Feykir - 04.02.2016, Blaðsíða 12
Húsfyllir í Höfðaborg
Þorrablót Hofshrepps
Þorrablót Hofshrepps var haldið
í Félagsheimilinu Höfðaborg á
Hofsósi laugardaginn 30. janúar
síðastliðinn.
Góð mæting var á blótið og að
vanda mikið lagt í skemmtiatriði,
Særún Björnsdóttir las annál og
þorrablótsnefndin fór á kostum.
Meðfylgjandi myndir tók Gréta
Dröfn Jónsdóttir, Feykir þakkar
henni fyrir og hvetur lesendur til
að senda flottar myndir, sem
teknar eru af ýmsu tilefni, til
birtingar. Hægt er að senda þær á
netfangið feykir@feykir.is /BÞ
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
05
TBL
4.febrúar 2016 36. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Hofsós
Tillaga um
endurheimt votlendis
Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar Sveitar-
félagsins Skagafjarðar þann 29. janúar sl. var lagt
fram bréf frá Björgvini Guðmundssyni, dagsett 20.
maí 2015, þar sem hann leggur til að Landbúnaðar-
nefnd beiti sér fyrir því að mokað verði ofan í skurði í
svonefndum flóa norðan við Hofsós, til að endur-
heimta votlendi og byggja upp fuglalíf.
Í fundargerð segir að landbúnaðarnefnd hafi vísað
erindinu til Umhverfis- og samgöngunefndar á fundi
sínum þann 20.11.2015. Nefndin þakkaði erindið og fól
sviðsstjóra að kanna eignarhald á landinu áður en erind-
ið verður afgreitt. /BÞ
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemm ilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feyki @feykir.is
6
TBL
12. febrúar 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
KJARNANUM HESTEYRI 2 550 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 4570
Bílaverkstæði
Verið velkomin í Kjarnann!
með Meguiar’s bílahreinsvörum
Eigum mikið úrval af
hágæða bílahreinsivörum frá Meguiar’s
Hvað ertu með á prjónunum?
Kristín Ólöf Þórarinsdóttir á Hvammstanga
„Ekkert betra en
grípa í prjónana eftir
erilsaman dag“
HVAÐ ERTU MEÐ
Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN berglind@feykir.is
-Handavinna hefur
verið partur af mér
síðan ég man eftir mér.
Framan af allskyns
handavinna en nú í seinni tíð hef ég haldið mig
við prjónana og gríp í saumavél endrum og eins.
Þegar ég var yngri hamaðist ég
við að sauma út, oftast eitthvað
smálegt sem mamma mín dró upp
og það endaði sem dúkur eða
koddaver. Einnig ótal púðaver úr
krosssaum. Það var svo þegar ég
fór í Menntaskóla til Reykjavíkur
að ég var svo heppin að fá að búa
hjá föðursystur minni en hún fékk
mig til að prjóna og hef ég prjónað
æ síðan. Það má líka segja það að
þessi áhugi minn á handavinnu
hafi orðið til þess að ég ákvað að
taka textílmennt sem kjörsvið
þegar ég fór svo í Kennaraháskóla
Íslands.
Ég er oftast með fleiri en einn
Með peysur og húfur á prjónunum. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
hlut á prjónunum í einu og er yfirleitt komin langt
fram úr sjálfri mér við að ákveða hvað ég geri næst.
Nú síðast var ég að klára hestavettlinga á dóttur mína,
tvær lopapeysur og húfur. Er með hálfgert húfuæði.
Á prjónunum akkúrat núna eru tvær peysur og
ein húfa. Önnur peysan er Nancy-peysa útprjónuð og
ég sé fram á að hún verði langtímaverkefni ætluð mér
sjálfri og svo er ég að byrja á færeyskri lopapeysu á
dóttur mína og kertalogahúfu. En framundan er
öskudagur og þá þarf að snara fram öskudagsbúningi.
Á dagskránni er að sauma sjóræningjabúning en þau
handverk sem ég hef verið einna ánægðust með eru
skírnarkjólar. Í nokkur ár kenndi ég textílmenntval í
Grunnskóla Húnaþings vestra og voru skírnarkjólar
óhemjuvinsælir. Ég er afskaplega stolt af því að hafa
tekið þátt í því með þessum stelpum, en það voru
bara stelpur sem völdu sér textílmennt hvernig sem
stendur nú á því, að gera
skírnarkjóla því þetta er töluverð
vinna og undantekningarlaust
voru þær gríðarlega ánægðar þegar
þær voru búnar.
Handavinna af hvaða tagi sem er
er mjög slakandi og þar fær maður
útrás fyrir sköpunargáfuna. Það er
ekkert betra en grípa í prjónana
eftir erilsaman dag.
Að lokum skora ég á Sigfríði
Eggertsdóttur frænku mína til að
taka við keflinu af mér. En hún er
snillingur í að töfra fram listaverk í
hekli og prjóni.
www.hskrokur.is
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
SÉRFRÆÐIKOMUR
16. og 17. febrúar
Sigurður Albertsson alm. skurðlæknir
18. febrúar
Valur Þór Marteinsson, þvagfæraskurðlæknir
23. og 24. febrúar
Haraldur Hauksson alm. æðaskurðlæknir
26. og 27. febrúar
Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir
Tímapantanir í síma 455 4022.
Veislugestir voru fjölmargir. Særún Björnsdóttir fer á kostum.
Þorrablótsnefndin.