Feykir - 04.02.2016, Qupperneq 2
2 05/2016
Herra Hundfúll er lítt stoltur af þeirri þjóðaríþrótt
Íslendinga að nöldra. Nú eru til dæmis allir með Ófærð
milli tannanna en fólk virðist skiptast í tvær fylkingar
varðandi gæði þáttanna eins og oft vill verða.
Margir lifa sig inn í atburðarásina
og eru orðnir verulega áhugasamir
um hver morðinginn reynist vera í
þorpinu sem Sigló og Seyðisfjörður
leika.
Aðrir geta ekki beðið eftir að
verða fyrstir til að finna eitthvað til
að svekkja sig yfir í þáttunum og
hlaupa með það á Facebook við
fyrsta tækifæri. Leik leikaranna,
vonlaust handrit, endalaust vont
veður, getuleysi lögreglunnar, holur í plottinu, staðreynda-
villur, aumingjaskap í Vegagerðinni að moka ekki heiðina
o.s.fr. Meira að segja bezzerwizzarar í 101 eru orðnir að
sérfræðingum á samfélagsmiðlum í mokstri heiða.
Það er eins og fólk haldi að það sé eitthvað sérlega gáfað og
snjallt ef það getur tínt til einhverja hluti sem eru að þeirra
mati ekki eins og þeir eiga að vera. Allir virðast þó bíða
spenntir eftir næsta þætti – hver á sínum forsendum. Er það
ekki merki um gott sjónvarpsefni?
Herra Hundfúll
nöldrari
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Ófærð milli tannanna á fólki
Gaf landsvölu sem var
fönguð í Árskóla árið 1973
Árskóli fær uppstoppaða fugla að gjöf
Árskóla á Sauðárkróki var
afhent flott gjöf í vikunni
þegar Ingólfur Sveinsson kom
færandi hendi og gaf Árskóla
tvo uppstoppaða fugla;
landsvölu og tildru.
„Það er gaman að segja frá því
að landsvalan sem er sjaldgæfur
fugl á Íslandi, fannst í skólahúsi
Árskóla við Skagfirðingabraut
haustið 1973 þegar hluti hússins
var enn í byggingu. Fuglinn,
sem átti enga möguleika á að
lifa hér á landi, flaug inn í
hálfbyggt húsið. Hann var
fangaður og settur í búr, en lifði
aðeins tvo daga, “ segir á vef
Árskóla.
Landsvala lifir á skordýrum
sem hún tekur á flugi. „Við
færum Ingólfi bestu þakkir
fyrir gjöfina,“ segir loks í frétt
Árskóla. /BÞ
Samningur um sjúkra-
flutninga undirritaður
Starfssvæði HSN í Skagafirði
Samkvæmt fréttatilkynningu
gildir samningurinn til 5 ára og
nær til allra sjúkraflutninga í
Skagafirði utan Fljóta sem njóta
þjónustu frá Fjallabyggð.
Samningurinn er á milli Heil-
Við undirritun samningsins. Eftir röð frá vinstri; Þorsteinn Þorsteinsson yfirlæknir,
Herdís Klausen yfirhjúkrunarfræðingur, Örn Ragnarsson framkvæmdastjóri lækninga
og Vernharð Guðnason slökkviliðsstjóri. Neðri röð frá vinstri; Jón Helgi Björnsson
forstjóri HSN og Ásta Pálmadóttur sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar. MYND: HSN
brigðisstofnunar Norðurlands
(HSN) og Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fyrir hönd Bruna-
varna Skagafjarðar (BS) sem sjá
um framkvæmd samningsins.
„Gert er ráð fyrir að fjöldi
sjúkraflutninga verði 280 á ári
að jafnaði á samningstímanum.
Samningur sem þessi gerir
starfsemi BS öflugri og með
slíkum samningi er það ætlun
manna að áfram verði afar góð
þjónusta við íbúa og þá sem
heimsækja Skagafjörð,“ segir í
fréttatilkynningu frá Bruna-
vörnum Skagafjarðar.
Á undanförnum misserum
hefur verið gert mikið átak í
menntun sjúkraflutningamanna
sem starfa hjá BS. Í samstarfi
BS, Heilbrigðisstofnunarinnar
og ekki síst sjúkraflutninga-
mannanna sjálfra hefur tekist
að auka menntunarstig og
þjálfun sjúkraflutningamanna.
Nú eru allir sjúkraflutninga-
menn hjá BS neyðarflutn-
ingamenn. „Mikil ánægja er
með að tekist hefur að tryggja
óbreytt fyrirkomulag sjúkra-
flutninga og það góða samstarf
sem ríkt hefur á milli BS og
starfsfólks HSN á Sauðárkróki,“
segir loks í tilkynningu. /BÞ
Breytingum á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga mótmælt
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra
Samtök sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra (SSNV)
mótmæla þeim hugmyndum
sem koma fram í þingskjali
nr. 290, um breytingar á
tekjustofnum sveitarfélaga,
þar sem gert er ráð fyrir að
auknum tekjum Jöfnunar-
sjóðs vegna hlutdeildar í
sérstökum skatti á fjármála-
fyrirtæki verði ráðstafað
árlega í samræmi við álagt
heildarútsvar ársins 2013.
Þetta kemur fram í fundar-
gerð SSNV frá 12. janúar sl.
Í fundargerð segir að SSNV
veki athygli á að meðalútsvar á
landinu árið 2014 var kr.
417.035,- á íbúa. Meðalút-
svarstekjur sveitarfélaga á
starfssvæði SSNV, Húnavatns-
sýslum og Skagafirði, námu á
sama tíma kr. 383.332,- á íbúa.
Mismunurinn er kr. 33.703,-.
„Það er illskiljanlegt
hvernig það getur talist
sanngjarnt eða samræmst 8.
gr. laga nr. 4/1995, um tekju-
stofna sveitarfélaga, þar sem
skýrt kemur fram að hlutverk
Jöfnunarsjóðs sé að jafna
mismunandi útgjaldaþörf og
skatttekjur sveitarfélaga með
framlögum úr sjóðnum, að
sérstöku framlagi Jöfnunar-
sjóðs skuli eiga að ráðstafa
þannig að þau sveitarfélög
sem þegar hafa mestar tekjur
fái bróðurpartinn af tekjum
Jöfnunarsjóðs af sérstökum
skatti á fjármálafyrirtæki
samkvæmt lögum nr.
155/2010, með síðari breyt-
ingum,“ segir loks í fundar-
gerð. /BÞ
Þann 28. janúar var skrifað undir samning um sjúkraflutninga á
starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í Skagafirði.
Heildarupphæð samningsins er 30.000.000 á ári og tekur hann
tillit til alls kostnaðar við mannahald, þjálfun og menntun ásamt
eftirliti með búnaði greiningasveitar.
Metfjöldi gesta
árið 2015
Selasetur Íslands
Á síðasta ári heimsóttu
rúmlega 27 þúsund ferða-
menn Selasetur Íslands á
Hvammstanga. Samkvæmt
vef Selasetursins er það
35% aukning frá árinu
2014. Árið 2014 var
jafnframt metár með um
20 þúsund gestakomur.
Gestakomur í Selasetur
Íslands hafa aukist jafnt og
þétt síðustu ár og það er því
ljóst að aukinn fjöldi ferða-
manna á landinu er að skila
sér í Húnaþing vestra. /BÞ
Verður sett
á sölu
Skólahúsnæði við
Freyjugötu á Sauðárkróki
Byggðarráð Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar hefur
samþykkt að skólahús-
næðið við Freyjugötu á
Sauðárkróki verði auglýst
til sölu, þ.e. gamli barna-
skólinn. Þetta kemur fram í
fundargerð Byggðarráðs frá
því í 28. janúar sl.
Byggðarráð felur sveitar-
stjóra að koma með tillögu
að texta auglýsingar á næsta
fund ráðsins. /BÞÓskar Björnsson skólastjóri Árskóla veitir gjöfinni, uppstoppaðri landsvölu og tildru,
frá Ingólfi Sveinssyni viðtöku. MYND: ÁRSKÓLI.IS