Fréttablaðið - 04.05.2018, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 0 4 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 4 . M a Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
skoðun Þórlindur Kjartansson
fjallar um dýran djús. 15
sport Frá Garðabænum til
Kænugarðs á mettíma. 16
lÍFið Gunni Þórðar segir að þetta
sé ekkert annað en klikkun. 30
plús 2 sérblöð l Fólk
l Ferðablaðið
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
K R I N G L U
K A S T
20–50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUM VÖRUM
3.–7. MAÍ
Gunnar Gunnarsson, Sigurjón Kjartansson og Baltasar Kormákur ræða málin á tökustað annarrar þáttaraðar af Ófærð. Tökur fóru fram við Alþingi í
gær. Líkfundur gegnir lykilhlutverki í þáttunum. Veðrið setti strik í reikninginn. Ítrekað þurfti að sópa frá snjó svo að allt gengi upp. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
viðskipti Rekstrarskilyrði hótela
eru allt önnur og miklu verri en þau
hafa verið síðustu ár. Þetta segir Páll
L. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
Keahótela.
„Þau eru svolítið óvenjuleg og
allt öðruvísi en þau voru á sama
tíma fyrir ári og síðustu ár,“ segir
Páll og bætir við að sérstaklega eigi
þetta við um rekstur hótela á lands-
byggðinni.
„Við erum að horfa upp á eitt lak-
asta vor síðustu fimm ára eða svo,“
segir hann. Það vanti fleiri hópa sem
ferðaþjónustufyrirtæki hafi verið að
koma með um landið.
„Hópferðir um landið frá Mið-
Evrópu. Þær eru ekki svipur hjá
sjón og þær hafa verið uppistaðan
í rekstri landsbyggðarhótelanna,“
Ástæðan sé staða krónunnar. „Eins
og gengið er núna þá er það ferða-
þjónustunni sérlega óhagstætt. Það
er ekki nokkur spurning.“
Tilkynnt var í gær að samkomu-
lagi hefði náðst um að Keahótelin
leigi rekstur Sandhótels í Reykjavík
frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Keahótelkeðjan hefur um nokk-
urra mánaða skeið haft augastað
á rekstri Sandhótels, enda falli
rekstur þess vel að öðrum hótelum
keðjunnar. Fyrir rekur hótelkeðjan
níu hótel. Þar af eru sex í Reykjavík,
tvö á Akureyri og eitt við Mývatn.
Talsverður áhugi virðist vera á sam-
einingum fyrirtækja í greininni.
Í skýrslu Íslandsbanka um ferða-
þjónustuna, sem kom út í síðasta
mánuði, kemur fram að framlegð
hagnaðar stórra fyrirtækja sé rúm-
lega tvisvar sinnum meiri en þeirra
sem lítil eru.
„Bendir það til þess að fjármögn-
unar- og annar kostnaður sé hærri
sem hlutfall af rekstrartekjum hjá
litlum fyrirtækjum en hjá þeim sem
stærri eru,“ segir í skýrslunni.
– jhh / sjá síðu 6
Sterkari króna þyngir
róður íslenskra hótela
Rekstrarskilyrði hótela á Íslandi í vor hafa ekki verið þyngri í fimm ár. Staðan
erfiðust hjá hótelum á landsbyggðinni. Fyrirtækin sækjast eftir hagræðingu í
rekstri með sameiningu. Ný skýrsla sýnir meiri framlegð hjá stærri fyrirtækjum.
Við erum að horfa
upp á eitt lakasta
vor síðustu fimm ára eða svo.
Páll L. Sigurjónsson, framkvæmda-
stjóri Keahótela
Fráveitumálin
munu skipta miklu
máli í kosningunum.
Helgi S. Haraldsson, oddviti á lista
Framsóknarmanna og óháðra
árborg „Við viljum ekki dæla skólpi
í Ölfusá. Við þurfum að ganga alla
leið, hreinsa skólp og dæla því svo
út í sjó. Fráveitumálin munu skipta
miklu máli í komandi kosningum,“
segir Helgi S. Haraldsson, oddviti á
lista Framsóknar og óháðra í kom-
andi sveitarstjórnarkosningum í
Árborg. Frambjóðendur eru sam-
mála um að fráveitumálin og mið-
bæjarskipulagið séu á meðal brýn-
ustu kosningamálanna í bænum.
Sjálfstæðismenn hafa setið í
meirihluta í sveitarstjórn Árborgar
tvö kjörtímabil í röð. Í nýrri skoð-
anakönnun sem Fréttablaðið og
frettabladid.is gerðu í gær mælist
flokkurinn með tæplega 30 prósent.
Hann er með mest fylgi allra flokka.
Næstur honum kemur Miðflokkur-
inn með tæplega fjórtán prósenta
fylgi og VG með þrettán prósent.
– sa, jhh / sjá síðu 10
Stærstu málin
eru skólpið og
miðbærinn
Keahótel eru þriðja
stærsta hótelkeðjan Íslandi.
Velta félagsins var 3,1
milljarður í fyrra.
0
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
A
F
-9
9
5
0
1
F
A
F
-9
8
1
4
1
F
A
F
-9
6
D
8
1
F
A
F
-9
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K