Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 138
Söngkeppni framhaldsskólanna snýr aftur í ár en keppninni var aflýst í fyrra, ástæðurnar voru sagðar vera áhugaleysi og skortur á fjármagni, en
Sagafilm hafði séð um keppnina en
vegna umfangs hafði mikil vinna
lent á framkvæmdastjórn Sam
bands íslenskra framhaldsskóla
nema, SÍF, en það varð til þess að
stjórnin náði ekki að einbeita sér að
því að gæta hagsmuna framhalds
skólanema, en það eru þau mál sem
SÍF vill beita sér fyrir.
„Það eru nokkrir þættir sem spila
inn í hvers vegna keppnin kemur
aftur. Ég kem inn í síðustu stjórn SÍF
þegar kjörtímabilið er sirka hálfn
að. Ég hafði alltaf lagt upp með að
keppnin yrði haldin. Þá fórum við í
stjórninni að skapa einhvern grund
völl fyrir því að fá framkvæmda
aðila inn sem myndi sjá alfarið um
keppnina eins og framhaldsskóla
nemar vildu sjá hana. Við fórum í
það að tala við nokkra og svo voru
þessar hugmyndir lagðar fyrir sam
bandsstjórn og ein tillaga kosin – úr
því kom keppnin aftur á dagskrá,“
segir Davíð Snær Jónsson, formaður
SÍF. Framkvæmdastjóri keppninnar
í ár er Sindri Ástmarsson hjá Mid
Atlantic.
Verður keppnin í ár með breyttu
sniði? „Þegar Sagafilm sá um
keppnina þá komst bara ákveðinn
fjöldi skóla í úrslit, það er að segja
það var haldin forkeppni og síðan
aðalkeppni. Mér fannst það,
þegar ég var formaður nemenda
félags á þeim tíma, valda því að
það væri í rauninni minni aðsókn
að úrslitakeppninni, fólk var í
rauninni að horfa á tvær keppnir
aftur og aftur, svo komst skólinn
þinn ekki áfram. Það vantaði
hópstemminguna, að allir kæmu
saman. Við erum að gera það
með því að leyfa
öllum skólunum
að taka þátt í
einni keppni og
úr henni kemur
svo úrslitatriði –
fyrsta, annað og
þriðja sæti. RÚV
mun svo sjónvarpa
keppninni í heild
sinni, sem hefur ekki
verið gert í mörg ár.“
Davíð segir einnig
að keppnin verði hálfgert
festival – lagt er upp úr því að
það verði metnaðarfull dagskrá í
kringum keppnina alla helgina –
ball, fótboltamót og
fleira. Eins og áður
kom fram mun
keppnin fara
fram á Akur
eyri.
stefanthor@
frettabladid.is
Söngkeppni framhaldsskólanna féll niður í fyrra
en snýr aftur í ár með auknum krafti. Keppnin
verður haldin á Akureyri og í kringum hana
verður heil helgi af fjöri fyrir gesti þessarar
sögufrægu keppni þar sem margt af okkar
besta tónlistarfólki hefur stigið sín fyrstu skref.
Söngkeppni
framhaldsskólanna
aftur á dagskrá
Páll Óskar Hjálmtýsson
lenti í þriðja sæti árið 1990,
Móeiður Júníusdóttir varð
í öðru sama árið og það var
Lárus Ingi Magnússon sem
hafnaði í því fyrsta.
Glowie sigraði árið 2014
fyrir hönd Tækniskólans.
Jónsi hafnaði í þriðja sæti árið
1996 og Regína Ósk í öðru.
Dagur Sigurðsson tók lagið Vitskert
vera, íslenska útgáfu af Helter Skelter
með Bítlunum, þegar hann sigraði
árið 2011.
Emilíana
Torrini tók I Will
Survive hvorki meira
né minna en árið 1994
þegar hún vann
í söngkeppninni.
Birgitta
okkar Haukdal
þurfti að lúta í
lægra haldi fyrir
Brooklyn Fæv
hópnum árið
1998.
Sverrir
Bergmann
kom beint frá
Sauðárkróki, sá og
sigraði með laginu
Always með Bon
Jovi árið
2000.
Júlí
Heiðar og
Kristmundur Axel
fóru á kostum árið
2010 fyrir Borgar-
holtsskóla.
2 4 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r70 L í f i ð ∙ f r É T T a B L a ð i ð
Lífið
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
4
C
-D
B
C
8
1
F
4
C
-D
A
8
C
1
F
4
C
-D
9
5
0
1
F
4
C
-D
8
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K