Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 38
Netverslun og
símaþjónusta
s. 553 1099 • blomabud.is • blomabud@blomabud.is
Fyrirtækið er 50 ára í ár
Okkar ástkæri
Magnús Þór Gunnarsson
byggingatæknifræðingur,
verður jarðsunginn frá Lindakirkju í
Kópavogi miðvikudaginn 9. maí, kl. 13.
Marín Kristjánsdóttir
Karl Víðir, Daði Hrafn og Linda
Jóhanna, Gunnar og fjölskyldur
Þetta er stórkostlega skemmtilegt,“ segir Frið-rik Jósepsson, sem náði þeim áfanga á föstudag að fá svarta beltið í karate, 69 ára gamall.„Ég er gamall íþrótta-
refur og keypti áður fyrr í ólympískum
lyftingum og kraftlyftingum í tólf ár, frá
1968 til 1980, en meiddist illa og neydd-
ist til að hætta,“ útskýrir Friðrik. Eftir
þetta hafi hann farið að stunda líkams-
ræktarstöðvar sem þá voru að ryðja sér
til rúms hérlendis.
Friðrik fór í mjaðmaskiptaaðgerð
fyrir um átta árum. Þar áður hafði hann
farið í aðgerð vegna brjóskloss. „Ég var
að reyna að finna mig aftur en gymmið
þjónkaði ekki alveg minni lund,“ segir
Friðrik sem kveðst því áfram hafa verið
leitandi í þessum efnum. Fyrir sex árum
gekk hann inn um dyrnar hjá Karate-
félagi Reykjavíkur í kjallaranum á
Laugardalslaug.
„Mig minnir að ég hafa séð auglýsingu
frá þeim og ég fór þangað skjálfandi á
beinunum. Maður vissi ekkert hvernig
móttökurnar yrðu, sérstaklega af því
að maður er orðinn þetta gamall,“ lýsir
Friðrik upphafinu á karateiðkun sinni.
Óttinn reyndist ástæðulaus.
„Mér var tekið alveg forkunnarvel og
það er hluti af því að maður er þarna
ennþá. Þetta er mjög góður félagsskap-
ur og þjálfararnir frábærir,“ segir Friðrik
sem stefndi hátt strax í byrjun og náði
því reyndar ári fyrir áætlun.
„Ég setti það markmið að ná svarta
beltinu sjötugur. Ég hef gaman af að
storka sjálfum mér. Sennilega er það í
eðlinu.“
Friðrik segir karateiðkunina gefandi.
„Maður fann sig að nokkru leyti aftur.
Ég gat tekið á því að fullu en maður
hafði eiginlega aldrei beitt sér í þessum
gymmum. Þar gat maður verið einn
innan um fullt af fólki en hér er miklu
meiri félagsskapur,“ segir hann.
Þótt Friðrik sé örugglega með elstu
mönnum til að ná svarta beltinu í
karate á Íslandi og viti ekki um neinn
eldri sjálfur að minnsta kosti á hann
enn mikið eftir. „Þetta var það sem kall-
að er fyrsti dan en það er níu gráðanir
eftir í svarta beltinu. Svo ég er rétt að
byrja. Það er gulrót að fara í gráðunina
eftir önnina. Er á meðan er.“
Karate er íþrótt fyrir alla að sögn
Friðriks. „Ég mæli eindregið með þessu.
Þetta hentar öllum og fólk ætti endilega
að koma og prófa.“ gar@frettabladid.is
Friðrik byrjaði skjálfandi á
beinunum en náði svarta
beltinu í karate 69 ára
Friðrik Jósepsson keppti í lyftingum sem ungur maður en meiddist og þurfti að hætta.
Eftir það var Friðrik leitandi. Hann fann sig ekki alveg á líkamsræktarstöðvunum en
uppgötvaði svo Karatefélag Reykjavíkur. Hann mælir eindregið með íþróttinni fyrir alla.
Fram undan hjá Friðriki er að ná sem flestum gráðum svarta beltisins sem nú er í höfn.
Friðrik Jósepsson unir hag sínum vel hjá Karatefélagi Reykjavíkur og stóðst þar próf til svarta beltisins á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Friðrik Jósepsson, ánægður handhafi svarta beltisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Maður vissi ekkert
hvernig móttökurnar
yrðu, sérstaklega af því að
maður er orðinn þetta gamall.
Friðrik Jósepsson, svartabeltishafi, starfs
maður íþróttahússins í Breiðholtsskóla og
fyrrverandi rafvirki
399 f. Kr. Gríski heimspekingurinn Sókrates andast.
Dánarorsök var eitur sem hann innbyrti eftir að hafa verið
dæmdur til dauða fyrir að spilla ungdómnum og kynna
nýja guði til sögunnar.
351 Uppreisn gyðinga í Palestínu gegn rómverska land
stjóranum Konstantíus Gullus brýst út. Uppreisnin er barin
niður endanlega ári síðar.
558 Hvelfing Hagía Sofía í Konstantínópel, nú Istanbúl,
hrynur. Hvelfingin var síðar byggð á nýjan leik í sinni upp
runalegu mynd.
1429 Síðasta umsátursvirki Englendinga við Orléans, Tour
ells, fellur. Jóhanna af Örk verður þjóðhetja í Frakklandi
fyrir að fara fyrir áhlaupinu.
1664 Bygging Versalahallarinnar hefst að fyrirskipan Lúð
víks XIV Frakkakonungs.
1697 Sænska konungshöllin eyðileggst í bruna.
1824 Níunda sinfónía Beethovens frumflutt í Vínarborg.
1895 Alexander Stephanovich Popov kynnir uppfinningu
sína, frumstæðan útvarpsmóttakara, á sýningu í St. Péturs
borg.
1908 Páll Einarsson er kjörinn fyrsti borgarstjóri Reykja
víkur.
1920 Sovétmenn viðurkenna sjálf
stæði Georgíu en ráðast síðan
inn í landið sex mánuðum
síðar og innlima það.
1940 Umræða um
innrásina í Noreg fer
fram í breska þinginu
en Bretar höfðu
orðið undir í baráttu
við Þjóðverja um að
hertaka landið. Neville
Chamberlain segir af
sér sem forsætisráðherra
þremur dögum síðar og
Winston Churchill tekur við.
1945 Alfred Jodl skrifar undir uppgjöf
Þjóðverja í Rúðuborg og bindur þar með formlegan endi á
síðari heimsstyrjöldina.
1948 Evrópuþingið er stofnað í Haag.
1957 Helen Keller kemur í heimsókn til Íslands.
1961 Keflavíkurganga á vegum hernámsandstæðinga
gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
1986 Kanadamaðurinn Patrick Morrow verður fyrsti mað
urinn til að komast á topp hæsta tinds hverrar heimsálfu.
1994 Ópið, málverk Edward Munch, endurheimt óskadd
að eftir að því var rænt af þjóðlistasafni Noregs þremur
mánuðum áður.
2000 Vladimir Pútín sver embættiseið sem forseti Rúss
lands.
Merkisatburðir
7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
3
-0
3
4
0
1
F
B
3
-0
2
0
4
1
F
B
3
-0
0
C
8
1
F
B
2
-F
F
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K