Fréttablaðið - 18.05.2018, Qupperneq 4
Stöndum saman og kaupum álfinn – fyrir unga fólkið
10x10 DBL Kubbur
SÁÁ – til betra lífs
VIÐSKIPTI Hluti af þeim 157 milljón-
um króna, auk dráttarvaxta, sem ríkið
var í nóvember í fyrra dæmt til þess
að endurgreiða Högum vegna ólög-
mætrar gjaldtöku þess af innfluttum
landbúnaðarvörum var tekjufærður
á síðasta rekstrarfjórðungi smásölu-
risans sem lauk í febrúar.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
staðfestir við Fréttablaðið að hluti
fjárhæðarinnar hafi verið tekjufærður
vegna meðal annars kostnaðar við
málið. Hluti hafi síðan verið nýttur til
þess að lækka verð til viðskiptavina á
þeim vörum sem félagið hafði greitt
toll af. Upphæðin sem um ræði hafi
hins vegar haft óveruleg áhrif á upp-
gjör félagsins fyrir síðasta rekstrar-
fjórðung.
Félagið hafði heitið því að skila
þeim fjármunum sem það fær endur-
greidda vegna ólögmætrar gjaldtöku
ríkisins til viðskiptavina í gegnum
lægra vöruverð. Sem dæmi skiluðu
Bónus og Hagkaup um 175 millj-
ónum króna af ólögmætum gjöldum
ríkisins til viðskiptavina í formi
niður greiðslu á innfluttum kjúklingi
og nautalundum á rekstrar árinu 2016
til 2017 eftir að Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu að útboðsgjald
ríkisins færi í bága við lög.
Ekki hafa fengist upplýsingar um
hve há fjárhæð af þeim 157 millj-
ónum, auk vaxta, sem héraðsdómur
dæmdi í nóvember ríkið til þess að
endurgreiða Högum, hafi verið notuð
til þess að lækka vöruverð.
Niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur var sú að útboðsgjaldið sem
ríkið innheimtir fyrir heimildir til
þess að flytja inn búvörur á engum
eða lægri tollum væri ólögmætt. Var
ríkinu gert að endurgreiða þremur
innflutningsfyrirtækjum, Sælkera-
dreifingunni, Innnesi og Högum,
samtals um 355 milljónir króna í
oftekin gjöld. Dómnum var ekki
áfrýjað.
Framlegð Haga nam 4.925 millj-
ónum króna á síðasta rekstrarfjórð-
ungi, frá desember 2017 til febrúar
2018, og var framlegðarhlutfallið 24,9
prósent borið saman við 24,6 pró-
sent á sama tíma á fyrra rekstrarári.
Var framlegðarhlutfallið umtalsvert
hærra en greinendur höfðu spáð. – kij
Hagar tekjufærðu hluta endurgreiðslunnar frá íslenska ríkinu
Finnur Árnason,
forstjóri Haga. 157
milljónir þurfti ríkið að
endurgreiða Högum vegna
ólögmætrar gjaldtöku af inn-
fluttum landbúnaðarvörum.
STjórnmál Ef fer sem horfir virðast
Miðflokkurinn, Píratar og Viðreisn
eiga eftir að styrkja stöðu sína sem
stjórnmálahreyfingar í næstu sveit-
arstjórnarkosningum. Þetta sýna
kannanir sem Fréttablaðið hefur
gert undanfarið.
Í sveitarstjórnarkosningunum
2014 buðu Píratar fram lista í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði
og Reykjanesbæ. Niðurstaðan varð
að stjórnmálahreyfingin fékk einn
mann kjörinn í sveitarstjórn á öllu
landinu. Það var Halldór Auðar
Svansson, sem var kjörinn í Reykja-
vík og tekur þátt í fjögurra flokka
meirihlutasamstarfi.
Fréttablaðið hefur gert skoðana-
kannanir í sjö sveitarfélögum að
undanförnu. Þær hafa sýnt að Pírat-
ar kunna að fá allt að tvo fulltrúa
kjörna í Reykjavík, en þar er reyndar
verið að fjölga fulltrúum úr 15 í 23.
Svo gæti flokkurinn fengið einn
kjörinn fulltrúa í Kópavogi, einn
í Hafnarfirði og einn á Akureyri.
Þá sýndi könnun Fréttablaðsins í
Árborg að Áfram Árborg, sameigin-
legt framboð Pírata, Viðreisnar og
óháðra, fengi einn mann.
Miðflokkurinn og Viðreisn eru
hvort tveggja ný stjórnmálaöfl og
buðu ekki fram í sveitarstjórnar-
kosningunum fyrir fjórum árum.
Nýjasta könnun Fréttablaðsins,
frá 7. maí, sýnir að líkt og Píratar
geti Miðflokkurinn og Viðreisn
fengið tvo fulltrúa í Reykjavík, hvor
flokkur. Miðflokkurinn fengi að
auki fulltrúa kjörna í Hafnarfirði og
á Akureyri.
Viðreisn gæti náði inn fulltrúa í
bæjarstjórn Kópavogs í sameigin-
legu framboði með Bjartri framtíð
og manni í bæjarstjórn Árborgar í
sameiginlegu framboði með Píröt-
um. Þá sýnir könnun Fréttablaðsins
að L-listinn á Akureyri, sem Viðreisn
er hluti af, myndi fá tvo fulltrúa.
Á fundi Stofnunar stjórnsýslu-
fræða og stjórnmála og Félags
stjórnmálafræðinga í gær ræddi
Grétar Þór Eyvindsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann á
Akureyri, um niðurstöður skoðana-
kannana fyrir komandi kosningar.
Grétar sagði að þegar horft væri
til Reykjavíkur væri staðan sú að
meirihlutinn virtist ætla að halda
og Sjálfstæðisflokkurinn ekki að ná
fram þeim breytingum sem hann
hafði vonast til. „Ef eitthvað gæti
ógnað stöðu meirihlutans þá væri
það hversu margir af minni flokkun-
um næðu manni inn,“ segir Grétar.
jonhakon@frettabladid.is
Útlit fyrir sterkari stöðu Pírata
Píratar eru líklegir til þess að styrkja stöðu sína verulega á sveitarstjórnarstiginu í kosningunum þann
26. maí. Mælast með fulltrúa í fjórum af þeim sjö sveitarfélögum þar sem Fréttablaðið hefur kannað fylgið.
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga þann 26. mái næstkomandi hófst í Smára-
lind á föstudag í síðustu viku. Þar verður hægt að greiða atkvæði allt fram á kjördag. Fréttablaðið/Ernir
Grétar Þór
Eyþórsson,
prófessor í
stjórnmálafræði.
Samfylkingin stærst
Samfylkingin mælist stærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavíkurborg
í könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið dagana 2. til 14. maí.
Fylgi flokksins mælist rúmt 31 prósent sem gæfi honum 9 borgarfull-
trúa. Sjálfstæðisflokkurinn er með tæp 25 prósent sem myndi skila 7
borgarfulltrúum og Píratar eru enn sterkari en í könnun Fréttablaðsins,
með 11,5 prósenta fylgi og myndu fá 3 fulltrúa. VG mælist svo með 6,7
prósent, Viðreisn með 6,6 prósent, Miðflokkurinn með 4,2 prósent og
Sósíalistar með 3,8 prósent. Þessir fjórir síðast töldu flokkar myndu fá
einn mann kjörinn hver.
DýraVelferÐ Matvælastofnun hefur
tekið ellefu hross úr vörslu umráða-
manns á bæ á Suðurlandi eftir að
hann sinnti ekki ítrekuðum kröfum
stofnunarinnar um bætta fóðrun.
Stofnunin hefur á undanförnum
mánuðum gert ítrekaðar kröfur um
bættan aðbúnað hrossa á bænum,
flokkun hrossa eftir holdafari og
sérstaka fóðurgjöf til þeirra sem
mest þurfa á því að halda. Allt án
árangurs.
Samkvæmt upplýsingum frá
Matvælastofnun var talin hætta á
varanlegum skaða ef fóðrun hrossa
og aðstæður yrðu ekki bættar. Voru
hrossin því tekin af viðkomandi og
verða fóðruð á hans kostnað. – smj
Sviptur
hrossum
VIÐSKIPTI Fossar markaðir, Íslands-
banki og Landsbankinn verða í hópi
aðstoðarsöluráðgjafa í fyrirhuguðu
hlutafjárútboði Arion banka sem
áætlað er að fari fram í næsta mán-
uði. Bankinn tilkynnti í gær að efnt
yrði til útboðs á hlutabréfunum og
þau síðan skráð í Nasdaq-kauphöll-
ina hér á landi og í Stokkhólmi.
Fjárfestingarbankasvið Arion
banka og stórbankarnir Carnegie,
Citigroup og Morgan Stanley verða
leiðandi umsjónaraðilar með útboð-
inu. – kij
Aðstoða Arion í
hlutafjárútboði
Áætlað er að útboðið fari fram á fyrri
hluta ársins. Fréttablaðið/EyÞór
DómSmál Niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli Samkeppniseftir-
litsins gegn Byko veldur fyrirtækinu
vonbrigðum og ætlar það að áfrýja
dómnum til Landsréttar. Þetta segir
í tilkynningu sem Byko sendi frá sér
í gær.
Héraðsdómur staðfesti á miðviku-
dag að Byko hefði framið alvarleg
brot á samkeppnislögum og hækk-
aði álagða sekt á fyrirtækið í 400
milljónir króna úr þeim 65 milljón-
um króna sem áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála hafði talið hæfilega.
Í maí 2015 komst Samkeppnis-
eftir litið að þeirri niðurstöðu að Byko
hefði brotið gegn samkeppnislögum
og EES-samningnum með umfangs-
miklu ólögmætu samráði við gömlu
Húsasmiðjuna. Eftirlitið taldi brotið
alvarlegt og lagði 650 milljóna sekt á
Norvik, móðurfélag Byko.
Norvik og Byko kærðu svo ákvörð-
unina til áfrýjunarnefndar. Nefndin
komst að því að Byko hefði tekið
þátt í ólögmætu verðsamráði en
að ákvæði EES-samningsins hefðu
ekki verið brotin. Var sektin lækkuð
í 65 milljónir. Þá höfðaði Samkeppn-
iseftirlitið mál fyrir héraðsdómi sem
hækkaði sektina aftur á miðvikudag
eins og áður segir.
Í tilkynningu Byko frá í gær segir
að dómur héraðsdóms byggi að
stórum hluta á dómi Hæstarétt-
ar frá 2016 „í málaferlum gegn
starfsfólki sem hlut átti að þessu
sama máli“. Sá dómur hafi verið
óréttlátur og vankantar hafi verið á
málsmeðferð.
„Í gær barst okkur tilkynning um
að Mannréttindadómstóll Evrópu
hefði fallist á að taka ákveðna þætti
í dómi Hæstaréttar til efnislegrar
meðferðar,“ segir enn fremur í til-
kynningunni frá Byko. – þea
Byko hyggst áfrýja til Landsréttar
Ein verslana byko. Fréttablaðið/PjEtUr
1 8 . m a í 2 0 1 8 f Ö S T U D a G U r4 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a Ð I Ð
1
8
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
D
5
-9
0
C
8
1
F
D
5
-8
F
8
C
1
F
D
5
-8
E
5
0
1
F
D
5
-8
D
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K