullu. Þannig fer hver og einn í persónulegt ferðalag.“ Sjálfur kveðst Bergur Þór oft hafa lent í því í raunveruleikanum að eitthvað klikki á leiksýningu og verða að láta sem ekkert sé. „Þó ekki eins og í þessari,“ tekur hann fram. „En ég hef mjög oft lent í aðstæðum þar sem maður hefur þurft að redda hlutum án þess að áhorfendur verði þess varir.“ „Við áttum nú móment saman í Himnaríki og helvíti, á einni sýn- ingu,“ rifjar Birna upp. „Ég sneri fram og fór með setningu sem Bergur átti að svara fyrir aftan mig en þá kom löng og mikil þögn og ég heyrði bara í Bergi á spretti baksviðs!“ Bergur á líka sögu: „Ég man eftir þegar tölvukerfi leikhússins fraus í þann mund sem frumsýning á Mary Poppins var að hefjast, þannig að leikmyndin komst ekki upp. Ég var leikstjóri og varð  að hoppa inn á svið og tala við áhorfendur og tefja án þess að láta á neinu bera, leik- hópurinn sýslaði á sviðinu og Gói hékk öfugur í loftinu allan tímann.  Salurinn var algerlega tilbúinn að halda með okkur. Það er eins á þessari sýningu núna. Við höfum verið með gesti á æfingum og í þau fáu skipti sem eitthvað tekst hjá karakterunum í glæpasýningunni léttir áhorfendum, við höfum jafn- vel fengið klapp!“ Birna bendir á að áskorun þeirra Bergs og annarra á sviðinu sé sú að einbeita sér ekki bara að glæpasögunni heldur láta líka glitta í leikarann sem er að takast á við draumahlutverk sitt og upp- lifir  örvæntinguna við að allt sé að fara úrskeiðis. „Já, þetta verk er í mörgum lögum,“ áréttar Bergur. „Ég tala nú ekki um þegar eitthvað klikkar í Sýningunni sem klikkar,“ segir Birna. „En óvænt mistök á æfingum hjá okkur hafa stundum verið svo fyndin að við höfum látið þau halda sér og tekið þau inn í sýninguna.“ Þetta reddast – ekki Leikarar í verkinu Sýningin sem klikkar túlka í senn angist leikhóps sem allt fer úrskeiðis hjá á frumsýningu sakamála- leikrits og skoplega einbeitni hópsins í að koma því til skila. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Óvænt miStök á æfingum hjá okkur hafa Stundum verið Svo fyndin að við höfum Látið þau haLda Sér og tekið þau inn í Sýninguna. Birna Rún Eiríksdóttir Birna Rún og Bergur Þór eru meðal leikara í gamanleiknum Sýningin sem klikkar. FRéttaBlaðið/SteFán Stendur undir nafni 2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r62 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 2 4 -0 3 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 4 4 s _ P 1 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 3 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 4 C -C C F 8 1 F 4 C -C B B C 1 F 4 C -C A 8 0 1 F 4 C -C 9 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 4 4 s _ 2 3 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.