Feykir - 04.02.2016, Page 11
05/2016 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti haldið áfram
að hugsa um bolludaginn.
Spakmæli vikunnar
Maður er ekki gamall svo lengi sem hann leitar einhvers.
- Jean Rostand
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... enginn Englendingur hefur unnið ensku úrvalsdeildina í
knattspyrnu sem framkvæmdastjóri?
... sir Alex Ferguson gerði Manchester United 12 sinnum að
Englandsmeisturum?
... Derby County spilaði 32 leiki í röð án þess að sigra tímabilið 2007-
2008?
Hahaha...
Kokkurinn:
Hvort á ég að skera pizzuna í sex eða tólf sneiðar, Siggi minn?
Siggi:
Hafðu þær sex, ég gæti aldrei torgað tólf sneiðum...
Krossgáta
½ l rjómi
2-4 msk tómatpúrra (pískað
saman í skál með rjóma)
1 rauð paprika
2 hvítlauksrif
1 box sveppir
6-8 skinkusneiðar
½ bréf pepperoni
Aðferð: Þetta er allt skorið í litla
bita og blandað saman við
rjómasósuna. Helst eru það
sveppirnir sem verða ágreinings-
mál hjá yngra fólkinu og hefur
lendingin verið að skera þá í 4
hluta, svo auðveldara sé að ýta
þeim til hliðar. Þessu er því næst
hellt yfir forsteikta fiskinn og
rifnum osti dreift yfir. Sett í ofn
við 180-200°C í u.þ.b. 20-30 mín.
„Svo látum við eina hráköku
fljóta með.“
EFTIRRÉTTUR
Draumurinn hennar
Dísu
Botn:
1 ½ bolli döðlur
1 bolli kókosmjöl
1 góður bolli pecanhnetur
5 msk kakó
1-2 msk kókosolía (má sleppa)
Aðferð: Allt sett í matvinnsluvél
og síðan þjappað í mót.
Toppurinn:
1 peli rjómi
200 gr vanillu- eða
jarðarberjaskyr
Aðferð: Rjóminn þeyttur, skyrinu
bætt út í rétt áður en rjóminn er
klár. Jarðarber, hindber eða blá-
ber skorin og dreift yfir.
„Við skorum á Kristínu Bjarna-
dóttur og Eirík Frímann Arnar-
son í Hofsós að taka við keflinu,
þau luma áreiðanlega á ýmsu.“
Verði ykkur að góðu!
Draumurinn hennar
Dísu og fleiri réttir
RÉTTUR I
Spænskt fiskideig
5 góðar msk hveiti
1 tsk natron
1 ½ tsk túrmerik
½ tsk sítrónupipar
½-1 tsk aromat
2 hvítlauksrif, pressuð
kalt vatn
Aðferð: Þurrefni og hvítlauk
blandað saman í skál og unnið
saman með vatni þar til deig er
örlítið þykkara en venjulegt
orlydeig. Með þessari útgáfu af
steiktum fiski er gott að hafa t.d.
gróf hrísgrjón og ferskt salat.
„Svo er það hinn rétturinn en
hann nefnist bara alltaf Rauði
rétturinn. Með honum höfum
við einfaldlega gott snittubrauð
eða hvítlauksbrauð.“
RÉTTUR II
Rauði rétturinn
3 ýsu eða þorskflök, meðalstór
og roðlaus/beinlaus
Aðferð: Kryddið örlítið með
kryddi að eigin vali og veltið
bitunum upp úr hveiti. Steikið
mjög snöggt á pönnu. Sett í
eldfast mót og útbúið sósuna.
Sósan:
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
„Við erum ansi dugleg að
skiptast á um eldamennskuna
og frágang, þó frágangurinn sé
ekki eitthvað sem slegist er um. Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að við gleðjumst yfir góðum fisk eða fiskiréttum með
ýmsum tilbrigðum. Við deilum með ykkur tveimur af okkar
uppáhalds réttum sem við fengum fyrir ótrúlega mörgum árum
og hafa frá þeirri stundu verið vinsælir hér á borðum,“ segja
matgæðingar vikunnar Ásdís Hrund Ármannsdóttir og Jón
Helgi Pálsson á Hofsósi.
„Fyrst er að nefna deig sem við veltum fiski upp úr og
steikjum svo í olíu á pönnu. Við kryddum örlítið á fiskinn með
aromat áður en honum er velt upp úr deiginu en það er eflaust
smekks atriði hvort þess er þörf. Deigið fær skemmtilegan
rauðan lit við steikingu.“
Ásdís og Jón Helgi matreiða
Ásdís og Jón Helgi bregða á leik í eldhúsinu. MYND: ÚR EINKASAFNI
Feykir spyr...
Hvað ætlar
þú að borða
margar bollur
á bolludaginn?
Spurt á Facebook
UMSJÓN siggag@nyprent.is
„Er óákveðin.“
Ólöf Sólveig Júlíusdóttir
„Ég ætla að borða
eina og hálfa!“
Guðný Guðmundsdóttir
„Það fer eftir því hvað mér
verða færðar margar bollur.
Kannski 20, kannski enga!“
Stefán Friðrik Friðriksson
„Margar... ætla að láta Heklu,
hún er í bakara-/konditorinámi,
baka fyrir mig.“
Óli Björn Pétursson
„Ég er ekkert rosalega hrifin
af bollum, ætli ég fái mér samt
ekki eins og eina til að
vera memm.“
Sigrún Alda Sigfúsdóttir