Feykir - 04.02.2016, Qupperneq 5
05/2016 5
Þriðja svekkelsis tapið
í röð hjá Stólunum
Dominos-deildin í körfubolta: Haukar - Tindastóll 79-76
Tindastólsmenn töpuðu þriðja leiknum í röð í
Dominos-deildinni sl. föstudagskvöld þegar
þeir sóttu Hauka heim í Hafnarfjörðinn.
Leikurinn var jafn og spennandi en varnarleikur
liðanna var heldur öflugri en sóknarleikurinn.
Það voru hinsvegar heimamenn sem reyndust
kraftmeiri á lokamínútunum og sigruðu 79-76.
Tindastóll leiddi 18-19 eftir fyrsta leikhluta og
Stólarnir leiddu lengstum í öðrum leikhluta.
Sóknarleikur beggja liða var þó frekar tilviljana-
kenndur en eftir að Haukar komust yfir, 34-33, setti
Pétur (ekki Viðar) niður þrist og tvær silkimjúkar
körfur fylgdu í kjölfarið frá Svabba. Staðan 34-40
fyrir Tindastól í hálfleik.
Líkt og í leiknum gegn Þór á dögunum komu
Stólarnir illa fyrirkallaðir inn í seinni hálfleikinn og
það voru heimamenn sem gerðu fyrstu átta stigin
og komust yfir, 42-40. Lewis svaraði fyrir Tindastól
en næstu mínútur voru heimamenn öflugri og
Haukur Óskarsson kom þeim sjö stigum yfir með
þristi, 56-49, þegar fjórar mínútur voru eftir af
þriðja leikhluta. Þá hertu Stólarnir á vörninni og
fóru hvað eftir annað á vítalínuna í sókninni. Þar
voru strákarnir ekki að eiga góðan dag því í heildina
klikkuðu þeir á ellefu vítum sem reyndist dýrkeypt
þegar upp var staðið. Það dró saman með liðunum
og Lewis setti niður annað víta sinna þegar hálf
mínúta var eftir af þriðjungnum og minnkaði
muninn í 59-58. Þristur frá Kristni Marinóssyni jók
muninn í 62-58 áður en lokafjórðungurinn hófst.
Þristur frá Pétri og karfa frá Lewis komu
Stólunum yfir, 64-65, og Pétur kom Stólunum aftur
yfir 66-67, þegar fjórar og hálf mínúta var eftir. Þá
varð sóknarleikur Tindastóls ráðleysislegur, menn
reyndu að finna Lewis en Haukarnir lokuðu vel á
hann. Hill vissi ekki hvort hann var að koma eða
fara þegar hann var inná og heimamenn gengu á
lagið og gerðu átta stig í röð. Staðan 76-68 þegar
Helgi Margeirs setti niður skrautþrist og í kjölfarið
stal Lewis boltanum á miðju og minnkaði muninn
í 76-73. Spenna hljóp á ný í leikinn síðustu
mínútuna en lukkan var ekki í liði Stólanna, sem
kórónaðist í því að Pétur missti fótanna og boltann
útaf þegar skammt var eftir. Hann setti þó niður
þrist í þann mund sem leiktíminn rann út en það
dugði ekki til. En eitt svekkelsis tapið. Lokatölur
79-76.
Pétur átti ágætan leik í gær þó hann hafi verið
óheppinn í lokin. Hann gerði 13 stig, tók sex fráköst
og átti sjö stoðsendingar. Jerome Hill var stiga-
hæstur með 21 stig og fimm fráköst, þar af fjögur
sóknarfráköst. Lewis var með 19 stig og fimm
stolna bolta auk fimm frákasta. Þá var Svabbi með
ágæta innkomu og Helgi Viggós spilaði fína vörn á
Mobley. Í liði Hauka voru Emil Barja og Kári
Jónsson góðir.
Næsti leikur Tindastóls er hér heima fimmtu-
daginn 4. febrúar, í kvöld, en þá koma Njarðvík-
ingar í heimsókn. Það er kristaltært að nú verða
Stólarnir að girða sig í brók og fara að styrkja stöðu
sína svo menn fari ekki að óttast verulega um sæti í
úrslitakeppninni. /ÓAB
Stig Tindastóls: Hill 21, Lewis 19, Pétur 13, Svavar 7, Helgi Viggós 6,
Flake 4, Helgi Margeirs 3 og Viðar 3.
Vikuna 24.–30. janúar var rúmum 36 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað rúmum
þremur tonnum á Hofsósi og rúmum 240 tonnum á Sauðárkróki. Engar landanir voru skráðar
á Hvammstanga. Alls gera þetta réttrúm 280 tonn á Norðurlandi vestra. /BÞ
Aflatölur 24.–30. janúar 2016 á Norðurlandi vestra
Aldan með rúm ellefu tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landb. lína 3.340
Alls á Hofsósi 3.340
SAUÐÁRKRÓKUR
Hafborg SK 54 Þorskfisknet 2.063
Klakkur SK 5 Botnvarpa 100.859
Málmey SK 1 Botnvarpa 137.527
Alls á Sauðárkróki 240.449
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 3.054
Alda HU 112 Landb. lína 11.090
Bogga í Vík HU 6 Landb. lína 825
Dagrún HU 121 Þorskfisknet 1.214
Guðmundur á Hópi Landb. lína 7.878
Stella GK 23 Landb.lína 4.660
Sæfari HU 200 Landb. lína 3.260
Ölli Krókur GK 211 Landb. lína 4.311
Alls á Skagaströnd 36.292
Myron Dempsey tekur
við af Jerome Hill
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls hefur sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem sagt
er frá því að gengið hefur
verið frá ráðningu á nýjum
kana en Stólarnir hafa á ný
samið við Myron Dempsey
sem lék með liðinu á síðasta
tímabili.
Þetta ætti að gleðja stuðnings-
menn Tindastóls en ljóst er að
Dempsey er talsvert skemmtilegri
leikmaður en Jerome Hill,
listamaður í loftinu og gerði
margar gullfallegar körfur á
síðustu leiktíð. Nú er bara að
krossa fingur og vonast til þess að
Dempsey verði fljótur að ná takti
með sínum gömlu samherjum
sem léku á köflum frábærlega
saman í fyrravetur. Dempsey
verður vonandi klár í slaginn
þegar Njarðvíkingar mæta í Síkið
nú í kvöld.
Hill farinn til Keflavíkur
Í tilkynningunni segir jafnframt
að stjórn kkd. Tindastóls hafi
komist að samkomulagi við
Jerome Hill um að hann hafi
leikið sinn síðasta leik með liði
Tindastóls og er honum þakkað
samstarfið.
Miklar væntingar voru gerðar
til Hill sem þótti ansi spennandi
kostur fyrir Tindastól og var
reiknað með því að hann ætti
eftir að lýsa upp Dominos-
deildina. Fljótlega varð þó ljóst að
Hill var ekki sá leikmaður sem
vonast var eftir og oftar en ekki
sátu stuðningsmenn Stólanna og
klóruðu sér í kollinum yfir
frammistöðu hans.
Mörgum þykir það svo
kannski skjóta skökku við að Hill
var snöggur að finna sér annað
lið á klakanum því topplið Kefl-
víkinga tryggði sér starfskrafta
hans. /ÓAB
Mette Mannseth er liðs-
stjóri Draupnir/Þúfur
Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum
Meistaradeild Norðurlands
hefur nú kynningu á liðum
KS-Deildarinnar 2016 en
keppnin hefst þann 17.
febrúar nk. Fyrsta liðið sem
kynnt er til leiks er Draupnir/
Þúfur. Liðstjóri er Mette
Mannseth og með henni í liði
eru Gísli Gíslason, Barbara
Wenzl og Artemisia Bertus en
hún kemur ný inn í þetta lið.
Lið Draupnis endaði í 3. sæti í
liðakeppninni í fyrra og ætla þau
sér eflaust stærri hluti í ár,“ segir í
fréttatilkynningu.
Keppniskvöld
KS-Deildarinnar eru:
17. febrúar Fjórgangur
2. mars Fimmgangur
16. mars Tölt
30. mars Gæðingafimi
6. apríl Slaktaumatölt
og skeið
/BÞ
Myron Dempsey í baráttunni síðastliðið vor. MYND: ÓAB
Séð yfir Gamla bæinn og hafnarsvæðið á Sauðárkróki. MYND: BÞ