Feykir - 03.12.2015, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
46
TBL
3. desember 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Aðventustemmari á Króknum
Ljós tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi í blíðuveðri
Á LAUGARDAG voru ljós tendruð
á jólatrénu á Kirkjutorgi og í
gamla bænum á Króknum var
aðventustemning og notalegheit.
Veðrið var hið besta, örlítið frost
og dass af snjó. Kórar sungu,
Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri
flutti ræðu, Sigvaldi Helgi
Gunnarsson stökk úr Voice-
settinu og fékk dúndur viðtökur
hjá ungum sem öldnum.
Það var Sigfús Ingi Sigfússon sem
var kynnir á Kirkjutorginu og á eftir
honum mættu nemendur Grunn-
skólans austan Vatna og sungu
nokkur lög. Þá var komið að ræðu
Ástu og í kjölfarið var kveikt á
jólatrénu. Síðan steig Barnakór
Sauðárkrókskirkju og Árskóla á
tröppur gamla Pósthússins og söng
fleiri jólalög. Þá var komið að
Sigvalda og fáir ef ekki allir réttu upp
hendi þegar hann spurði hvort
einhverjir hefðu kosið hann kvöldið
áður. Jú, sumir höfðu hringt oftar en
einu sinni og jafnvel oftar en tvisvar.
Þá voru ófáir tilbúnir að lána honum
almennilega húfu svo kappinn
kvefaðist ekki og ekki voru færri
fúsir til að lána honum vettlingana
sína – en þá var Sigvaldi að grínast,
menn spila ekki á gítar með vettl-
ingum! Síðan skellti hann sér í
jólalögin.
Að loknu La la la-lagi Sigvalda
komu syngjandi jólasveinar með
mandarínur og síðan var dansað í
kringum jólatréið. Nokkrir ungir
drengir höfðu greinilega nokkrar
áhyggjur af því hvað einum
sveinkanum, sjálfum Stekkjastaur,
þætti gott að borða og hvort hann
borðaði ekki örugglega bjúgu.
Sveinki hélt það nú og þá var hann
spurður hvort hann drykki ekki
örugglega mjólk. Jú, það stóð heima.
Þá lýsti drengurinn því yfir að það
yrðu bjúgu og mjólk handa honum í
glugganum þegar hann kæmi við
hjá sér. – Snilld.
Jólahlaðborð Rótarýmanna
Rótarýklúbbur Sauðárkróks stóð í
þriðja sinn fyrir jólahlaðborði í
Íþróttahúsi Sauðárkróks í hádeginu
sama dag. Íbúum í Skagafirði var
boðið til veislunnar og víst er að
fjölmargir nýttu sér tækifærið,
gæddu sér á hangikjöti eða ham-
borgarhrygg með tilheyrandi. Fólk
lét síðan aur í söfnunarbauka klúbb-
félaga en það sem safnast er nýtt til
styrktar góðu málefni. Frábært
framtak og góð stemning. /ÓAB
Hafðu samband
í síma 455 7176 eða sendu póst
á feykir@feykir.is ...allir með!
Frábær stemning myndaðist á Kirkjutorginu þegar Sigvaldi hóf upp raust sína. MYND: ÓAB