Fréttablaðið - 07.05.2018, Page 6
7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TILBOÐSVERÐ FRÁ
2.459.000 KR. ÁN VSK
3.050.000 KR. M
EÐ VSK
CITROËN JUMPY
MODUWORK - aukið flutningsrými
Nálægðarskynjarar að aftan
Þrjár lengdir í boði – allt að 4 metra
flutningsrými
FJÖLHÆFUR & STERKUR
LENGDIN SKIPTIR MÁLI
BAKKAÐU AF ÖRYGGI
KOMDU & MÁTAÐU
CITROËN JUMPY Í DAG!
citroen.is
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
300.000 KR.AFSLÁTTUR
Bjargað úr gúmmíbát
Kona grætur með barn sitt í fanginu eftir að þeim var bjargað úr gúmmíbát skammt frá Al-Zawiyah undan
ströndum Líbíu. Flóttafólk sækir enn út á opið hafið í leit að betra lífi í Evrópu. Margir kjósa heldur landleið-
ina í gegnum Tyrkland og freista þess að fara þaðan eftir ám eftir að gæsla á hafi var aukin. NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR Breyta á reglum um
útgerð svokallaðra RIB-báta. Með
því er brugðist við athugasemdum
rannsóknarnefndar samgönguslysa
(RNSA) vegna slysa í slíkum bátum.
Fyrir stuttu skilaði RNSA
skýrslum vegna tveggja slíkra slysa.
Niðurstaðan var sú sama og undan-
farin ár, að bátunum hafi verið siglt
of hratt miðað við aðstæður.
Í flestum tilfellum sem RNSA
hefur skoðað hefur bátunum verið
siglt á nokkurri ferð, þeir lyfst upp
vegna öldugangs og skollið niður af
nokkrum þunga. Minnst ellefu far-
þegar, í átta skráðum slysum, hafa
hlotið af meiðsli á baki eða hálsi. Í
einhverjum tilfellum hefur hryggjar-
liður fallið saman eða bein brotnað.
Í skýrslu síðasta haust gerði RNSA
tillögu í öryggissátt, þess efnis að
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytið myndi setja reglur um slíka
báta til að tryggja öryggi farþega.
Var meðal annars stungið upp á því
að í bátana yrðu sett fjaðrandi sæti
sem myndu taka á sig mesta höggið.
Ráðuneytið óskaði í kjölfarið
umsagnar Samgöngustofu um efnið
og barst hún ráðuneytinu í október
síðastliðnum. Samgöngustofa tók
undir sjónarmið RNSA en taldi ekki
fært að gera tillögu um reglu um
fjaðrandi sæti þar sem bátarnir sem
um ræðir væri flestir CE-merktir
skemmtibátar.
„Í staðinn lagði Samgöngustofa
til að bregðast mætti við skýrslum
[RNSA] með því að útfæra kröfur
um að útgerðir RIB-báta fram-
kvæmdu áhættumöt sem tæki til
siglinga í mismunandi aðstæðum,
sem þá fæli í sér að við tilteknar
aðstæður væri siglt hægar,“ segir í
bréfi ráðuneytisins til RNSA fyrir
skemmstu. Ráðuneytið fól Sam-
göngustofu að útfæra slíkar reglur.
„Samgöngustofa hefur gert drög
að reglugerðarbreytingu um far-
þegabáta og sent hana áfram til
ráðuneytisins. Þær tillögur verða
innan skamms lagðar fyrir Sigl-
ingaráð og fyrir almenning til kynn-
ingar,“ segir Þórhildur Elínardóttir,
samskiptastjóri Samgöngustofu.
Í reglugerðardrögunum felst að
útgerðir geri ráð fyrir ráðstöfunum
til að tryggja öryggi farþega í áætl-
unum um starfrækslu bátanna. Þær
ráðstafanir koma til með að fela í sér
að gera frekari kröfu á að siglinga-
leiðir taki mið af aðstæðum auk
ýmissa annarra ráðstafana.
„Afþreyingariðnaði í siglingum
hefur vaxið fiskur um hrygg með
auknum straumi ferðafólks hingað
til lands og umhverfið hefur verið
að laga sig að þeim breytingum. Sú
vinna tekur tíma en hefur verið í
gangi. Því miður er það oft þannig
að eitthvað þarf að koma upp svo að
umgjörðin taki breytingum,“ segir
Þórhildur. joli@frettabladid.is
Bæta öryggi RIB-báta
með breyttum reglum
Undanfarin ár hefur
rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa skilað átta
skýrslum vegna slysa um
borð í RIB-bátum. Tillaga
hennar um fjaðrandi
sæti ekki tekin til greina.
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
3
-2
A
C
0
1
F
B
3
-2
9
8
4
1
F
B
3
-2
8
4
8
1
F
B
3
-2
7
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K