Feykir - 04.02.2016, Síða 6
6 05/2016
tíma til. Hann er menntaður
matreiðslumaður líka og hugs-
anlega væri hægt að fá hann til
að taka eina og eina veislu.
Píparakunnáttan nýtist líka vel,“
segir Kristín og brosir.
„Guðmundur hefur verið í
dyravarðabransanum í mörg ár
og svo koma þeir báðir með
okkur í þrifin,“ skýtur Anna
Margrét að. Sem fyrr segir hafa
börn þeirra einnig sýnt
rekstrinum mikinn áhuga en
hvorar um sig eiga þær fjögur
börn. „Ég á strák sem er mjög
áhugasamur um þetta allt
saman, stundum einum of,“
segir Anna Margrét og hlær.
„Við njótum góðs af því, þannig
að það er bara frábært,“ bætir
Kristín við.
Þakklætið eflir okkur
Kristín segir að umfangið hafi
komið þeim svolítið að óvörum
og að fjárfestingarnar hafi verið
persónulegri en þeim hafði
grunað í upphafi. „Við gengum
aðeins á vegg með þetta. Það var
margt inní þessu sem við vorum
ekki alveg búin að hugsa til
enda. Þetta urðu persónulegri
fjárfestingar en okkur grunaði
en við lítum á þetta sem vinnu
og vonandi, hægt og rólega,
byggist þetta upp og verður
eitthvað meira úr þessu en hefur
verið.“ Hún nefnir sem dæmi að
þegar þær tóku formlega við
félagsheimilinu kom í ljós að
Dreymir um að
fylla húsið af lífi
Anna Margrét og Kristín Ósk hafa tekið við rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi
Draumurinn er að það verði
meiri menning í þessu húsi en
þetta er stórt og mikið hús og
hefur verið illa nýtt. Hugsunin
hjá okkur er að fá fleira fólk og
nýta það betur. Okkur dreymir
um að það verði ekki bara stórir
viðburðir heldur að húsið verði
nýtt betur undir smærri viðburði,
s.s. fundi, ráðstefnur og veislur
og að við getum sniðið húsið eftir
þörfum,“ segja stöllurnar sem
vinna nú hörðum höndum að
því að fá fleiri slíka viðburði inn í
félagsheimilið. Félagsheimilið á
Blönduósi er fjölnota samkomu-
hús með tvo sali, veislusal og
kvikmyndasal. Veislusalurinn
tekur 170 manns í sæti en þar er
hægt að vera með veislur fyrir
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
allt að 220 manns með því að
vera með borð niðri á gólfi. Þá er
kvikmyndasalur sem tekur 250
manns í sæti og hefur gjarnan
verið notaður undir t.d. leik-
sýningar og tónleika.
Anna Margrét og Kristín
viðurkenna að þegar þær ákváðu
að taka að sér rekstur félags-
heimilisins vissu þær ekki alveg
hvað þær voru að koma sér í,
bæði hvað varðar ástand og
aðbúnað hússins en einnig hafi
þær þurft að demba sér í að
kynna sér skemmtanabransann.
Þær hafi þó fullan stuðning
eiginmanna sinna og barna sem
taka óspart þátt í þessu nýja
ævintýri með þeim. „Upphafið af
þessu var að maðurinn minn
hefur haft voða mikinn áhuga á
þessu húsi og hann bað mig um
að koma með sér að kanna
þetta,“ segir Anna Margrét en
eiginmaður hennar er Guð-
mundur Jakob Svavarsson frá
Öxl í Vatnsdal. „Við fórum að
athuga málið en sáum að þetta
gekk ekki fyrir okkur ein og
hættum við þetta allt saman,“
segir Anna Margrét ennfremur.
Hún og Kristín Ósk starfa báðar
sem leikskólakennarar á leik-
skólanum Barnabæ á Blönduósi.
Einn föstudag bar félagsheimilið
á góma þeirra á milli. „Við
Kristín fórum eitthvað að tala
saman í vinnunni og þá kom
upp að hún hefði áhuga á þessu
líka,“ bætir hún við. Kristín segir
frá því að þær hafi hist ásamt
eiginmönnum sínum sunnu-
daginn eftir að samtalið átti sér
stað til að ræða frekar hvort þetta
væri eitthvað sem þau vildu gera
í sameiningu. „Á mánudeginum
vorum við komnar inn á borð
hjá Arnari bæjó að ræða málin,“
segja þær og brosa. Í kjölfarið
stofnuðu þau fyrirtæki utan um
reksturinn sem nefnist Hafa
gaman. Eiginmaður Kristínar er
Guðmundur Haukur Jakobsson
og er pípulagningamaður, hjónin
eru bæði fædd og uppalin á
Blönduósi.
„Við erum mjög gott teymi
saman, enda er mjög gott að það
séu tvenn hjón í þessu sérstaklega
upp á viðveruna að gera. Það var
það sem fældi okkur Guðmund
frá þessu upphaflega, að þurfa
alltaf að vera bundinn yfir
þessu,“ segir Anna Margrét.
Kristín tekur undir. „Guðmund-
ur, maðurinn hennar Önnu, er
alveg með okkur í þessu og
maðurinn minn með annan
fótinn eftir því sem hann hefur
Um miðjan nóvember síðastliðinn tóku þær Anna Margrét Arnardóttir og Kristín Ósk Bjarnadóttir við
rekstri Félagsheimilisins á Blönduósi. Um er að ræða stórt og glæsilegt hús sem býður upp á ótal möguleika
undir fjölbreytt starf og viðburði fyrir Blönduósinga og nærsveitunga. Að sögn Önnu Margrétar og Kristínar
er kominn tími á viðhald á ýmsu, innan sem utan, og er ljóst að ærið verk er fyrir höndum. Þær segjast hafa
ákveðið að hella sér í þetta verkefni af einskærri hugsjón um að blása lífi í menningarlíf svæðisins.
Kristín Ósk og Anna Margrét fyrir utan Félagsheimilið á Blönduósi.
MYND: BÞ