Feykir - 23.11.2016, Blaðsíða 6
2 01 66
Rósa er fædd og uppalin í Sölvanesi í
fyrrum Lýtingsstaðahreppi en flutti í
Goðdali sautján ára gömul. Eiginmaður
hennar, Borgar Símonarson, ólst þar
upp og tók við búi af foreldrum sínum,
en hann lést árið 2012. Nú hafa sonur
þeirra og tengdadóttir, Smári Borgarsson
og Sigríður Sveinsdóttir, tekið við búinu.
„Það var oft
mjög fjörugt“
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Í Goðdölum í Skagafirði er boðið upp á kirkjukaffi á jóladag
Hér áður fyrr, en þó fyrir ekki svo löngu, tíðk-
aðist að bjóða upp á messukaffi á kirkjustöðum
og var slíkt ekki bundið við þá staði sem prestar
sátu. Goðdalir í Skagafirði eru þar engin undantekning og þar tók Rósa
Guðmundsdóttir við keflinu af tengdamóður sinni, Moniku Súsönnu
Sveinsdóttur og reiddi fram veitingar af miklum myndarskap. Margir
minnast þessara stunda með hlýju, ekki síst messukaffisins á jóladag,
og fyrir fáeinum árum ákváðu börn Rósu að endurvekja þennan sið.
Rósa segist enn í dag alltaf vilja eiga eitthvað með kaffinu og býður blaðamanni upp á dýrindis
eplaköku og hjónabandssælu. „Mér finnst ég alltaf þurfa eiga eitthvað með kaffinu, en sjálfsagt er það
óþarfi því enginn vill vera feitur og enginn vil borða sykur,“ segir hún og hlær. MYND: KSE
Bygg›asaga Skagafjar›ar
Fyrsta til sjöunda bindi Byggðasögunnar er enn fáanlegt
Þú getur pantað Byggðasögu Skagafjarðar með því að hringja í síma 453 6261
eða 453 6640. Einnig má senda tölvupóst á netfangið saga@skagafjordur.is
Allar bækurnar
sjö fást í tilbo›s-
pakka á kr. 65.000.
Ofangreint ver› er félags-
mannaver› Sögufélags
Skagfir›inga og b‡›st einnig
þeim sem panta beint
frá útgáfunni.
Þeir sem grei›a fyrirfram fá
bækurnar sendar bur›ar-
gjaldsfrítt. Annars leggst
vi› bur›argjald.
Safnahúsinu 550 Sau›árkróki Sími 453 6261 eða 453 6640 Netfang: saga@skagafjordur.is http://sogufelag.skagafjordur.is
Tilboðsverð á
Byggðasögu Skagafjarðar
• Fyrsta bindið um Skefilsstaðahrepp
og Skarðshrepp kr. 9.000
• Annað bindið um Staðarhrepp
og Seyluhrepp kr. 11.000
• Þriðja bindið um Lýtingsstaðahrepp kr. 12.000
• Fjórða bindið um Akrahrepp kr. 13.000
• Fimmta bindið um Rípurhrepp
og Viðvíkurhrepp kr. 14.000
• Sjötta bindið um Hólahrepp kr. 14.000
• Sjöunda bindið um Hofshrepp kr. 15.000
Afgreiðsla Byggðasögunnar er í
Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Útgáfa bókarinnar var styrkt af Menningarráði-
og Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.
TILBOÐ
kr.65.000
FYRIR ALLAR SJÖ
BÆKURNAR
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
Rósa á fimm börn á lífi og eru þrjú
þeirra búsett í Skagafirði. „Ég bjó tíu
ár hérna í neðra húsinu og þá var alltaf
kirkjukaffi. Það var oft mjög fjörugt. Svo
fluttist þetta með mér hérna uppeftir
og er hérna alveg þangað til sr. Ólafur
[Hallgrímsson á Mælifelli] hætti. Þá hætti
líka kirkjukórinn og það er mikil eftirsjá
í því, þetta var góður félagsskapur. Ég
var búin að vera í kór frá barnsaldri og
fyrstu árin fór maður á kóræfingar fram í
Bjarnastaðahlíð,“ rifjar Rósa upp.
Rósa segir að í seinni tíð hafa færri
komið í kaffi eftir messur en þó komi
prestshjónin alltaf. „Svo tóku krakkarnir
mínir upp á þessu aftur fyrir nokkrum
árum, þeim fannst svo leiðinlegt að það
væri ekki jólakaffi, svo þau fóru að bjóða í
jólakaffi eftir messu hérna hjá mér,“ segir
Rósa. „Fólk er samt meira að flýta sér en
áður fyrr og margir að fara í jólaboð,“
segir hún. Rósa gerir ekki mikið úr
bakstrinum, segist „bara hafa boðið upp
á venjulegt kaffi,“ en þegar nánar er spurt
kemur í ljós að gamla, góða rjómatertan
var gjarnan á borðum, ásamt ýmsum
öðrum kræsingum. „Tengdamóðir mín
bakaði tíu til tólf sortir en ég dró nú
heldur úr því. Á þeim tíma var þetta oft
kapp-hlaup við tímann, að klára það sem
gera þurfti í fjósinu, áður en að messan
byrjaði.“
Í messukaffi í Goðdölum eftir síðustu messu sr. Ágústs Sigurðssonar þar 1983. Frá vinstri: Guðrún Lára
Ásgeirsdóttir, Rósa, Björn Ólafsson og sr. Ágúst. Fyrir aftan er Borgar Símonarson. MYND: ÚR EINKASAFNI