Feykir


Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 38

Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 38
2 01 63 8 Það var að vísu óvenju fá- mennt þegar blaðamann Feykis bar að garði, en allir sátu afar einbeittir við hann- yrðirnar og sumir höfðu tvö verkefni í takinu. Föndrið hefst á haustin og hefð er fyrir því að hittast tvisvar í viku fram á uppstigningardag, en þá er jafnan sýning á afurðum vetrarins. „Við erum stundum lengur, ef uppstigningardagurinn er snemma,“ segir Stella Bára. Sem leiðbeinandi þarf hún að kunna ýmislegt fyrir sér í handverki þar sem viðfangs- efnin eru afar fjölbreytt. Þannig er til dæmis fengist við að smyrna, mála postulín, sauma út, prjóna, hekla, og mála á trémuni. Stella Bára segir að það séu ýmsar tískusveiflur í handverki eins og öðru og hún fer reglulega á námskeið til að kynna sér nýjungar í þessum efnum. Svo er ýmislegt annað í boði fyrir eldri borgara á svæðinu, meðal annars leik- fimi, sem Stella sér einnig um. „Við byrjum á jólaföndr- inu í janúar og grípum í það allt árið. Þetta er ljómandi gott allt saman,“ segir hand- verksfólkið og gleðin og einbeitingin skín af hverju andliti. „Félagsskap- urinn er svo skemmtilegur” TEXTI OG MYNDIR Kristín S. Einarsdóttir Eldri borgarar í Húnaþingi vestra grípa í jólaföndur allt árið Hátt í þrjátíu ár eru síðan skipulagt föndurstarf hófst fyrir eldri borgara í Húnaþingi vestra. Það er ávallt glatt á hjalla þegar hópurinn hittist í Nestúni á þriðjudögum og fimmtudögum og framleiðir fjölbreytt handverk undir góðri leiðsögn Stellu Báru Guðbjörnsdóttur. Blaðamaður Feykis kíkti í heimsókn, skoðaði afurðirnar og spjallaði við fólkið í hópnum yfir kaffi og meðlæti. Baldur Skarphéðinsson Brynhildur Gísladóttir Erla Eðvaldsdóttir Elínborg Ólafsdóttir Hildur Guðmundsdóttir og Vigdís Þorsteinsdóttir Erla Pétursdóttir Stella aðstoðar Gissur Þór Sigurðsson Gissur Þór Sigurðsson Guðrún Árnadóttir Elínborg, Guðrún og Jóhanna Jóhanna Þórarinsdóttir

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.