Feykir - 04.02.2016, Qupperneq 7
05/2016 7
ekkert matarstell fylgdi húsinu.
Fyrrum rekstraraðili átti stellið
sem var í notkun í húsinu. „Fólk
heldur gjarnan að það hafi allt
verið til í húsinu og við labbað
inn sem húsverðir en það var
ekki þannig. Við leigjum húsið af
bænum og sjáum um rekstur-
inn,“ útskýrir Anna Margrét.
Í félagsheimilinu eru ákv-
eðnir fastir viðburðir en Anna
Margrét og Kristín segja þá hafa
farið sífellt fækkandi í gegnum
árin en að þær vilji gjarnan
fjölga þeim á nýjan leik. Fastir
viðburðir eru t.a.m. áramóta-
dansleikur, þorrablót, Smábæjar-
leikarnir að sumri og Húna-
vakan. Um tíma segja þær
Búgreinahátíð Austur-Húnvetn-
inga og Hreppablótið hafi verið
komið annað, auk þess sem
Styrktarsjóðsballið hafi fallið
niður vegna óviðráðanlegra or-
saka, en að þær vonist til þess að
þessir viðburðir verði fastir liðir í
húsinu á ný.
Í desemberbyrjun ákváðu
Anna Margrét og Kristín Ósk að
vera með opið hús til að kynna
hvað þær vildu gera en að sama
skapi í von um að fá að heyra frá
íbúum hvaða starfsemi þeir vildu
sjá í húsinu. Þær segja fleiri hafi
komið en þær hafi þorað að vona
og að þær hafi fengið fullt af
nýjum hugmyndum til að vinna
úr. „Hérna áður var mikil
klúbbastarfsemi í gangi í húsinu;
félagsvist, bridds, skák og fleira.
Okkur var sagt að það hafi
stundum verið fullt hér í öllum
hornum, kannski þrír til fjórir
viðburðir í gangi í einu. Þetta er
svo stórt hús, það er eitthvað sem
við viljum gjarnan fá aftur inn,“
segir Kristín. „Við höfum verið
beðnar um að koma hinu og
þessu í gang og er það í vinnslu
hjá okkur, t.d. er áhugi fyrir skák
og félagsvist. Eins að opna húsið
fyrir konum í bútasaumi, hafa
prjónakvöld, að opna húsið
meira sem samverustað. Svo
dreymir okkur um bíó - alvöru
bíósýningar þar sem við erum
með svo flottan bíósal,“ telja þær
upp en taka fram að til þess
vanti þó nýja sýningarvél. Einnig
bráðvanti hljóðkerfi og finna
þarf leið til að fjármagna þau
kaup.
Anna Margrét og Kristín
segja að notkunin á húsinu sé nú
þegar að færast í aukana, fleiri
fundir á virkum dögum og þá
sýndu þær einnig frá EM í
handbolta á dögunum. Það eru
einmitt svona minni viðburðir
sem við viljum sjá meira af – að
húsið sé notað, það er aðal-
atriðið,“ segir Anna Margrét
glöð í bragði. „
Svo voru haldnir jólatónleikar
í kvikmyndasalnum, þar sem
hljómsveitin var skipuð heima-
fólki, og voru gífurlega vel sóttir.
Hér var haldinn árviss ára-
mótadansleikur þar sem
Trukkarnir léku fyrir dansi en
við erum farnar að kalla þá
hljómsveit hússins. Þeir eru á
hverri einustu skemmtun hérna
orðið og eru búnir að vera
hérna á fjórum viðburðum á
skömmum tíma. Þeir eru hættir
að taka saman bara,“ segir Anna
Margrét og hlær. Hljómsveitina
skipa strákar frá Blönduósi og
nærsveitum og segja þær Anna
Margrét og Kristín strákana spila
tónlist sem fellur vel í kramið hjá
öllum aldurshópum. „Ofboðs-
lega flottir strákar og það skín af
þeim að þeir hafa gaman að
þessu,“ segir Anna Margrét.
Allir jákvæðir
„Við erum mjög ánægðar með
viðtökurnar hjá fólki og hvað
það er búið að vera mikið að
gerast á þessum stutta tíma frá
því við tókum við. Það var t.d.
mjög mikið að gera um jólin og
reyndi talsvert á alla fjölskyldu-
meðlimi um hátíðarnar en ofsa-
lega gaman. Maður nennir að
liggja yfir þessu dag og nótt
liggur við af því það eru allir svo
jákvæðir. Maður er stoppaður út
í búð og úti á götu þar sem fólk
lýsir ánægju sinni yfir því að við
séum teknar við félagsheimil-
inu.“ Anna Margrét samsinnir
henni og segir þakklætið efla
þær. Þær nefna eitt tilvik sem
þær segjast hafa fundið fyrir
Frá viðburði í veislusal félagsheimilisins. MYND: ÚR EINKASAFNI
örlitlu mótlæti, þegar halda átti
áramótadansleikinn. „Það hefur
verið hefð fyrir því að vera með
áramóta-ball. Ég man eftir því
sjálf sem unglingur, þetta voru
skemmtilegustu böllin. Það var
svo breiður aldur hérna og allt
var æðislegt. Hingað komu
krakkarnir sem höfðu fyrst aldur
til að komast inn og foreldrar,
ömmur og afar,“ rifjar Kristín
upp. Nú sé það hins vegar þannig
að það sé aðallega unga kyn-
slóðin sem mæti.
„Við ákváðum um áramótin
að hafa 18 ára ball, ekki 16 ára
ball, sem var mikið til komið
vegna breyttra reglna í sambandi
við löggæslukostnaðinn. Okkur
hefur verið sagt að það sé hægt
og bítandi verið að útrýma 16
ára böllum, að þau séu svolítið
barn síns tíma. Við vorum
kannski svolítið leiðinlega fólkið
sem rauk í það og vorum ekkert
sérlega vinsælar fyrir vikið,“
útskýra þær. Þær segja að til þess
að hafa lögregluna til taks þurfi
að greiða um 100 þúsund krón-
ur í löggæslukostnað þegar
haldin eru 16 ára böll. Aukinn
kostnaður fylgi ýmsu öðru þetta
kvöld, dýrara að fá dyraverði,
hljómsveitin taki meira fyrir að
spila og launakostnaður meiri
fyrir starfsfólk sem standi
vaktina á barnum. „Þannig að
við tókum þennan pól í hæðina
en svo fórum við að lesa okkur til
í lögum og reglum og þar sáum
við að á svona samkomum, þar
sem selt er vín, þá mega 16 til 18
ára krakkar koma ef þeir eru í
fylgd með fullorðnum, þ.e. for-
ráðamanni, foreldri eða systkini
eða ættingjum, eldri en 18 ára.
Þannig að við fórum út í það að
prófa það,“ útskýra þær og segja
það hafa tekist vonum framar.
„Það var allt skráð þegar komið
var inn í hús. Þegar viðkomandi
keypti sér miða þá var spurt um
aldur og ef hann var á aldrinum
16-18 ára var tekið niður nafn og
kennitala, auk nafns og kenni-
tölu þess sem sá var í fylgd með.“
Þær viðurkenna að þetta hafi
verið þó nokkuð utanumhald og
aukavinna en að allt hafi gengið
rosalega vel og að unga fólkið
hafi verið til fyrir-myndar. „Það
voru allir sáttir sem voru hér inni
og það skemmtu sér allir vel
saman.“
„Gagnrýnin sem við fengum
á þetta var að fólk hélt að við
værum í raun og veru að útrýma
þessum aldursflokki, 16-18 ára,
af því þau væru með vesen en
það var alls ekki þannig,“
útskýrir Kristín. Sjálfar segjast
þær eiga börn á þessu aldursbili
og það væri af og frá að þær hafi
verið að reyna úthýsa þessum
aldursflokki. Það hafi verið
kostnaðurinn sem aftraði þeim í
upphafi en að blessunarlega
fannst þessi farsæla lausn innan
ramma laganna. „Við erum
komnar langt með það að
skipuleggja viðburð fyrir þennan
aldur, að fá einhverja flotta
listamenn eða plötusnúða sem
eru „inn“ þessa dagana,“ segir
Anna Margrét. Hún segir
hugmyndina vera þá að við-
burðurinn myndi henta fyrir
unglinga á aldursbilinu 14 til 18
ára og að staðið verði að við-
burðinum í samstarfi við skóla
og félagsmiðstöðvar á svæðinu.
Hús allra –
ekki bara okkar
Anna Margrét og Kristín segja
spennandi tíma framundan og
að þær séu með ýmislegt á
teikniborðinu. Þær eru búnar að
auglýsa stóran handverksmark-
að sem þær ætla að halda fyrstu
helgina í júní og þær segjast
búnar að hafa samband við
handverksfólk í Húnavatns-
sýslum og í Skagafirði og boðið
þeim þátttöku. Þær hvetja
handverksfólk til að hafa
samband ef áhugi er fyrir því að
vera með á markaðnum. Verið er
að klæða húsið að utan og verður
það gert í áföngum, þá standi
einnig til að taka dansgólfið í
gegn og pússa það. „Góðir hlutir
gerast hægt en það þarf að byrja
á því að koma lífi í húsið. Þetta er
allt nýtt fyrir okkur og það er
frumskógur að fara í gegnum
svona skemmtanabransa,“ segir
Anna Margrét.
Kristín segir ánægjulegt hve
margir hafa boðið fram aðstoð
sína. „Það er svo frábært hvað
það eru margir í bænum búnir
að bjóða fram aðstoð sína. Þegar
við vorum með opna húsið þá
kynntum við m.a. að okkur
langaði að vera með vinnudaga
þar sem farið yrði í málningar-
vinnu og smá viðhald. Það var
fullt af fólki sem bauð fram
aðstoð sína og vildi eyða hérna
nokkrum klukkutímum í að gera
húsið betra,“ segir Kristín. „Þetta
er náttúrulega hús allra, ekki
bara okkar. Þetta er hús fyrir
Blönduósinga og nærsveitir en
það gleymist stundum að það er
allra að hlúa að húsinu,“ segir
Anna Margrét. Þá segir hún að
húsið hafi upprunalega verið
byggt í sjálfboðavinnu, af dríf-
andi fólki í bænum. „Maður
heyrir það frá eldra fólkinu að
það er mjög þakklátt því að við
séum að reyna koma einhverju
af stað hérna. Það er hálfgerð
vanvirðing við fólkið sem byggði
húsið upp að láta það drabbast
niður, þannig að vonandi tekst
þetta hjá okkur,“ segir Anna
Margrét að endingu.
FÉLAGSHEIMILIÐ Á BLÖNDUÓSI
Margir komu
að byggingu
félagsheimilisins
Félagsheimilið á Blönduósi var byggt árið 1962. Margir komu að
byggingu hússins á sínum tíma, ýmis félagasamtök áttu hlut í húsinu
auk Blönduóshrepps og þá voru margir einstaklingar sem unnu
í sjálfboðavinnu og/eða „keyptu sér stól eða borð“ sem þeir hinir
sömu höfðu forgang að næstu árin. Arkitekt var Jósef Reynis og
byggingarmeistari var Sveinn Ásmundsson frá Ásbúðum á Skaga.
Á annarri hæð er rekin Félagsmiðstöðin Skjólið sem er í umsjón
Blönduskóla en Leikfélag Blönduós auk Kvenfélagsins Vöku eru
með aðstöðu í kjallaranum. Þá hýsir gamla húsvarðaríbúðin tvö
þjónustufyrirtæki.
Heimild: Blonduos.is
Séð yfir kvikmyndasalinn en þar eru gjarnan tónleikar og leiksýningar. MYND: BÞ