Feykir


Feykir - 04.02.2016, Blaðsíða 11

Feykir - 04.02.2016, Blaðsíða 11
05/2016 11 KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti haldið áfram að hugsa um bolludaginn. Spakmæli vikunnar Maður er ekki gamall svo lengi sem hann leitar einhvers. - Jean Rostand Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is Vissirðu að... ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT ... enginn Englendingur hefur unnið ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu sem framkvæmdastjóri? ... sir Alex Ferguson gerði Manchester United 12 sinnum að Englandsmeisturum? ... Derby County spilaði 32 leiki í röð án þess að sigra tímabilið 2007- 2008? Hahaha... Kokkurinn: Hvort á ég að skera pizzuna í sex eða tólf sneiðar, Siggi minn? Siggi: Hafðu þær sex, ég gæti aldrei torgað tólf sneiðum... Krossgáta ½ l rjómi 2-4 msk tómatpúrra (pískað saman í skál með rjóma) 1 rauð paprika 2 hvítlauksrif 1 box sveppir 6-8 skinkusneiðar ½ bréf pepperoni Aðferð: Þetta er allt skorið í litla bita og blandað saman við rjómasósuna. Helst eru það sveppirnir sem verða ágreinings- mál hjá yngra fólkinu og hefur lendingin verið að skera þá í 4 hluta, svo auðveldara sé að ýta þeim til hliðar. Þessu er því næst hellt yfir forsteikta fiskinn og rifnum osti dreift yfir. Sett í ofn við 180-200°C í u.þ.b. 20-30 mín. „Svo látum við eina hráköku fljóta með.“ EFTIRRÉTTUR Draumurinn hennar Dísu Botn: 1 ½ bolli döðlur 1 bolli kókosmjöl 1 góður bolli pecanhnetur 5 msk kakó 1-2 msk kókosolía (má sleppa) Aðferð: Allt sett í matvinnsluvél og síðan þjappað í mót. Toppurinn: 1 peli rjómi 200 gr vanillu- eða jarðarberjaskyr Aðferð: Rjóminn þeyttur, skyrinu bætt út í rétt áður en rjóminn er klár. Jarðarber, hindber eða blá- ber skorin og dreift yfir. „Við skorum á Kristínu Bjarna- dóttur og Eirík Frímann Arnar- son í Hofsós að taka við keflinu, þau luma áreiðanlega á ýmsu.“ Verði ykkur að góðu! Draumurinn hennar Dísu og fleiri réttir RÉTTUR I Spænskt fiskideig 5 góðar msk hveiti 1 tsk natron 1 ½ tsk túrmerik ½ tsk sítrónupipar ½-1 tsk aromat 2 hvítlauksrif, pressuð kalt vatn Aðferð: Þurrefni og hvítlauk blandað saman í skál og unnið saman með vatni þar til deig er örlítið þykkara en venjulegt orlydeig. Með þessari útgáfu af steiktum fiski er gott að hafa t.d. gróf hrísgrjón og ferskt salat. „Svo er það hinn rétturinn en hann nefnist bara alltaf Rauði rétturinn. Með honum höfum við einfaldlega gott snittubrauð eða hvítlauksbrauð.“ RÉTTUR II Rauði rétturinn 3 ýsu eða þorskflök, meðalstór og roðlaus/beinlaus Aðferð: Kryddið örlítið með kryddi að eigin vali og veltið bitunum upp úr hveiti. Steikið mjög snöggt á pönnu. Sett í eldfast mót og útbúið sósuna. Sósan: MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is „Við erum ansi dugleg að skiptast á um eldamennskuna og frágang, þó frágangurinn sé ekki eitthvað sem slegist er um. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að við gleðjumst yfir góðum fisk eða fiskiréttum með ýmsum tilbrigðum. Við deilum með ykkur tveimur af okkar uppáhalds réttum sem við fengum fyrir ótrúlega mörgum árum og hafa frá þeirri stundu verið vinsælir hér á borðum,“ segja matgæðingar vikunnar Ásdís Hrund Ármannsdóttir og Jón Helgi Pálsson á Hofsósi. „Fyrst er að nefna deig sem við veltum fiski upp úr og steikjum svo í olíu á pönnu. Við kryddum örlítið á fiskinn með aromat áður en honum er velt upp úr deiginu en það er eflaust smekks atriði hvort þess er þörf. Deigið fær skemmtilegan rauðan lit við steikingu.“ Ásdís og Jón Helgi matreiða Ásdís og Jón Helgi bregða á leik í eldhúsinu. MYND: ÚR EINKASAFNI Feykir spyr... Hvað ætlar þú að borða margar bollur á bolludaginn? Spurt á Facebook UMSJÓN siggag@nyprent.is „Er óákveðin.“ Ólöf Sólveig Júlíusdóttir „Ég ætla að borða eina og hálfa!“ Guðný Guðmundsdóttir „Það fer eftir því hvað mér verða færðar margar bollur. Kannski 20, kannski enga!“ Stefán Friðrik Friðriksson „Margar... ætla að láta Heklu, hún er í bakara-/konditorinámi, baka fyrir mig.“ Óli Björn Pétursson „Ég er ekkert rosalega hrifin af bollum, ætli ég fái mér samt ekki eins og eina til að vera memm.“ Sigrún Alda Sigfúsdóttir

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.