Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 4
2 01 64
Helstu tónlistarafrek: Úff, þetta er
frekar erfitt og stórt orð. Ég hef starfað
meira og minna sem organisti síðan
ég var um tvítugt og einnig í alls konar
kennslutengdri tónlist. Ég held að við
organistar séum oft annað hvort meiri
orgelleikarar eða kórstjórar – ég nýt
þess að vera kórstjóri. Kór er eins og
hljóðfæri sem þú getur leikið á. Það er
ekki leiðinlegt að spila á lifandi
hljóðfæri. Mín tónlistarafrek
liggja í kórastarfinu. Ég er mjög
stolt af því að hafa kór sem
heldur tónleika og fer í ferðalög
og er tilbúinn að syngja allt sem
ég rétti þeim. Það er ekki nóg
að hafa tónlistarþekkingu til að
stjórna kór, þú þarft að hafa mikla
hæfileika í mannlegum samskiptum
til að samhljómurinn verði góður og
„hljóðfærið“ njóti sín.
Hvaða lag varstu að hlusta á?
Miserere Mei Deus eftir Gregorio Allegri
– King´s College Choir.
Uppáhalds tónlistartímabil? Renesans
tímabilið sem er tímabilið á undan
barrokk tímabilinu. En samt erfitt að
gera uppá milli Renesans-tónlistar og
barrokktónlistar.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun
þessa dagana? Kórtónlist og raddaður
söngur fær mig alltaf til að sperra eyrun.
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu
heimili? Bara allt sem var í útvarpinu.
Best eru jólalögin
sungin af börnum
UMSJÓN
Óli Arnar Brynjarsson
Jóla Tón-lystin : Pálína Fanney Skúladóttir / organisti og kórstjóri
Jóla Tón-lystinni að þessu sinni svarar Pálína Fann-
ey Skúladóttir frá Laugarbakka en hún starfar sem
organisti og kórstjóri. Pálína er fædd á Fljótsdals-
héraði viku áður en Bítlarnir hófu upptökur á plötu sinni, Help.
Spurð út í tengsl við Norðurland vestra segir hún: „Ég á engar ættir að rekja
hingað í Húnavatnssýslur né í Skagafjörð. Hef samt búið eitt ár í Varmahlíð
´90 - ´91 og þykir síðan mjög vænt um Skagafjörð og finn
alltaf fyrir notalegri tengingu þangað. Ég hef búið
16 ár í Húnaþingi vestra og ekki laust við að
ég sé orðinn þó nokkur Húnvetningur þó
ræturnar séu fyrir austan.“
Aðalhljóðfæri Pálínu er kirkju-
orgel en hún spilar líka á píanó og
lærði söng, kórstjórn og fleira sem
snýr að kirkjutónlistarnámi.
Það var ekki plötuspilari heima. Óskalög
sjúklinga og Óskalög sjómanna eru
minnisstæðir þættir og lög unga fólksins.
Ég var eitthvað um 12 ára þegar ég sat um
að hlusta á kirkjutónlistarþátt sem var á
sunnudagsmorgnum í útvarpinu milli
9:00 og 10:00 – kannski er hann ennþá í
gangi. Þetta voru frábærir þættir og þarna
kynntist ég einmitt góðri kórtónlist, mjög
oft voru spilaðar t.d. Bach kantötur. Bach
er auðvitað efst á toppnum, alltaf!
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
þér? Ég hreinlega man það ekki, það
voru einhverjar klassískar plötur. Man
t.d. eftir dásamlegri plötu með Tapiola
barnakórnum fræga frá Finnlandi. Kór-
inn var með tónleika í Langholtskirkju
og ég keypti plötuna þar og spilaði hana
endalaust. Því miður á ég þessa plötu ekki
í dag.
Hvaða græjur varstu þá með? Plötuspilra
en þá er ég líka orðin 18 ára
Hvaða tónlist hlustar þú helst á í jóla-
undirbúningnum? Ég á fullt af jóladiskum,
einn sá elsti er jóladiskur með Mahalia
Jackson. Hann er í 1. sæti. Eddukórinn
og Þrjú á palli koma með dásamlega
þjóðlegan anda, Borgardætur og KK
og Ellen fá líka að hljóma, sérstaklega
þegar ég er að þrífa eða baka eða í öðru
jólastússi. Annars eru fallegir kórdiskar
með jólalögum hátt skrifaðir hjá mér.
Svo er gaman að finna nýtt efni á netinu,
oftast verður kórtónlist þar fyrir valinu.
Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegr
þú varst nýkomin með bílpróf? Ég hopp-
aði eiginlega yfir þetta tímabil að vera
unglingur... en ég man samt eftir að hafa
verið að hlusta á Bee Gees og Meat Loaf
en það var samt líklega áður en ég fékk
bílpróf. Núna á ég það alveg til að stilla
hátt í bílnum, stundum er það Queen eða
Mótettukórinn og ýmislegt þar á milli.
Hvert var uppáhalds jólalag unglings-
áranna? Mary´s Boy Child og fleiri Boney
M lög.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn?
Það er ekkert utanaðkomandi sem getur
eyðilagt fyrir mér daginn.
Hvenær má byrja að spila jólalögin? Mér
finnst að útvarpsstöðvarnar ættu að miða
við fyrsta sunnudag í aðventu, spila eitt
og eitt lag en spara hátíðlegustu lögin til
jólanna eða a.m.k. eiga eitthvað eftir þegar
jólin eru rétt að koma. Mér finnst t.d. ekki
passa að auglýsa jólahlaðborð í septem-
ber og láta hljóma undir auglýsingunni
Ó, helga nótt.
Uppáhalds jólalagið? Hátíð fer að höndum
ein!
Hvert er fyrsta jólalagið sem þú manst eftir
að hafa heyrt? Það gæti verið Bráðum
koma blessuð jólin, ég lærði það a.m.k.
mjög snemma. Fyrsti sálmurinn sem ég
lærði var örugglega Í Betlehem er barn oss
fætt.
Hvernig eru jólalögin best? Sungin af
börnum – þau kalla fram allt það besta í
okkur.
Þú vaknar í rólegheitum á jóladags-morgni,
hvað viltu helst heyra? Ég vil vera í ÞÖGN.
Búin að spila við þrjár messur kvöldið
áður og er á leið í tvær þennan dag –
stundum er þögnin besta tónlistin.
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í
heiminum og skella þér á tónleika. Hvert
færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu
með þér? Mig hefur alltaf dreymt um að
fara til London og vera í nokkra daga og
velja um alls konar kirkjutónleika í öllum
þessum stóru flottu kirkjum. Ég hef ekki
hugmynd um hver myndi nenna að
koma með mér í svona ferð.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um
að vera? Ég hef bara aldrei velt þessari
spurningu fyrir mér... að dreyma um að
vera einhver önnur... held ég sé of sátt við
sjálfa mig eins og ég er.
Hver er að þínu mati besta plata sem
gefin hefur verið út? Það er ekki til nein
besta plata, en bestu plöturnar verða til
þegar listamenn ná að skapa frá hjartanu
og snerta þannig við hjörtu þeirra sem
hlusta. Þá verða til töfrar og listaverkið fær
að blómstra. Þetta á við alla listsköpun.
Hvenær eru jólin komin? 24. 12. kl. 18:00
– það er svo okkar að taka á móti þeim
með gleði og opnu hjarta.
Ljós verða tendruð
Það verður jólastemning á Sauðárkróki
laugardaginn 26. nóvember
Ljós verða tendruð á jólatrénu á Kirkjutorgi kl. 15:30.
Jólatréð er gjöf frá Kongsberg, vinabæ Skagafjarðar í Noregi.
Mætum hress og kát í aðventustemninguna á Króknum!
Áramótabrennur í Skagafirði á gamlárskvöld
HOFSÓS Kveikt verður í brennu á Móhól kl. 20:30. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21:00.
HÓLAR Kveikt verður í brennu sunnan við Víðines kl. 20:30. Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Grettis kl. 21:00.
SAUÐÁRKRÓKUR Kveikt verður í brennu kl. 20:30. Flugeldasýning Skagfirðingasveitar kl. 21:00.
VARMAHLÍÐ Kveikt verður í brennu við afleggjarann upp í Efri-Byggð kl. 20:30. Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar kl. 21:00.
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar íbúum Skagafjarðar
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Jóladagatal Skagafjarðar er á www.skagafjordur.is